Vill að stjórnvöld byrji á réttum enda áður en „virkjanakúrekum er gefinn laus taumurinn“

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar vill að stjórn­völd byrji á réttum enda í orku­skiptum. „Allt tal um að hægt sé að rigga upp 16 terawattstundum í orku­öflun, sem að sögn er nauð­syn­legt vegna orku­skipt­anna, er eins og hver önnur fásinna.“

Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, ræddi orku­skipti á Alþingi í dag og spurði hvort það væri til of mik­ils mælst að stjórn­völd byrji á réttum enda í þeim efnum.

Rétti end­inn er, að hennar mati, að móta lagaum­gjörð, for­gangs­röðun og leik­reglur orku­skipt­anna áður en „virkj­anakúrek­unum er gef­inn laus taum­ur­inn“, líkt og hún orð­aði það undir liðnum störf þings­ins.

Þórunn vís­aði í grein Bjarna Bjarna­sonar, frá­far­andi for­stjóra Orku­veit­unnar, sem birt­ist á Vísi í morgun undir yfir­skrift­inni „Að virkja sig frá lofts­lags­vánni“. Bjarni var einnig gestur í Silfrinu á RÚV í gær þar sem hann ræddi um orku­skipt­in, orku­þörf og hug­myndir um upp­bygg­ingu vind­orku­vera, eða vind­myllu­garða hér á landi.

Ýmis fyr­ir­tæki hafa sóst eftir því að fá að beisla vind­inn, alla liggja fyrir hug­myndur um slíka upp­bygg­ingu á 34 stöðum víða um land­ið.

Bjarni telur áform um vind­virkj­anir hér á landi ekki raun­hæfar. „Þarna væri orku­geir­inn að valta yfir ferða­þjón­ustu. Ferða­þjón­ustan er í dag sá atvinnu­vegur sem skilar mestum gjald­eyri í þjóð­ar­bú­ið, gerði það fyrir Covid og það stefnir í það aftur núna, þannig að atvinnu­vegir þurfa að sjálf­sögðu að búa saman í sátt og sam­lyndi, það er ekki annað hægt. Einn atvinnu­vegur getur ekki valtað yfir ann­an,” sagði Bjarni í Silfrinu í gær.

Ógerlegt að tryggja að nýtt rafmagn rati í orkuskiptin

Í grein sinni á Vísi segir Bjarni að sam­kvæmt gild­andi lögum og reglu­gerðum er óger­legt að tryggja að nýtt raf­magn rati í orku­skiptin. „Engu að síður er unn­endum nátt­úru Íslands nán­ast stillt upp við vegg; ann­að­hvort virkjum við þessi reið­innar býsn af raf­magni eða aukum á lofts­lags­vána. Það er ekki gott,“ skrifar Bjarni í grein sinni.

Þórunn vís­aði í þessi orð Bjarna og sagði þetta kjarna máls­ins. „Allt tal um að hægt sé að rigga upp 16 tera­vatt­stundum í orku­öflun, sem að sögn er nauð­syn­legt vegna orku­skipt­anna, er eins og hver önnur fásinna. Það þarf nefni­lega að gera margt annað en að virkja vatns­föll, jarð­varma og vind til að draga hratt og örugg­lega úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hér á landi.“

Frumvarpa frá umhverfisráðherra enn beðið

Þórunn, ásamt öðrum þing­mönnum Sam­fylk­ing­ar­innar, mælti fyrir þings­á­lykt­un­ar­til­lögu í upp­hafi þessa þings um breyt­ingar á raf­orku­lögum til að tryggja raf­orku­ör­yggi almenn­ings og for­gangs­röðun raf­orku­fram­leiðslu til orku­skipta. Tillagan var fyrst lögð fram á síð­asta þingi.

„Þar leggjum við meðal ann­ars til að gerðar verði nauð­syn­legar breyt­ingar á lögum og reglu­gerðum svo hægt sé að beina orku­öflun til orku­skipt­anna,“ sagði Þórunn. Í til­lög­unni kemur fram að ekk­ert í núver­andi lagaum­hverfi raf­orku­nýt­ingar gerir stjórn­völdum kleift að stýra raf­orku­fram­leiðslu hér á landi þannig að hún nýt­ist beint til orku­skipta. „Þannig hafa stjórn­völd ekki í hönd­unum nauð­syn­leg tæki til að fram­fylgja áætl­unum um sam­drátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og upp­fylla mark­mið Íslands í lofts­lags­málum. Það er því langt frá því að vera öruggt að orka úr nýjum virkj­ana­kostum renni til orku­skipta,“ segir meðal ann­ars í þings­á­lykutn­ar­til­lög­unni.

Í til­lög­unni er einnig lagt til að stjórn­völd skil­greini svo­kall­aða alþjón­ustu með full­nægj­andi hætti í raf­orku­lögum til að tryggja raf­orku­ör­yggi heim­il­anna í land­inu, sem er ekki síður mik­il­vægt að mati Þórunnar.

„Þetta hefur ekki verið gert og enn er beðið frum­varpa frá hæst­virtum umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra,“ sagði Þórunn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár