Katrín boðuð á Bessastaði og leiðir formlegar viðræður

Stefnt er að ríkis­stjórnar­samstarfi Vinstri grænna, Samfylkingar, Framsóknar­flokks og Pírata. Viðmælendur Stundarinnar innan úr flokkunum eru fullir bjartsýni.

Katrín Jakobsdóttir
Katrín Jak­obs­dóttir Við kom­una á Bessa­staði fyrr í dag. Mynd: Pressphotos

Guðni Th. Jóhannesson forseti hefur boðað Katrínu Jakobs­dóttur, formann Vinstri grænna, til fundar við sig á Bessa­stöðum klukkan 16 í dag.

Samkvæmt heimildum Stundarinnar hafa viðræður formanna Vinstri grænna, Framsóknar­flokksins, Samfylkingarinnar og Pírata gengið vel og ríkir bjartsýni um að flokkunum takist að ná saman um myndun ríkis­stjórnar. Slík ríkis­stjórn myndi leggja höfuð­áherslu á uppbyggingu innviða og styrkingu heil­brigðis- og mennta­kerfisins.

Fulltrúar flokkanna fjögurra sammæltust um það á fundi í hádeginu að vilji væri fyrir því að hefja formlegar stjórnar­myndunar­viðræður. Í kjölfarið var Katrín boðuð á fund forseta þar sem hún mun falast eftir táknrænu umboði til stjórnar­myndunar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár