Árið sem þolendur höfðu hátt

Árið 2017 var ár skelfi­legs kynbundins ofbeldis, en líka árið sem þögnin um kynbundið ofbeldi var rofin.

Árið byrjaði með hvarfi Birnu Brjáns­dóttur, leitinni sem þjóðin fylgdist með skelfingu lostin og leiddi til líkfundar við Selvogs­vita þann 22. janúar. Þúsundir söfnuðust saman í miðbæ Reykja­víkur, á Grænlandi og í Færeyjum og heiðruðu minningu ungu konunnar sem kvaddi þennan heim aðeins 20 ára gömul. 

Önnur kona, Sanita Brauna, var myrt á heimili sínu í Vesturbæ Reykja­víkur í september og hefur maður á fertugsaldri verið ákærður fyrir að hafa orðið henni að bana. 

Í febrúar steig Þórdís Elva Þorvalds­dóttir fram með manninum sem nauðgaði henni þegar hún var sextán ára, Tom Stranger, í fyrir­lestri sem fluttur var á Ted og vakti athygli víða um heim. Í kjölfarið gáfu þau út bókina Handan fyrirgefningar þar sem þau gerðu upp ofbeldið sem Tom beitti hana og afleiðingar þess, ferðuðust um heimin og greindu frá reynslu sinni. 

Um mitt ár stigu fram fjórar konur sem höfðu verið beittar kynferðis­ofbeldi af lögmanninum Robert Downey á unglings­árunum. Anna Katrín Snorra­dóttir, Glódís Tara, Halla Ólöf Jóns­dóttir og Nína Rún Bergs­dóttir ögruðu ríkis­valdinu sem hafði sæmt manninn „óflekkuðu mannorði“ samkvæmt laga­bókstaf og stjórnsýslu­venjum sem var fylgt í blindni. Þær höfðu hátt og létu stjórn­málamennina sem gerðu lítið úr málinu og komu kerfinu til varnar heyra það. 

Slíkt hið sama gerði brota­þolinn í máli Hjalta Sigurjóns Hauks­sonar, manns sem hlaut fimm ára dóm árið 2004 fyrir að hafa níðst nær daglega á stjúpdóttur sinni í 12 ár. Þegar kom í ljós að ráðherrar höfðu leynt almenning upplýsingum um málið í bága við upplýsingalög og að faðir forsætis­ráðherra hefði skrifað meðmæli fyrir Hjalta sprakk ríkis­stjórnin. Hún féll „ekki vegna pen­inga, ekki vegna póli­tísks ágrein­ings at­vinnu­stjórn­mála­manna, held­ur vegna þess að kon­ur höfðu hátt,“ eins og Kven­réttinda­félag Íslands orðaði það í ályktun. 

Nú, á undan­förnum mánuðum, hafa svo hrannast upp sögur af kynferðis­ofbeldi og kynferðislegri áreitni gagnvart konum í hinum ýmsu starfs­stéttum. #MeToo-byltingin tók við af #höfumhátt. Stjórn­málakonur riðu á vaðið og í kjölfarið fylgdu konur í sviðs­listum, tækni­geiranum og háskólum, flug­freyjur, fjölmiðla­konur; þær og svo miklu fleiri hafa komið saman og deilt reynslu­sögum með almenningi; reynslu­sögum sem varpa ljósi á fársjúka menningu kynferðisáreitnis og ofbeldis sem virðist teygja sig inn í flesta króka og kima samfélagsins.

Hér má sjá yfirlit yfir stærstu fréttamál ársins.

Leitin að Birnu Brjánsdóttur

Í janúar fylgdist þjóðin skelfingu lostin með leitinni að Birnu Brjáns­dóttur, tvítugri stúlku sem skilaði sér ekki heim eftir að hafa farið út að skemmta sér í miðbæ Reykja­víkur. Almenningur tók virkan þátt í leitinni og eftir að Birna fannst við Selvogs­vita sunnu­daginn 22. janúar má segja að þjóðin hafi sameinast í sorg. Skelfilegastur var missirinn fyrir aðstand­endur Birnu, fjöl­skyldu hennar og nánustu vini. Hér í blaðinu er rætt við móður hennar, Sigurlaugu Hreins­dóttur, en Birnu er minnst sem skapandi og glaðbeittrar ungrar konu sem var hugmyndarík, skemmtileg en um leið látlaus, einlæg og trúði á það góða í fólki. 

Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar

Fyrsta ríkis­stjórn Bjarna Benedikts­sonar hóf störf í janúar 2017 í skugga hneykslis­máls þar sem í ljós hafði komið að skýrslum um eignir Íslendinga á aflands­svæðum og dreifingu skulda­niður­fellingarinnar hafði verið haldið leyndum fyrir almenningi í aðdrag­anda kosninga. Stjórnar­samstarf Viðreisnar og Bjartrar framtíðar við Sjálfstæðis­flokkinn fékk lítinn meðbyr, en samanlagt hafði fylgið hrunið úr 46,7 prósentum í kosningum niður í 39,3 prósent þegar stjórnin var mynduð. Samstarfið reyndist niður­lægjandi fyrir Viðreisn og Bjarta framtíð sem gáfu eftir sín stóru kosningamál, svo sem uppboð afla­heimilda, þjóðar­atkvæða­greiðslu um framhald aðildar­viðræðna við ESB og upptöku evru og fyrirheit um stór­fellda innviða­uppbyggingu. Eftir að stjórnar­samstarfinu var slitið vegna hneykslis­mála er vörðuðu uppreist æru barna­níðinga var báðum flokkum refsað harkalega í kosningum, einkum þó Bjartri framtíð sem missti alla sína þingmenn. Þá fékk Sjálfstæðis­flokkurinn aðra verstu kosningu sína í sögu flokksins.

Ónýtur húsnæðismarkaður

Húsnæðis­málin voru mikið á milli tannanna á fólki á árinu, en staðan hefur sjaldan verið jafn erfið. Leiguverð á höfuð­borgar­svæðinu hefur hækkað tvöfalt á við laun í landinu og húsnæðis­verð hefur hækkað um nær 95 prósent frá árinu 2010. Húsnæðis­skortur, fjölgun erlendra ferða­manna og uppkaup stórra leigu­félaga á jafnvel heilu íbúða­blokkunum hefur ýtt undir þessa þróun, sem veldur því meðal annars að fjöldi fólks kemst ekki úr foreldra­húsum eða flýr land.

Höfðu hátt og sprengdu ríkisstjórn

Mikil reiði blossaði upp snemma í sumar þegar í ljós kom að Robert Downey, marg­dæmdur barna­níðingur, hefði fengið lögmanns­réttindi sín á ný eftir að hafa hlotið uppreist æru. Þolendur Roberts, og aðstand­endur þeirra, stigu fram í dags­ljósið og kröfðust útskýringa. „Við viljum bara sannleika og réttlæti. Við erum ekki refsig­latt fólk, langt í frá, en við þekkjum í brjósti okkar hvað réttlæti er og erum að leita eftir því,“ sagði Bergur Þór Ingólfsson, faðir Nínu Rúnar Bergs­dóttur, eins þolanda Roberts, í viðtali við Stundina. Mikil leynd ríkti hins vegar yfir málinu og erfiðlega gekk að fá svör.

Málið vatt upp á sig þann 25. ágúst þegar Stundin greindi frá því að annar barna­níðingur, Hjalti Sigurjón Hauksson, hefði verið sæmdur óflekkuðu mannorði sama dag og Robert Downey. Hjalti hafði verið dæmdur árið 2004 fyrir að misnota stjúpdóttur sína nær daglega í tólf ár. Eftir að úrskurðar­nefnd um upplýsingamál komst að þeirri niður­stöðu að dómsmála­ráðuneytið ætti að afhenda öll gögn um máls­meðferð og veitingu uppreistar æru kom í ljós að faðir forsætis­ráðherra, Benedikt Sveinsson, hefði verið einn þeirra sem hefðu veitt Hjalta Sigurjóni meðmæli vegna málsins. Forsætis­ráðherra vissi af meðmæla­bréfi föður síns en lét ekki formenn hinna stjórnar­flokkanna vita, sem varð til þess að Björt framtíð sleit ríkis­stjórnar­samstarfinu og boðað var til kosninga, einungis átta mánuðum eftir að ríkis­stjórn Bjarna Benedikts­sonar tók við völdum. 

Hræringar á fjölmiðlamarkaði

Nokkur ólga var á fjölmiðla­markaði á árinu og reglulega sagðar fréttir af rekstrar­erfiðleikum fjölmiðla. Útgáfu­félag Frétta­tímans var tekið til gjaldþrota­skipta á árinu eftir að tilraunir til að endur­reisa miðilinn mistókust, fjarskipta­fyrirtækið Vodafone keypti alla miðla 365, utan Frétta­blaðsins og Glamour, og Eyþór Arnalds eignaðist fjórðungs­hlut í Morgun­blaðinu og er þar með orðinn stærsti einstaki eigandi útgáfu­félagsins. 

Stærstu deilurnar hafa hins vegar staðið um útgáfu­félagið Pressuna. Í apríl var greint frá því að sex nýir fjár­festar kæmu að hlutafjár­aukningu hjá Pressunni en til stóð að auka hlutafé félagsins um 300 milljónir króna. Skuldir félagsins numu hins vegar rúmlega 700 milljónum og þar af voru um 300 milljónir við lífeyris­sjóði og stéttar­félög vegna vangoldinna opinberra gjalda. Hætt var við hlutafjár­aukninguna og eignaðist eignarhalds­félagið Dalurinn, sem er meðal annars í eigu Róberts Wessmann, meirihluta í félaginu. Áður en ný stjórn tók sæti í félaginu voru nær allar eignir Pressunnar hins vegar seldar til hæstaréttar­lögmannsins Sigurðar G. Guðjóns­sonar, en Pressan hefur sjálf verið tekin til gjaldþrota­skipta. Miklar og opinberar deilur standa enn yfir um málið.

Fjögur morðmál

Grænlendingurinn Thomas Möller Olsen var dæmdur í 19 ára fangelsi fyrir morðið á Birnu Brjáns­dóttur í Héraðs­dómi Reykjaness þann 29. september. Í sama mánuði lést Sanita Brauna, lettnesk kona á fimmtugsaldri, á heimili sínu á Hagamel í Vesturbæ Reykja­víkur en maður að nafni Khaled Cairo hefur verið ákærður vegna málsins. Ungur albanskur maður, Klevis Sula, lést þann 8. des­em­ber eft­ir að hafa verið stung­inn með hnífi á Aust­ur­velli af Íslendingi í byrjun mánaðar. Árásar­maðurinn var í annarlegu ástandi og Klevis hafði ætlað að hjálpa honum. Sveinn Gest­ur Tryggva­son var svo á dögunum dæmd­ur í 6 ára fang­elsi fyrir að hafa ráðist á Arn­ar Jóns­son­ Asp­ar í Mosfellsdal síðasta sumar. Arnar lést af sárum sínum. 

Lögbann á umfjöllun um viðskipti forsætisráðherra

Stundin greindi frá því, í samvinnu við Reykjavik Media og Guardian, þann 6. október að Bjarni Benediktsson, þá forsætis­ráðherra, hefði selt allar eignir sínar í Sjóði 9 hjá Glitni dagana 2. til 6. október árið 2008 auk þess sem hann hefði miðlað upplýsingum um störf Fjármála­eftirlitsins til framkvæmda­stjóra hjá Glitni. Fjallað var ítarlega um viðskipti Bjarna Benedikts­sonar og frændfólks hans; meðal annars það hvernig Einar Sveinsson, föður­bróðir Bjarna, seldi eignir í Sjóði sama dag og neyðar­lögin voru sett og hvernig Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna var leystur undan sjálf­skuldar­ábyrgð skömmu fyrir þjóð­nýtingu Glitnis. Skömmu síðar varpaði Stundin ljósi á að fjárfesta­hópur Engeyinga, undir forystu Bjarna Benedikts­sonar, fjár­magnaði kaup á Olíu­félaginu með kúlulánum frá Glitni og hvernig Bjarni losnaði svo undan 50 milljóna kúluláni í aðdrag­anda hruns. Frétta­flutningurinn af þessum málefnum tók skjótan endi þegar sýslu­maðurinn á höfuð­borgar­svæðinu samþykkti lögbann á alla umfjöllun upp úr skjölum Glitnis. Málið er nú fyrir dómi og fer aðal­meðferðin fram í upphafi nýs árs. 

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Eftir að gengið hafði verið til þing­kosninga að nýju og stjórnar­myndunar­viðræður fjögurra miðju- og vinstri­flokka ekki borið ávöxt ákvað forystu­fólk Vinstri grænna og Framsóknar­flokksins að hefja stjórnar­myndunar­viðræður við Sjálfstæðis­flokkinn. Úr varð að mynduð var ríkis­stjórn undir forystu Katrínar Jakobs­dóttur þann 30. nóvember. Stjórnin hefur einsett sér, samkvæmt málefna­samningi, að ráðast í stór­auknar innviða­fjár­festingar og eflingu samneyslunnar samhliða skatta­lækkunum. 

Þögnin að eilífu rofin - #metoo

Eftir að bandaríski kvikmynda­fram­leiðandinn Harvey Weinstein var afhjúpaður, og fjöldi kvenna steig fram og sakaði hann um kynferðis­lega áreitni og ofbeldi, reis upp alþjóðleg bylgja kvenna sem höfðu orðið fyrir áreitni eða ofbeldi í starfi. Krafturinn náði meðal annars hingað til lands og hafa mörg þúsund íslenskra kvenna deilt sögum sínum undan­farna mánuði. Konur í stjórn­málum voru þær fyrstu til að stíga fram og krefjast úrbóta, en síðan hafa konur í sviðs­listum og kvik­myndagerð, konur í tækni­geiranum, konur í tónlist, úr réttar­vörslu­kerfinu, í vísindum, í lækna­stétt, í flugi, í fjöl­miðlum, í heilbrigðis­þjónustu, í mennta­kerfinu og konur í verkalýðs­hreyfingunni skrifað undir yfir­lýsingar og deilt sögum sínum af kynbundnu misrétti, áreitni og ofbeldi í starfi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið undanfarið ár