Tónskáld í öðru sæti yfir skattakónga Norðurlands eystra

Þeir fimm sem hæsta skatta greiddu á síð­asta ári eru allir búsettir á Akureyri. Tón­skáldið Atli Örv­ars­son hefur vel upp úr kvik­mynda­tón­list­inni. Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, nær bara þriðja sæti.

Mikið að hafa upp úr músíkinni
Mikið að hafa upp úr mús­ík­inni Atli Örv­ars­son greiðir næst hæsta skatta á Norð­ur­landi eystra. Mynd: afp

Geir Valur Ágústs­son á Akureyri er skatta­kóngur Norð­ur­lands eystra árið 2020. Geir er fram­kvæmd­stjóri fjár­mála­sviðs Air Atlanta og á 30 pró­senta hlut í flug­fé­lag­inu. Á síð­asta ári greiddi Geir um 45,4 millj­ónir króna í skatta sam­kvæmt álagn­ing­ar­skrá. Rétt tæpur helm­ingur voru fjár­magns­skattur, 22 millj­ónir króna.

Geir Valur Ágústs­son

Geir hafði 154 millj­ónir í heild­ar­árs­tekjur á síð­asta ári. Þar af voru 100 millj­ónir í fjár­magnstekjur. Launa­tekjur Geirs voru rúmar 4,5 millj­ónir króna á mán­uði. Geir situr í stjórnum ýmissa félaga, fimmtán alls og í fram­kvæmda­stjórn þriggja.

Í öðru sæti er Atli Örv­ars­son tón­skáld á Akureyri. Atli greiddi rúmar 40 millj­ónir króna í skatta á síð­asta ári þar af um 26 millj­ónir í fjár­magnstekju­skatt. Fjár­magnstekjur Atli árið 2020 námu tæpum 118 millj­ónum króna og heild­ar­árs­tekjur hans voru 151,6 millj­ónir króna.

Atli hefur um ára­bil verið umsvifa­mik­ill og virtur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Tekjulistinn 2021

ViðtalTekjulistinn 2021

Samtöl við skatta­kónga

Þau sem eru hluti af 1 pró­sent tekju­hæstu Íslend­ing­unum sam­kvæmt álagn­inga­skrá eiga margar og mis­mun­andi sögur að baki, bæði af sigrum og sorgum. Stundin ræðir við nokkur þeirra. „Svo þegar ég er búinn að eign­ast alla þessa pen­inga núna þá kann ég ekk­ert að nota þá,“ segir næst­hæsti skatt­greið­andi á land­inu. „Það má and­skot­inn vita hvað verður gert við þetta,“ segir skatta­kóngur að vestan.

27 mín. lestur

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár