Hafnar ásökunum Sigrúnar Helgu

Sigurður Yngvi Kristinsson, sem Sigrún Helga Lund kvartaði yfir vegna kynferðis­legs háttalags í sinn garð og síðar útilokunar, segir ásakanir hennar rangar. Það sýni úrskurður siða­nefndar Háskóla Íslands.

Hafnar ásökunum
Hafnar ásök­unum Sigurður Yngvi hafnar ásök­unum Sigrúnar Helgu í sinn garð alfarið. Mynd: HÍ

Sigurður Yngvi Kristinsson, prófessor við lækna­deild Háskóla Íslands, hafnar eindregið þeim ávirðingum sem Sigrún Helga Lund, prófessors í líftölfræði við sama skóla, hefur sett fram í hans garð. Stundin greindi í morgun frá því að Sigrún Helga hefði sagt upp starfi sínu sem prófessor vegna áreitni Sigurðar og vegna skorts á viðbrögðum stjórn­enda háskólans eftir að Sigurður hafi verið fundinn sekur um brot á siða­reglum Háskólans í samskiptum sínum við Sigrúnu Helgu.

Sigurður segir í yfir­lýsingu sem hann sendi frá sér vegna umfjöllunar um málið að hann sjái sig tilneyddan til að bregðast við í ljósi ásakana sem Sigrún Helga hafi sett fram í hans garð, á samfélags­miðlum, og sem fjöl­miðlar hafi síðan sagt frá.

„Ég hafna því eindregið að hafa beitt hana andlegu ofbeldi eða áreitni af neinu tagi. Eftir farsælt samstarf komu upp erfið­leikar á milli okkar, og ég neyddist á endanum til að víkja henni úr rannsóknahóp mínum. Í kjölfarið gerði hún sig seka um tilefnis­lausa líkams­árás á skrif­stofu minni í vitna viðurvist og hafði í hótunum við mig. Sá atburður var mér og öðru samstarfs­fólki okkar mikið áfall,“ segir Sigurður. Umræddur atburður sem Sigurður vísar til leiddi til þess að áminningar­ferli fór af stað innan Háskólans en málinu var lokið án þess að til áminningar kæmi.

Sigurður bendir á að siðanefnd Háskóla Íslands hafi tekið samskipti hans og Sigrúnar Helgu til umfjöllunar að kröfu hennar. Ákvörðun hafi verið birt 9. júlí síðastliðinn. Þar komi fram að siða­nefndin vísi frá öllum kæru­atriðum Sigrúnar Helgu, öðrum en kvörtun hennar vegna brott­vikningar Sigurðar á henni úr stýrihópi rannsóknar­verk­efnisins Blóð­skimun til bjargar, sem hún sat í ásamt Sigurði og öðrum. Þar fellst siða­nefndin á að Sigurður hafi brotið gegn siða­reglum Háskóla Íslands að hluta en brotið teljist ekki alvarlegt. Bendir Sigurður á að Sigrún Helga hafi verið tekin inn í stýri­hópinn að nýju síðar. Öllum ásökunum um áreitni hafi hins vegar verið hafnað. Sigurður segir að sér þyki því leitt að Sigrún Helga fari fram með rangar ásakanir í hans garð.

Bætt við kl. 17:30:

Rektor Háskóla Íslands hefur sent frá sér svohljóðandi yfir­lýsingu:

Jón Atli Bene­dikts­sonrektor Háskóla Íslands

Háskóli Íslands leggur ríka áherslu á að til staðar séu úrræði fyrir starfs­menn og nemendur sem telja á sér brotið. Háskólinn starf­rækir m.a. sérstaka siðanefnd, fagráð um viðbrögð við kynbundinni og kynferðislegri áreitni og kynbundnu og kynferðis­legu ofbeldi, og viðbragðsteymi vegna eineltis og annars ofbeldis.

Fram hefur komið í fjöl­miðlum að tiltekinn starfs­maður hafi lagt fram kæru vegna framkomu annars starfs­manns til siða­nefndar Háskóla Íslands en niður­staða nefndarinnar lá fyrir í júlí 2018. Samkvæmt starfs­reglum siða­nefndar Háskóla Íslands eru skriflegar niður­stöður siða­nefndar afhentar máls­aðilum og sendar rektor til vitundar og varð­veislu. Í kjölfar hverrar niður­stöðu siða­nefndar metur rektor hvort tilefni sé til frekari aðgerða af hálfu Háskólans.

Rektor getur ekki tjáð sig efnislega um málefni einstakra starfs­manna eða ákvarðanir siða­nefndar, sem eru trúnaðarmál. Rétt er að taka fram að Háskóli Íslands hefur, á undan­förnum misserum, lagt áherslu á að bæta enn frekar ferla og úrræði til að bregðast við kvörtunum og tilkynningum um ofbeldi og áreitni af hvaða tagi sem er, enda verður slíkt aldrei liðið innan Háskóla Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár