Stærsti eigandi HS Orku seldur á 90 milljarða

Orkuver HS Orku og 30 prósent hlutur í Bláa lóninu er á meðal þess sem selt hefur verið til kanadíska fyrir­tækisins Innergex Renewable Energy.

Á meðal verðmætustu eigna HS Orku er 30 prósent hlutur í Bláa lóninu.
Á meðal verð­mæt­ustu eigna HS Orku er 30 pró­sent hlutur í Bláa lón­inu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alterra Power, stærsti eigandi HS Orku, hefur verið yfirtekið af kanadíska fyrir­tækinu Innergex Renewable Energy í viðskiptum sem eru metin á 1,1 milljarð kanadíska dali, eða um 90 milljarða króna. Alterra á 53,9 prósent hlut í HS Orku í gegnum dóttur­félag sitt Magma Energy Sweden. Aðrir eigendur HS Orku eru félagið Jarðvarmi, sem er í eigu íslenskra lífeyris­sjóða.

Í sameiginlegri tilkynningu Alterra og Innergex kemur fram að allt hlutafé í Alterra skipti um hendur í viðskiptunum. Innergex tekur einnig yfir allar skuldir Alterra. Því er ljóst að eina íslenska orku­fyrirtækið sem er í eigu einka­aðila er að skipta um eigendur. HS Orka á og rekur orkuver í Svarts­engi og á Reykjanesi auk þess sem virkjana­kostir sem fyrir­tækið á eru í nýtingar­flokki ramma­áætlunar.

HS Orka skilaði 2,8 milljarða króna hagnaði í fyrra og eignir félagsins voru metnar á um 45 milljarða króna. Á meðal þeirra eigna er 30 prósent hlutur í Bláa lóninu sem metinn var á 1,8 milljarð króna í síðasta birta ársreikningi HS Orku. Fyrr á þessu ári bárust nokkur tilboð í þann hlut sem voru yfir ellefu milljörðum króna. Alterra vildi taka þeim tilboðum en Jarðvarmi hafnaði því og forsvars­maður fyrir­tækisins sagði að tilboðin endur­spegluðu ekki verðmæti Bláa Lónsins. Heild­ar­virði Bláa lóns­ins sam­kvæmt til­boð­unum sem fyrir lágu var 37 millj­arðar króna.

Forsvars­menn Alterra voru ekki ánægðir með að tilboðunum hafi ekki verið tekið. En minnihluta­eigendurnir í HS Orku, Jarðvarmi sem er í eigu 14 íslenskra lífeyris­sjóða, gátu hafnað þeim vegna hlut­hafa­sam­komu­lags um minni­hluta­vernd sem gert var þegar Jarð­varmi keypti upp­haf­lega hlut í HS Orku sum­arið 2011.

Alterra, sem þá hét Magma Energy, keypti sig inn í HS Orku árið 2009. Viðskiptin voru mjög umdeild og þáverandi stjórn­völdum hugnaðist þau ekki. Þrátt fyrir ítrekaðar inngripstilraunir hélt Magma/Alterra áfram að eignast hluti í HS Orku og átti vorið 2011 nánast allt hlutaféð í fyrir­tækinu.

Jarðvarmi keypti svo hlut í HS Orku í maí 2011 og nýtti kauprétt á viðbótar­hlut ári síðar. Samanlagt á það félag núna 33,4 prósent hlut. Síðumars keypti svo fjár­festinga­sjóðurinn Örk 12,7 prósent hlut, en Alterra á rest. Innlendir aðilar eiga því 46,1 prósent hlut í HS Orku.

Í upphaflegri frétt var sagt að salan hafi farið fram í Bandaríkja­dölum. Það er ekki rétt, heldur fór hún fram í kanadískum dölum. Þetta hefur verið leiðrétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár