Erlendar eignir lífeyrissjóðanna halda áfram að aukast

Rúmur þriðj­ungur allra eigna líf­eyr­is­sjóð­anna er bund­inn í erlendri mynt og hefur það hlut­fall aldrei verið jafn­hátt. Hag­fræð­ingar hafa bent á að ákjós­an­legt hlut­fall væri að lág­marki 40 til 50 pró­sent hér á landi.

Samkvæmt hagfræðikenningum ætti hlutfall erlendra fjárfestinga lífeyrissjóðanna að vera hærra en það er núna
Samkvæmt hag­fræði­kenn­ingum ætti hlut­fall erlendra fjár­fest­inga líf­eyr­is­sjóð­anna að vera hærra en það er núna Mynd: Pexels.com

Hlut­deild erlendra eigna af heild­ar­eignum líf­eyr­is­sjóð­anna nam 34 pró­sentum í ágúst síð­ast­liðnum og hefur það aldrei verið hærra. Hlut­deildin hefur vaxið örugg­lega frá afnámi gjald­eyr­is­haft­anna og er nú orðið tölu­vert hærri en hún var fyrir banka­hrunið árið 2008. Samkvæmt úttekt frá árinu 2014 væri æski­legt hlut­fall erlendra eigna í líf­eyr­is­sjóðum 40 til 50 pró­sent.

Þróun hlut­deildar erlendra eigna íslenskra líf­eyr­is­sjóða sam­kvæmt nýjum tölum frá Seðla­bank­anum má sjá á mynd hér að neðan. Þar sést hvernig hún hefur hækkað úr rúmum fimmt­ungi frá losun gjald­eyr­is­haft­anna fyrir rúmum þremur árum síðan upp í rúman þriðj­ung í ágúst á þessu ári. Fyrr hafði hlut­deildin náð hámarki þegar gjald­eyr­is­höftin voru sett á í nóv­em­ber árið 2008, en þá voru erlendar eignir líf­eyr­is­sjóð­anna 31 pró­sent af heild­ar­eignum þeirra.

Samkvæmt rit­inu Áhættu­dreif­ing eða ein­angrun eftir Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóra og Hersi Sig­ur­geirs­son dós­ent við við­skipta­fræði­deild HÍ kveða klass­ískar hag­fræði­kenn­ingar á um að ákjós­an­leg­ast væri fyrir íslenska líf­eyr­is­sjóði að eiga um 30-40 pró­sent eigna sinna erlendis. Hins vegar er bætt við að þetta hlut­fall gæti verið enn hærra ef tekið er til­lit til sér­ís­lenskra þátta.

Ásgeir og Hersir færa rök fyrir því að líf­eyr­is­sparn­aður í erlendri mynt sé for­senda þess að halda stöð­ug­leika á smærri mynt­svæðum þar sem hlut­deild inn­flutn­ings sé til­tölu­lega mikil af neyslu og sjóða­söfnun sé ráð­andi líf­eyr­is­form.

Hægt væri að leiða út að líf­eyr­is­sparn­aður eigi að hafa sömu mynt­sam­setn­ingu og almenn einka­neysla við­kom­andi lands, en sam­kvæmt þeirri reglu ætti hlut­fall erlendra eigna líf­eyr­is­sjóð­anna að vera um 40 til 50 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár