Ræturnar vökvaðar

Áhrifa­mikil upp­bygg­ing á Seattle-svæð­inu er ekki síst að þakka frum­kvöðlum sem ákváðu að byggja fyr­ir­tæki sín upp á svæð­inu.

Við fjöl­skyldan fluttum nýverið á vest­ur­strönd Banda­ríkj­anna. Við erum búsett í Kirkland, í útjaðri Seattle í Washington ríki. Það sveit­ar­fé­lag er oft efst á lista yfir ein­stök sveit­ar­fé­lög í Banda­ríkj­unum, þegar kemur að því hvar best sé að búa (Fínt að vita af þessum listum, þó erfitt sé að toppa Laug­ar­nesið. Það bíður eftir okkur síðar). Því til­heyra nú ríf­lega 87 þús­und íbúar, eftir sam­ein­ingu við nágranna í fyrra. Áður en til hennar kom voru íbúar 49 þús­und, sem telst nú afar lít­ill fjöl­býl­is­staður á alþjóð­lega mæli­kvarða.

Staley öskraði Grunge-bylgjuna

Frægasti mað­ur­inn sem komið hefur frá Kirkland er Layne Staley heit­inn, söngv­ari Alice in Chains. Ég hef öskrað með honum, eins og eflaust margir aðrir (Them Bones, I Stay Away...). Ekki síst Ágúst Örn vinur minn, sem greip Alice in Chains helj­ar­g­reipum þegar Staley keyrði Grunge-bylgj­una út frá Kirkland og yfir heim­inn allan, með félögum sínum í Nirvana, Pearl Jam, Soundgarden og fleiri sveitum. Allar hljóm­sveit­irnar eiga rætur hér á sama svæð­inu. Því er fagnað um þessar mundir að 25 ár eru frá því Grunge-bylgjan braust fram með öskrum, rifnum galla­buxum og síðu hári. Og skall á mér eins og mörgum öðrum á yfir tíu ára tíma­bili milli 1990 og 2000.

Hljóm­sveitin Temple of The Dog, for­veri Pearl Jam, þar sem Eddie Vedder og Chris Cornell syngja báðir, heldur afmæl­is­tón­leika 20. og 21. nóv­em­ber, í Paramount Theatre í Seattle, 2.800 manna stað þar sem Grunge-ið fór að heyr­ast einna fyrst.

Við hjónin höfum túlkað þetta sem inn­flutn­ings­partý okkur til heið­urs. Miða­verðið er reyndar þannig, að það má deila um hvort okkur sé boðið. Löngu upp­selt, en eft­ir­mark­að­ur­inn er að sýna miða á 489 Banda­ríkja­dali, um 65 þús­und krónur, ódýr­ast, en það fer hækk­andi. (Minna en dýr­ustu takka­skórnir frá Nike. Eða eitt­hvað.) Við finnum okkur kannski ein­hverjar afsak­anir fyrir því að fara í afmæl­is­veisl­una, hver veit.

Tækni og Asíuáhrif

Í fyrra­vetur vorum við í New York, eins og ég miðl­aði til les­enda Kjarnans í gegnum pistla, á vef Kjarnans og einnig í morg­un­út­varp­inu á RÚV.

New York er gjör­ó­lík Seatt­les­væð­inu, svo ekki sé meira sagt, nema hugs­an­lega þegar kemur að fólki og mannauði. Hér eins og þar, er afar áhrifa­mik­ill og magn­aður mann­lífs­suðu­pottur. Hin land­fræði- og menn­ing­ar­lega teng­ing aust­ur­strand­ar­innar við Evrópu, sem allir íbúar þar finna fyrir óbeint og beint, er ekki sýni­leg hér.

Vest­ur­ströndin er undir meiri áhrifum frá Asíu. Ekki aðeins vegna þess að sú strönd er nær Asíu (!) heldur hefur fólk frá Asíu, ekki síst Indlandi og Kína, sett mik­inn svip á Seattle-svæðið allt á und­an­förnum ára­tugum. Það hefur verið einn af lyk­il­þáttum þess að byggst hefur upp eitt sterkasta og magn­að­asta hag­kerfi í ver­öld­inni, hvorki meira né minna.

Eitt af því sem leigusal­inn sagði okkur, þegar við vorum að ganga frá samn­ingum um ný heim­kenni, var að flestir nágrannar okkar væru starfs­menn Amazon og Microsoft, og margir þeirra frá Indlandi. Það segir fólki kannski ein­hverja sögu.

Heimahagar áhrifamanna

En af hverju að segja hag­kerfið á Seattle-svæð­inu eitt það sterkasta í ver­öld­inni?

Sagan á bak við það er bæði löng og stutt, en þá má segja að hún teng­ist í seinni tíð ákvörð­unum þriggja frum­kvöðla. Bill Gates og Paul Allen, stofn­endur Microsoft árið 1975, og Jeff Bezos, stofn­anda Amazon. Þeir eru allir búsettir svæð­inu, og tengj­ast því svo rót­föstum böndum að þeir hafa ákveðið að stýra sínum fjár­fest­ingum og fyr­ir­tækjum frá svæð­inu. Gates og Allen eru upp­aldir á svæð­inu og fluttu starf­semi Microsoft fljót­lega í heima­hag­ana eftir að það var stofnað í Nýju-Mexíkó, en Bezos valdi svæðið sem góðan stað til að stofna Amazon.

Það er ekk­ert annað að baki ákvörð­un­inni um að hafa höf­uð­stöðvar Microsoft og Amazon hér á svæð­inu, en þessa ramma taug þeirra við svæðið. Rökrétt væri að hafa þau í Síli­kondalnum, myndi ein­hver segja, en eflaust má deila um það. Sér­stak­lega í ljósi þess hvernig úr hlut­unum hefur spil­ast. Án svæð­is­ins hefði sagan vafa­lítið orðið önnur.

Eftir því sem tím­inn hefur liðið hafa fyr­ir­tækin sjálf svo bein­línis orðið föst við svæðið og haft mikil áhrif til mót­unar vegna þess hve stór þau eru. Hjá Microsoft starfa 44 þús­und á Seattle svæð­inu, flestir í risa­vöxnum höf­uð­stöðvum fyr­ir­tæk­is­ins í Redmond, sem til­heyrir Seattle svæð­inu (Metropolitan-Seattle area). Þar búa aðeins 3,7 millj­ónir manna, sem telst lítið fyrir jafn þrótt­mikið hag­kerfi.

Amazon á landinu hans Allen

Amazon er með 30 þús­und starfs­menn í fullu starfi í sínum höf­uð­stöðvum í Seattle, og er fyr­ir­tækið stærsti vinnu­veit­and­inn inn í borg­inni sjálfri. Þúsundir vinna einnig í hluta­störfum. Land­eig­and­inn á svæð­inu þar sem hinar nýju risa­vöxnu höf­uð­stöðvar eru, er Paul nokkur Allen. Hann hefur óbeint tengt sig við ævin­týra­legan vöxt fyr­ir­tæk­is­ins í gegnum upp­bygg­ingu nýrra höf­uð­stöðva.

Stofn­andi Amazon, hinn 52 ára gamli Jeff Bezos, valdi svæðið til að stofna fyri­tækið, af því að þar var að finna mikið af tækni­mennt­uðu fólki og þá var einnig rót­gróin hefð fyrir kaffi­húsum og bóka­búðum. Þarna var sum sé skap­andi umhverfi og gott fólk (sú blanda klikkar sjaldn­ast). Hér var Starbucks stofnað og er fyr­ir­tækið enn með höf­uð­stöðvar sínar í Seattle og kaffi­hús á hverju horni.

Upp­haf­lega var Amazon hugsað sem bóka­búð á net­inu, en flest þekkjum við fram­haldið. Það sem fæst ekki á Amazon er lík­lega ekki til. Bezos keypti The Washington Post árið 2013, er eig­andi Blue Origin geimsku­tlu­fyr­ir­tæk­is­ins, og teng­ist fjöl­mörgum nýsköp­un­ar­fjár­fest­ingum í gegnum Bezos Expeditions. Eignir hans eru nú metnar á 67,3 millj­arða Banda­ríkja­dala og er hann í hópi áhrifa­mestu frum­kvöðla heims­ins, og jafn­framt ríkusta manna heims.

Einungis í fyrra réð Amazon 3.500 nýja starfs­menn inn í höf­uð­stöðv­arnar, mest í tækni- og stefnu­mót­un­ar­störf. Sumir segja að Amazon eigi eftir að verða stærsta fyr­ir­tæki ver­aldar, þar sem heims­yf­ir­ráð á sviði smá­sölu og net­verslun verða ekki svo langt undan. Það kemur í ljós hvort þetta gengur eftir.

Allen og söfnin

Þó Allen hafi fljótt slitið sam­starf­inu við Bill Gates, eftir að Microsoft var stofnað, þá er hann vell­auð­ugur og virkur fjár­festir, einkum á sviði tækni, rann­sókna og fast­eigna­starf­semi. Heild­ar­eignir hans eru metnar á 18 millj­arða Banda­ríkja­dala, sam­kvæmt Forbes, eða sem nemur um 2.200 millj­örðum króna.

Íslend­ingar muna kannski eftir nafn­inu frá því snekkja hans, Octupus, birtis út fyrir Reykja­vík. Hún er 126 metra löng, og þrett­ánda stærsta snekkja heims, og búin öllum helstu þæg­indum og meira til. Þar sem þykir sér­stakt við hana, fyrir utan glæsi­legt útlit, er full­kom­inn köf­un­ar­bún­aður til að stunda rann­sóknir í haf­inu og á hafs­botni.

Allen er þekktur á Seattle-svæð­inu fyrir að vera gjaf­mildur, en hann hefur komið að mörgum góð­gerð­ar­verk­efnum í gegnum tíð­ina. Einna þekkt­ust eru styrkir hans til fjöl­margra bóka­safna á svæð­inu. Þá gaf hann Seattle borg hið stór­kost­lega tón­list­ar­safn, The Experience, sem tekið var í notkun árið 2000. Nafnið er tengt einum þekktasta tón­list­ar­manni sem komið hefur frá Seattle, snill­ingnum Jimi Hendrix, sem lést 27 ára gam­all árið 1970. Á stuttum ferli sínum mark­aði hann djúp og var­an­leg spor í tón­list­ar­sög­una með ein­stökum gít­ar­hæfi­leikum sínum.

Fullir vasar fjár

Áhrifin af þeirri ákvörðun, að byggja Microsoft upp hér, eru gríð­ar­lega mikil og rætt um Microsoft-áhrifin (Microsoft Effect) í því sam­hengi. Umfangs­mikil sér­fræði­þjón­usta á svæð­inu, á ýmsum sviðum – lög­fræði, end­ur­skoðun, fjár­mála­þjón­ustu, stefnu­mótun, ferða­þjón­ustu (skíði, hjól­reiðar, flugu­veiði, klifur, göngur) og rann­sókna af ýmsu tagi – má bein­tengja við þá stað­reynd að fyr­ir­tækið er hér.

Fjár­magnið á svæð­inu er mikið, og fjöl­margir starf­andi fjár­festar, litlir og stóri, sem hér búa. Fjár­fest­inga­banka­armur Bank of America, Merril Lynch, er með um 25 millj­arða Banda­ríkja­dala í stýr­ingu á Seattle-svæð­inu, í gegnum þrjár skrif­stofur sínar. Það er upp­hæð sem nemur um það bil öllu íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu, en fyr­ir­tækið ein­blínir nær ein­göngu á auð­uga ein­stak­linga. Bara svo lítið dæmi sé nefnt, um mikið fjár­magn sem flæðir um hag­kerfi svæð­is­ins og merki sjást um í rekstri fyr­ir­tækja.

Fjár­hags­legur styrkur Microsoft er með ólík­indum, en um mitt þetta ár átti félagið rúm­lega 105 millj­arða Banda­ríkja­dala í lausu fé frá rekstri. Upphæð sem nemur um fimm­tíu­faldri árlegri lands­fram­leiðslu á Íslandi, um tólf þús­und millj­örðum. Aðeins Apple, með sína rúm­lega 200 millj­arða Banda­ríkja­dala sjóði, á meira þegar horft er á þennan mæli­kvarða á meðal bandrískra fyr­ir­tækja.

Nýverið var til­kynnt um 26,2 millj­arða kaup fyr­ir­tæk­is­ins á Linked-in, sem bíða sam­þykkis eft­ir­lits­að­ila, og fyrir tveimur árum keypti það Minecraft frá sænskum stof­nefndum á 2,5 millj­arð Banda­ríkja, eða rétt um 300 millj­arða króna. Það þykja í dag ein­stak­lega vel heppnuð kaup, þar sem Microsoft hefur umbreytt Minecraft hug­mynd­inni í tölvu­leikja­sam­fé­lag með ótal vöru­línum. Kaupin hafa fyrir löngu borgað sig og heldur Minecraft-ver­öldin áfram að stækka, ekki síst í X-box heimi fyr­ir­tæk­is­ins.

Starf­semin byggir þó á gömlum merg víð­tækrar þjón­ustu við ein­stak­linga og fyr­ir­tæki. Hún mallar áfram, og vext og dafnar frá ári til árs.

Gates hjónin og háleit markmið

Bill Gates er ekki lengur stjórn­ar­for­maður, eða sá sem heldur þráðunum í höndum sér hjá Microsoft. En hann er í hugum margra mað­ur­inn á bak við ris­ann Microsoft og bylt­ingu heim­il­is­tölv­unnar. Hann er rík­asti ein­stak­lingur heims, með eignir upp á ríf­lega 90 millj­arða Banda­ríkja­dala, sam­kvæmt lista Forbes. Hann hefur heitið því að gefa auð sinn í þró­unar- og rann­sókn­ar­verk­efni til að vinna gegn fátækt, sjúk­dómum og félags­legum erf­ið­leikum, einkum í Afríku.

Kjarninn í þess­ari vinnu hans og eig­in­konu hans, Melindu Gates, er í gegnum Bill and Melinda Gates Foundation. Höf­uð­stoðvar þeirra stofn­unar og rann­sókn­ar­set­urs eru í Seattle, nema hvað. Starf­semin þar vex hratt og hefur Bill Gates meðal ann­ars ákveðið að auka stór­kost­lega við star­femi sem styður við nýsköp­un­ar­starf á sviði orku­mála. Um þetta til­kynnti hann á Par­ís­ar­fund­inum í des­em­ber í fyrra, þar sem sam­komu­lag náð­ist um að draga úr mengun með það að leið­ar­ljósi að vinna gegn hlýnun jarðar, sem ríki hafa verið að stað­festa end­an­lega á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna, þar á meðal Ísland, þessa dag­ana. Gates hefur ein­sett sér að búa til breið­fylk­ingu frum­kvöðla og fjár­festa, sem ein­beita sér að því að auka nýt­ingu vist­vænna orku­gjafa og draga um leið úr notkun á tækni sem reiðir sig á kol og olíu.

Gates er almennt álit­inn með allra áhrifa­mestu mönnum sam­tím­ans.

Herinn, Boeing og háskólarnir

Hátæknin í Seattle-hag­kerf­inu á sér lengri sögu en inter­netið og tölv­urnar ná til. Stærsti vinnu­veit­and­inn á svæð­inu er flug­ris­inn Boeing. Hjá honum vinna 78 þús­und starfs­menn, hvorki meira né minna. Í gegnum súrt og sætt, og þekktar sveiflur í flug­iðn­aði, hefur fyr­ir­tækið byggt upp starf­semi sína á svæð­inu. Til að setja fjöld­ann í sam­hengi við íslenskan veru­leika, þá er heild­ar­fjöldi fólks á vinnu­mark­aði á Íslandi um 190 þús­und. Fyr­ir­tækið varð hund­rað ára í júlí síð­ast­liðnum, og allan tím­ann hefur hjartað í starf­sem­inni verið í Washington ríki.

Einn stærsti við­skipta­vinur Boeing í gegnum tíð­ina, Banda­ríkja­her, er næst stærsti vinnu­veit­and­inn á svæð­inu. Um 56 þús­und eru að störfum í einni stærstu her­stöð hers­ins í Banda­ríkj­unum, í um klukku­tíma akst­urs­fjar­lægð frá Seattle. Þar er Lewis-McGhord her­stöðin stað­sett. Þjónusta við hana er bæði umfangs­mikil, og mik­il­væg fyrir Seattle-svæðið.

Herinn hefur meðal ann­ars rekið þar stóra rann­sókn­ar­skrif­stofu þar sem fjar­skipta- og flug­bún­aður hefur verið þró­aður. Þá kemur sér vel að vera með risa­vaxið sam­fé­lag tækni­mennt­aðs fólks og stærsta flug­tækni­fyr­ir­tæki heims í grennd.

Annað sem lík­lega hjálpar til, er öfl­ugt háskóla­sam­fé­lag. Þar sem Uni­versity of Washington er stærstur með 25 þús­und starfs­menn og nem­ene­dur. Hann hefur lengi verið í hópi bestu háskóla Banda­ríkj­anna, einkum á sviði raun­vís­inda og tækni­mennt­unar af ýmsu tagi. Verk­fræði­deildin er ann­áluð fyrir mikil gæði.

Íslandstengingin í hruninu

Í febr­úar árið 2009, þegar alþjóða­mark­aðir voru í for­dæma­lausri lág­deyðu, þá ákvað SAS að leggja niður flug sitt til Seattle-svæð­is­ins og binda enda á 42 ára teng­ingu félags­ins við svæðið. Þá stökk Icelandair til, mitt í fjár­hags­erf­ið­leikum og end­ur­skipu­lagn­ingu eftir hrunið á Íslandi, og hóf að fljúga til borg­ar­ar­innar skömmu síðar. Í umfjöllun hins ágæta ferða­vefs, turisti.is, segir að þetta hafi verið djörf ákvörðun sem hafi heppn­ast vel. Margar ferðir í viku eru nú farnar og hefur sæta­nýt­ingin verið góð frá byrjun.

Mín til­finn­ing er þó sú, að hér sé hægt að gera enn betur þegar kemur að mark­aðs­setn­ingu fyrir Ísland. Mikið af fólki með góðan kaup­mátt býr á svæð­inu og vöxt­ur­inn í kort­unum hlýtur að virka heill­andi fyrir til dæmis fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu og tækni­geir­anum, en einnig í öðrum geirum.

Íslensk fyr­ir­tæki hafa lengi verið með teng­ingu eða starf­semi hér, meðal ann­ars Marel og Hamp­iðjan, og einnig má nefna Greenqloud sem á dög­unum fékk nýja fjár­mögnun upp á um 500 millj­ónir frá fjár­fest­inum Kelly Ireland.

Sjáv­ar­út­veg­ur­inn ætti að geta unnið sig vel inn í Seattle-hag­kerfið, og þaðan í ýmsar áttir, hefði maður haldið. Það er meira en þegar hefur gerst. Banda­ríkja­menn eru víð­ast hvar óra­fjarri íslenskum fyr­ir­tækjum þegar kemur að þekk­ingu á sjáv­ar­út­vegi og hlið­ar­greinum hans, eins ótrú­lega og það hljómar. Í Seattle er stór og mikil höfn og umfang ýmissar hafn­ar­sæk­innar starf­semi vex stöðugt. Kannski eru enn fleiri tæki­færi í því að byggja hér upp til fram­tíðar, fyrir íslenskan sjáv­ar­út­veg? Manni sýn­ist ágæt­is­byrj­un­ar­punktur vera sá, að kenna Banda­ríkja­mönnum að borða sjáv­ar­fang, annað en sushi. Þeir virð­ast ekki kunna það.

Ekkert kemur í staðinn fyrir einkaframtakið

Alveg sama hvað stjórn­mála­menn reyna, þá geta þeir ekki búið til jafn tær inn­spýt­ing­ar­á­hrif og djarfir og klókir frum­kvöðlar, þegar kemur að því að breyta hlutum og fram­þróa það sem fyrir er. Það er mín ein­læga skoðun. Seattle-hag­kerfið - með Geim­nál­ina (Space Needle) sem helsta kenni­leiti - er ágætt dæmi hvaða kraftar geta verið leystir úr læð­ingi ef fjár­festar fylkja sér að baki snjöllu fólki, sem jafn­framt er með sam­fé­lags­hugsun og heil­indi í fartesk­inu. Sem er til­búið að vökva ræt­urnar í umhverfi sínu, öllum til hags­bóta, og stunda við­skipti eftir bestu mögu­legu getu.

Hér verður von­andi gott að fá lífs­reynslu, kynn­ast nýjum hlutum og tæki­færum, og segja frá því sem á vegi manns verður eða kemur upp í hug­ann.

Næsti pist­ill héðan verður um þann geira sem vex hrað­ast á svæð­inu þessi miss­erin. Ráð­stefnur eru haldnar um hann og fjár­festar hafa mik­inn áhuga. Það er hinn lög­legi kanna­bis­iðn­aður í Washington ríki. Samtök hags­muna­að­ila í kanna­bis­iðn­aðum (svipað og Samtök atvinnu­lífs­ins, bara miklu stærri) eru þar mið­punktur hags­muna­gæslu í grósku­miklum iðn­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár