Vill hönnun sem afl breytinga

Örvar Halldórsson stýrir hönnunar­vinnu í einum vinsælasta tölvuleik heimsins. Hann segir Ísland geta orðið enn meira spennandi staður fyrir tölvuleikja­iðnaðinn. Hann segir stjórn­málamenn geta lært mikið af aðferða­fræði sem beitt er í tölvuleikja­heiminum.

Í hinum marg­slungna heimi tölvunnar og internetsins eru sífellt að opnast nýjar dyr. Það er klysja að tala um að mögu­leikarnir séu enda­lausir, en það er samt aldrei of oft nefnt hversu fjöl­breytt, mikilvæg og krefjandi verkefni eru unnin á því sviði þar sem tölvu­tæknin er undir­staðan. Mikil og hröð framþróun kallar á mikla þekkingar­endurnýjun.

Einn þeirra sem hefur um árabil unnið í heimi tölvu­tækninnar er Örvar Halldórsson, 38 ára gamall Reyk­víkingur og Suður­nesjamaður. Hann fluttist fyrir rúmlega ári síðan til Seattle í Banda­ríkjunum ásamt eiginkonu sinni og dætrum þar sem hann tók við umfangs­miklu stjórnunar­starfi hjá einu virtasta tölvuleikja­fyrirtæki heimsins, Bungie, sem gefur meðal annars út leikinn vinsæla Destiny.

Örvar er hönnunar­stjóri hjá fyrir­tækinu, sem vex nú hratt eins og mörg önnur fyrirtæki á Seattle svæðinu.

Risarnir Amazon og Microsoft eru bæði með höfuð­stöðvar sínar á þessu svæði, og Facebook, Google og mörg fleiri tækni­fyrirtæki, hafa hér fjölmennar starfs­stöðvar einnig.

Segðu mér aðeins frá því hvernig þú byrjaðir í tölvleikjaiðnaðinum og ákvaðst að ganga til liðs við Bungie í Banda­ríkjunum.

„Það má segja að hugmyndin að því að hefja störf í Banda­ríkjunum hafi byrjað þegar ég hóf nám í Full Sail University í Flórída um aldamótin 2000. Ég hafði unnið við ýmis hönnunar­tengt störf á Íslandi um nokkura ára skeið og setti mér það markmið að fara í sérhæft nám sem gæti nýttst mér á sviði skapandi greina. Skólinn hafði getið sér gott orðspor fyrir að vera vel tækjum búinn og fjárfesti reglulega í búnaði sem var jafnvel betri en fagmenn notuðu. Skólinn nýtti búnaðinn að fullu með því að skipuleggja kennslu­stundir á öllum tímum sólar­hrings, alla daga vikunnar. Þannig var ég stundum í tíma til þrjú á nóttunni,“ segir Örvar.

Hann segir að þessar miklu tarnir hafi skapað einstakt andrúms­loft. „Sama hvað klukkan var, þá var alltaf annar bekkur á leið inn þegar minn bekkur var á leið út. Kennarar nefndu oft að þetta væri fínt að venja sig á því þegar við myndum útskrifast og fara að vinna á þessum vettvangi þá þyrfti að aðlagast ýmsum vinnu­tímum. Námið gekk vonum framar og náði ég hæstu einkunn yfir minn árgang ásamt því að fá sérstök verðlaun fyrir náms­árangur. Þarna var ég fullviss að ég hefði fundið mitt fag.“

Íslendingar höfðu gott orð á sér í skólanum, að sögn Örvars, og segir hann að líklega hafi spilað inn í að nemendur hafi átt mikið undir því að láta hlutina ganga upp.

„Það hafði skapast ákveðin hefð fyrir því að Íslendingum gekk vel í námi í þessum skóla, bæði krakkar sem höfðu sótt skólann á undan mér og eftir höfðu flest sópað að sér viðurkenningum og verð­launum og vildu kennarar meina að íslendingar ættu fram­tíðina fyrir sér í skapandi greinum. Sennilega var það vegna þess að íslendingarnir sem sóttu skólann tóku ekki svona stóra og dýra ákvörðun án þess að ætla sér að klára verkefnið með stæl. Náms­gjöldin voru töluvert hærri en þekkist í háskólum hér á landi og þurfti aðstoð fjölsyldu, LÍN og banka­stofnanna til að ná að safna fyrir gjöldunum.“

Margmiðlunarskólinn tók við

Þegar Örvar flutti aftur heim til Íslands eftir námið hóf hann störf hjá Marg­miðlunar­skólanum og lagði sig fram við að kenna sem flest af þeim fræðum sem hann hafði lært í Full Sail. „Það var mikill áhugi fyrir nýmiðlun á þessum tíma og ný störf að skapast sem ekki höfðu verið til áður. Ég stofnaði fyrirtæki ásamt vinum til að bjóða þjónustu á sviði nýmiðlunar og var það gríðar­lega lærdóms­ríkt ferli. Ég vann í um 6 ár í fram­leiðslu og eftir­vinnslu á kvik­myndum, sjónvarps­efni og viburðum hjá Sagafilm og síðar útibúi Framestore á Íslandi. Þaðan lá leiðin í hugbúnaðar­þróun og vefhönnun hjá Nethönnun þar sem ég byrjaði að sérhæfa mig meira í viðmóts­hönnun og vöru­hönnun. Árið 2010 var mikill vöxtur hjá CCP og þeir leituðu að viðmóts­hönnuði til að hjálpa við þróun á EVE Online en til stóð að stórefla notenda­upplifun í leiknum til að ná til nýrrar kynslóðar af spilurum sem hefur minni þolinmæði til að læra á leiki en eldri kynslóðir. Ég tók stökkið og gerðist meðlimur í leikja­hönnunar­deild CCP og vann þar næstu 5 árin með gríðar­lega öflugu og skemmtilegu teymi. Á meðan ég starfaði hjá CCP fór ég oft til Banda­ríkjanna í vinnu­ferðir til að sækja ráðstefnur, ýmist til að læra eða miðla þekkingu og reynslu sem og í þeim tilgangi að hitta spilara úr hinu stórkost­lega EVE Online samfélagi. Í hverri ferð varð mér meira og meira ljóst hvar í heiminum helsta þróun og nýjungar var að eiga sér stað í þeim iðnaði sem ég hafði valið mér. Vissulega er mikið af frábærum leikja­fyrirtækjum í Evrópu, en flest þau fyrirtæki sem ég hafði litið upp til voru á vestur­strönd Banda­ríkjanna.“

Örlögin og Bungie

Óhætt er að segja að viðtala­ferlið hjá Bungie hafi verið langt og strangt. En hann segist hafa þekkt sögu fyrir­tækisins vel, en það átti ríkan þátt í því XBOX leikja­tölvan frá Microsoft náði mikilli markaðs­hlutdeild en þar spilaði leikur frá fyrir­tækinu, Halo, stórt hlutverk. „Það má segja að það hafi verið ákveðin örlög að ég hafi endað hjá Bungie. Ég hafði nýlega farið úr stöðu hönnunar­stjóra fyrir leikja­hönnun yfir í hönnunar­stjórnun á notenda­upplifun hjá CCP (User Experience, stytt í UX). Það hafði orðið ákveðin alþjóðleg vitundar­vakning í leikjabrannsanum á mikilvægi þess að hafa sérstaka hönnunarstórnun á UX og kosti þess að gefa því sérstakan gaum. Nokkru eftir að ég hafði uppfært starfs­titilinn kom upp auglýsing á LinkedIn sem benti mér á að Bungie væri að auglýsa stöðu sem kallast á ensku UI/UX Director. Ég þekkti auðvitað Bungie eins og flestir aðdáendur tölvu­leikja sem fyrir­tækið á bakvið Halo leikina sem tryggðu XBOX velgengni um það leiti sem ég var að byrja minn starfs­feril. Sem mikill aðdáandi góðrar graf­ískrar hönnunar, merkja­hönnunar og branding almennt var ég einnig mjög heillaður af nýjasta útspili þeirra, Destiny sem mér fannst vera í algjörum sérflokki hvað viðmóts­hönnun varðar. Bungie vildi leggja mikla áherslu á að bæta notenda­upplifun á öllum sviðum leiksins og höfðu leitað leiða til að fylla þessa sérhæfðu stjórnunar­stöðu í nokkurn tíma en ekki fundið réttan aðila. Ég hafði oft leitt hugann að því að ég myndi vilja búa aftur í Banda­ríkjunum og fann á mér að þetta gæti verið rétta tækifærið. Ég sendi þeim línu og sagði þeim hvað ég hafði gert sem gaf mér nokkur síma­viðtöl og stuttu síðar var ég staddur í Bellevue skrif­stofunni þeirra í Washington fylki. Þetta var nokkuð strembið viðtals ferli, tók 2 heila daga og á endanum höfðu um 30 manns tekið viðtal við mig um allt frá stjórnun teyma, innleiðingu Agile aðferðar­fræðinnar og auðvitað allt tengt leikja­hönnun, viðmóts­hönnun og þróun á notenda­upplifun. Ráðningar­ferli Bungie fyrir stjórnunar­stöður krafðist þess að margir stjórn­endur og yfirmenn væru með í ferlinu og sat ég því með stofn­endum og yfir­hönnuðum sem höfðu sumir verið hjá fyrir­tækinu frá upphafi, eða í 25 ár. En ég sé svo sannarlega ekki eftir að hafa gengið í gegnum þetta því þeim leist vel á mig og með því að fá að hitta svo marga af lykil­fólki Bungi varð ég sjálfur sann­færður um að þetta væri tækifæri sem ég væri til í að gera miklar breytingar á lífi mínu og minni fjöl­skyldu til að láta verða að raun­veruleika. Ég hafði allan tíman fullan stuðning frá Fríðu, konunni minni sem var sjálf til í breytingar og nýjar áskoranir. En starfs­tilboð var bara byrjunin af ferlinu. Við tók gríðarleg pappírs­vinna til að sækja um vinnu­leyfi og búsetu­leyfi fyrir okkur hjónin og þrjár dætur. Sem betur fer er Bungie með gríðar­lega gott teymi sem sérhæfir sig í starfs­leyfum fyrir erlenda starfs­menn og rétt um 3 mánuðum seinna vorum við komin með öll tilskilin leyfi og ferðinni varð heitið til Seattle með um 16 töskur í farte­skinu ásamt hundi og ketti.“

Innleiðingar, smáatriði og framþróun

Eins og oft er í fyrirtækja­rekstri, þá eru það smáatriðin sem miklu skipta þegar upp er staðið. Örvar segir að reynsla hans frá CCP hafi verið álitin passa vel við það sem Bungie stóð frammi fyrir, þegar kom að innleiðingu á nýjum verk­ferlum.

Hverjar eru helsta áskoranirnar sem þú og þitt teymi eruð að glíma við, svona frá degi til dags?

„Þegar ég byrjaði hjá Bungie fyrir rétt yfir ári síðan var fyrir­tækið nýbúið að innleiða Agile aðferðar­fræðina og gekk í gegnum fylgi­fiska þess að hafa vaxið mikið á stuttum tíma. Ég hafði komið inn í CCP í mjög svipuðum aðstæðum og farið í gegnum öll stig Agile innleiðingar með þeim. Það nýttist mér vel fyrstu mánuðina hjá Bungie þar sem allir sem ekki höfðu unnið í Agile umhverfi áður gengu í gegnum ákveðið mótþróa­skeið gagnvart nýjungum og nýjum ferlum og þurfti að hjálpa fólki að sjá það góða í breytingunum og þeim mögu­leikum sem komu með nýjum verk­ferlum með því að innleiða breytingar í skrefum og gefa fólki tækifæri til að sann­færast sjálft um ágæti þess frekar en að stóla á söluræður frá fram­leiðendum og Agile þjálfurum. Áður en breytingar voru gerðar var Bungie með eitt stórt miðlægt teymi sem sérhæfði sig í hönnun og þróun á viðmóti og notenda­upplifun og hafði teymið gríðar­lega marga kúnna innan fyrir­tækisins og þurfti að sinna öllum á sama tíma. Oft voru mikil­vægar hönnunar­ákvarðanir fyrir leikinn teknar af leikja­hönnuðum og þróaðar áfram til enda og loks leitað til viðmótsteymisins til að setja viðmótið ofan á full­mótaða hönnun seint í ferlinu. Þetta gerði það að verkum að oft varð útkoman ekki eins góð eins og ef viðmótsteymið hefði verið með í ráðum við þróun á grunn­hugmyndunum og verið hluti af hópnum sem skilgreinir stefnu og markmið áður en ráðist var í framkvæmdir. Í staðinn fyrir að vera með eitt stórt 30 manna teymi stofnuðum við 4 teymi sem hvert og eitt einblíndi á ákveðin hluta af viðmóti leiksins. Síðan breyttum við stjórnunar­módelinu þannig að í stað þess til dæmis að allir forrit­arar hefðu sameiginlegan verkefna­stjóra, var hvert teymi með verkefna­stjóra (Product Owner). Þeir sem áður gengdu stjórnun á heilu þróunar­sviði, eins og í mínu tilviki voru gerðir að svokölluðum yfir verkefna­stjórum allra teyma innan ákveðins sviðs (Area Product Owner). Til viðbótar við þetta er hlutverk mitt sem hönnunar­stjóri einnig þvert á öll svið innan vöruþróunar­teymisins og get ég því verið með í ráðum um stefnu­mótun á vörunni og áætlunar­gerð fyrir þróun áður en verkefni hafa verið skilgreind og send til þeirra teyma sem ég hef yfir­umsjón yfir og get ég því unnið með þeim að úrlausnum áður en endanlegar ákvarðanir eru teknar. Þessar breytingar hafa skipt sköpum fyrir teymin og er öll vinna nú mun skilvirkari og hraðari en áður, auðveldara er að þróa viðmót til að mæta markmiðum og teymin sjá sig sem virka þáttakendur í ákvörðunum frekar en að fylgja bara því sem yfir­stjórnin ákveður. Þetta skipulag væri síðan töluvert auðveldara að útskýra ef ég gæti notað allmargar ensku­slettur því ég hef ávallt unnið samkvæmt þessum aðferðar­fræðum í ensku­mælandi starfs­umhverfi,“ segir Örvar og hlær.

Hvernig er gott að beisla góðar hugmyndir?

Örvar segir að eitt af því sem sé erfiðast í hans starfi, sé að meta það hversu mikla vinnu þurfi til þess að framkvæma nýjar hugmyndir sem eru taldar geta bætt vörurnar sem er verið að framleiða. Þetta sé oft snúið. „Ein helsta áskorunin sem ég finn fyrir er þegar við þurfum að meðhöndla nýjar hugmyndir sem ekki er vitað hvað þarf mikla vinnu til að gera vel en á sama tíma vera með settan útgáfudag sem ekki verður haggað. Þetta minnir mig á eftir­vinnslu­dagana þegar vitað var að bíómynd átti að koma út ákveðinn dag og það var ekkert annað í stöðunni en að henda fleiri vinnu­stundum á verkefnið til að ná að klára það í tæka tíð. Sem betur fer fylgjum við ekki þeirri stefnu hjá Bungie heldur sníðum stakk eftir vexti og einblínum á þá þætti sem munu hjálpa okkur að komast sem næst því að mæta markmiðum og bæta upplifun spil­aranna innan tíma­rammans sem við höfum. Best er þegar við getum gert það ásamt því að koma bestu mögulegu lausninni til spil­aranna sem hægt hefði verið að þróa. En þar sem við erum að þróa leik sem er í stöðugri notkun af milljónum spilara þá er alltaf hægt að bæta um betur næst, þó við stefnum alltaf á að gera það í fyrstu tilraun. Slíkt er þó einfald­lega ekki hægt því oft þurfum við að sjá hvernig spilarar meðtaka hlutina og hegða sér til að vita hvað þarf að gera til að bæta hönnunina. Bungie er með öflugt rannsóknar­teymi og hefur sérstaka aðstöðu þar sem við getum boðið spilurum að koma og prófa hluta af leiknum sem ekki hefur verið gefinn út. Þar er regulega fullt hús af áhuga­sömum spilurum sem hjálpa okkur að bæta leikinn, bæði viðmótið sem og alla aðra þætti sem þú upplifir við að spila leikinn. Þegar við sjáum viðbrögðin frá þessum spilurum og hvernig þeir verða gríðar­lega spenntir yfir nýjungunum sem við erum að þróa er það góð tilfinning að vita til þess að maður sé að vinna við eitthvað sem skiptir máli fyrir fólk og veitir þeim svo mikla ánægju. Það hvetur mann til að gera stöðugt betur.“

Alþjóðlegur suðupottur

Eins og Kjarninn hefur greint frá áður, þá er Seattle-hagkerfið með þeim allra sterkustu í Banda­ríkjunum, þegar kemur að tækni­þróun og starfsemi á sviði tölvu­tækni. Þar eru allir angar undir. Tölvu­leikir, stýri­kerfi, gervi­greind, verslun á netinu og allt þar á milli.

Ekki síst í ljósi þessa dregur svæðið að sér hæfileika­ríkt fólk frá hinum ýmsu löndum, ekki síst Asíu nú í seinni tíð.

Seattle-hagkerfið er með mest vaxandi tækni-samfélögum heimsins. Mörg fyrirtæki á litlu svæði. Ég geri ráð fyrir að samfélagið hjá Bungie sé alþjóðlegt, eða hvað?

„Samfélagið hjá Bungie er klárlega mjög alþjóðlegt. Við ráðum til okkar fólk sem skarar framúr á sínu sviði óháð uppruna eða þjóðerni. Seattle svæðið er almennt mjög alþjóðlegt þar sem önnur tækni­fyrirtæki eins og Google, Microsoft, Amazon og Facebook hafa svipaða mannauðs­stefnu og við og eru tugþúsundir að vinna hjá þessum fyrir­tækjum á svæðinu. Það eru einnig mörg önnur leikja­fyrirtæki allt í kring um okkur og sérstak­lega mikið af fyrir­tækjum sem einblína á notenda­miðaða hönnun og þróa vörur og þjónustu með það að markmiði að bæta notenda­upplifun. Seattle er einnig gríðar­lega spennandi staður að búa á þegar maður er áhuga­samur um allt tengt tækni, tölvu­leiki og afþreyingu. Hér eru árlega haldnar gríðar­lega margar ráðstefnur og aðdáenda­samkomur eins og PAX WEST og einnig eru mörg nýsköðunarfyrirtæki á svæðinu sem eru að þróa vörur og afþreyingar­efni tengt nýjustu tækni fyrir sýndar­veruleika. Skólarnir hérna eru frábærir. Elsta stelpan mín sem er 11 ára gömul er að læra um hönnun og hvernig ólíkar starfs­greinar þurfa að vinna í sameiningu til að þróa lausnir sem hjálpa samfélaginu. Allir nemendur í skólanum fá ferða­tölvu og hún er að læra á hugbúnað og vinnu­aðferðir sem ég lærði ekki um fyrr en ég sótti sérnám og fór út á vinnu­markaðinn,“ segir Örvar, og er ánægður með áherslurnar í skóla­starfi. „Í síðustu viku var ég að hjálpa henni með vefsíðu­gerð sem er skóla­verkefnið hennar. Nemendur eiga að kynna verkefnið sitt og svo gefa bekkja­félagarnir álit sitt og tillögur að betrumbætum. Bæði það að gefa álit og meðtaka það á réttan hátt er stór hluti af kennslunni. Þetta er svakalega spennandi allt saman og gríðar­lega áhugavert að innleiða í námsefni svo snemma á skóla­göngunni. Ég hef stundum verið grínast í henni á morgnanna að hún ætti kannski bara að mæta í Bungie og stýra hönnunar­teyminu þann daginn og ég fer í tímann hennar því þeir hljóma allir svo spennandi.“

Háskólasamfélagið styður við

Örvar segir einnig að eitt af lykil­atriðunum við svæðið sé öflugt háskóla­samfélag, ekki síst á sviði raun­greina og hönnar í tölvu­leikjum. University of Washington er stærsti skólinn, og er annálaður fyrir mikil gæði. „Það var áhugavert fyrir mig að bera saman muninn á því að vera í ráðningar­stjórnun fyrir teymi hér miðað við á Íslandi. Það er eflaust gríðar­lega erfitt að finna hæft fólk í störf á Íslandi þar sem úrvalið er ekki alltaf nægt og ekki hlaupið að því að sannfæra fólk um að flytja til Íslands, þó að við sem fæddumst þar höfum að sjálfsögðu alltaf sterkar taugar til landsins okkar fallega. CCP er í betri stöðu hvað þetta varðar en önnur íslensk fyrirtæki þar sem CCP er vel metið á alþjóða­vettvangi og margir sækja sérstak­lega eftir því að vinna fyrir CCP til að geta unnið við þróun á þekktum leik eins og EVE Online. Ég get ímyndað mér að ungt tækni­fyrirtæki á Íslandi sem er að þróa vöru sem ekki hefur verið gefin út eigi ansi erfitt með að sækja í öflugt reynslu­mikið fólk í þær stöður sem þarf til að koma vörunni þeirra á markað með góðum árangri,“ segir Örvar.

Hvað með Ísland?

Hvernig horfir tölvuleikja­iðnaðurinn á Íslandi við þér, héðan frá vestur­ströndinni?

„Skapandi greinar eru nokkuð framarlega á Íslandi miðað við hvað landið er lítið og iðnaðurinn ungur. Leikja­iðnaðurinn er ekki stór, en þó líklega mun stærri en önnur samfélög af sömu stærðar­gráðu. CCP hefur þar mikil áhrif sem og ný og spennandi leikja­fyrirtæki eins og Sólfar og Solid Clouds sem hafa sprottið upp frá hugviti sem að miklu leyti hófst í CCP. En stjórn­völd þurfa klárlega að styðja meira við bakið á skapandi greinum almennt með því að styðja sérstak­lega við þá sem vilja koma með slíkan rekstur inn í íslenskt hagkerfi og aðstoða við uppbyggingu fyrstu árin. Fyrirtæki á Íslandi eru að berjast við kerfið þegar þau loksins ná að finna hæft fólk í tækni­störf og skólar sem kenna hönnun, listir, nýmiðlun og hugbúnaðar­gerð þyrftu að leggja áherslu á að uppfæra námsefni stöðugt og virkja samstöðu og samvinnu milli skólanna til að tryggja að fólk sé í stakk búið til að vinna saman að vöruþróun strax að útskrift lokinni. Helstu áskoranirnar eru þegar fólk með ólíkan bakgrunn og hugmynda­fræði þarf að koma saman til að vinna sem heild að lausnum en hefur ekki endilega fengið þjálfun í samvinnu og hvernig eigi að vinna með ólíkum þróunar­sviðum. Það eru skólar í Banda­ríkjunum eins og Stanford sem hafa sérhæft námsefnið sitt að svokallaðri „hönnunar hugsun“ og eru fyrirtæki í skapandi greinum sem setja hönnuði í efstu stöðu­gildin að ryðja sér til rúms hér vestanhafs. Ég væri spenntur fyrir því að sjá vöru­hönnun, viðmóts­hönnun og hönnun á notenda­upplifun verða náms­kostur á heims­mælikvarða á Íslandi og gera Ísland að brautryðjanda í vöru­hönnun fyrir lausnir fram­tíðarinnar. Það er oft talað um að Ísland sé kjörinn staður til að prófa og þróa ýmsar þjónustur og lausnir því allir eru svo tækni­væddir og nýjunga­gjarnir og auðvelt að prófa lausnir á heilu samfélagi án mikils tilkostnaðar. Það er t.d. töluvert auðveldara að rannsaka hvort fleiri krakkar myndu sækja tækni­tengt nám ef boðið væri upp á forritun sem valfag í grunn­skólum á Íslandi heldur en það væri að prófa slíkt í öðrum löndum. Flestir sem sækja grunn­skóla á Íslandi munu velja sér framhaldsnám á sama svæði og því er hægt að mæla árangurinn. Ef svipuð rannsókn yrði gerð í Banda­ríkjunum væri mun erfiðara að halda utan um árangurinn þar sem börn flytja gjarnan á milli svæða. Umfangið er minna og samkvæmt þeim UX fræðum sem ég aðhyllist þá er ekki endilega nauðsynlegt að gera slíkar rann­sóknir á stórum hóp til að sannreyna hvort það beri árangur.“

Örvar segir að Ísland hafa mikla möguleika á því að verða brautryðjanda þegar kemur að því að finna lausnir sem virka fyrir fjöldann. Hann segir hönnuði geta haft mikil áhrif á mál til hins betra, og vill sjá breytingar sem miða að því að styrkja það sem er fyrir og framþróa það.

„Alþjóðleg fyrirtæki eins og Amazon eru sífellt að bæta við nýjum vörum og bráðum verður hægt að sækja alla þjónustu og neyslu sem hægt er að hugsa sér í gegnum slík fyrirtæki og allt þarf þetta að virka eins þæginlega og skilvirkt og hugsast getur og til þess þarf fagfólk með sérþekkingu sem byggir stöðugar prótótýpur og ítrar á hönnun þeirra þar til prófanir gefa til kynna að lausnin sé eins góð og hún getur orðið. Mögu­leikar íslendinga til að vera braut­ryðjandi á því sviði að finna lausnir sem mæta best þörfum og kröfum notenda eru miklir og væri ekki verra ef fengnir væru hönnuðir til að breyta þeirri notenda­upplifun sem fólk fer í gegnum þegar það sækir um vinnu á Íslandi, reynir að átta sig á því hvað það vill verða þegar það verður stórt eða þegar ákveða á hlutfall opinbers fjármagns til heið­brigðis- og mennta­mála. Hér vestanhafs hefur mikið verið talað fyrir því að þjónustu- og afþreyingar­fyrirtæki séu farsælli undir stjórn fólks með reynslu eða menntun tengt skapandi greinum. Á komandi árum munu sífellt fleiri fyrirtæki þurfa á mannauði að halda sem hefur sérhæft sig í skapandi hugsun, vöru­hönnun og notenda­upplifun. Við þurfum að vera tilbúin til að mæta þeirri kröfu. Það er á nægu að taka, og ungt fólk stendur á hliðar­línunni og bíður eftir að fá tækifæri til að sanna sig. Nýtum reynsluna úr fótboltanum og setjum upp plan sem tekur tíma að framkvæma og byggja upp en skilar miklu ef vel er að staðið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár