Langhæstu launin í ensku deildinni, Danir borga best í Skandinavíu

Leikmenn ensku úrvalds­deildarinnar eru með langhæstu laun allra knattspyrnu­manna. Meðallaun úrsvals­deildar­leikmanns í Englandi eru 43,717 pund, um 8,5 milljónir króna, á viku. Árslaun þeirra eru því að meðaltali tæplega 2,3 milljónir punda, eða um 440 milljónir króna. Næst hæstu launin eru greidd í Þýsku Bundesligunni. Leikmenn þar fá um 2/3 hluta af því sem leik­mennirnir í ensku deildinni fá greitt. Þetta kemur fram í samantekt sem Daily Mail birti fyrir skemmstu.

Wayne Rooney, sóknar­maður Manchester United, er á meðal hæst launuðustu leikmanna heims. Hann fær um 300 þúsund pund, rúmlega 58 milljónir króna, á viku frá félagið sínu.

Wayne Rooney, sóknarmaður Manchester United, er á meðal hæst launuðustu leikmanna heims. Hann fær um 300 þúsund pund, rúmlega 58 milljónir króna, á viku frá félagið sínu.
Wayne Rooney, sókn­ar­maður Manchester United, er á meðal hæst laun­uð­ustu leik­manna heims. Hann fær um 300 þús­und pund, rúm­lega 58 millj­ónir króna, á viku frá félagið sínu.

Hver leikmaður í ensku úrvals­deildinni þénar því um 1,2 milljónir króna á hverjum degi, eða um 36,5 milljónir króna á mánuði. Reglu­leg mánaðar­laun full­vinn­andi launa­manna á ís­lensk­um vinnu­markaði voru 436 þúsund krón­ur að meðaltali árið 2013. Það tekur því meðal­manninn á Íslandi um 84 mánuði að vinna sér inn mánaðar­laun meðal­leikmanns í ensku úrvals­deildinni.

Einn íslenskur leikmaður leikur í efstu deild í Englandi. Hann heitir Gylfi Sigurðsson og leikur með Swansea.

Danir borga best í Skandinavíu


Meðalaun leik­manna í þýsku Bundeslíg­unni eru um 5,4 millj­ónir króna á viku, eða um 281 millj­ónir króna á viku. Laun leik­manna þar eru lítið eitt hærri en með­al­laun leik­manna í Serie A á Ítalíu (4,9 millj­ónir króna á viku) og í La Liga á Spáni (4,5 millj­ónir króna).

Í fimmta sætinu er síðan efsta deild í Frakk­landi þar sem hið moldríka PSG-lið spilar sinn fótbolta. Rússneska deildin fylgir þar á eftir og hæstlaunaðasta knattspyrnu­deild utan Evrópu, sú brasilíska, situr í sjöunda sætinu. Þar á eftir kemur síðan næstefsta deildin í Englandi, sem nefnist Championship-deildin.

Af skandinavísku deildunum borgar danska Superligan best, eða um 550 þúsund krónur á viku. Hin norska Tippeligaen er ekki langt undan en meðal­vikulaun leikmanna í henni eru um 430 þúsund á viku. Lið í hinni sænsku Allsvenskan borga töluvert minna að meðaltali, eða um 324 þúsund krónur á viku.

Sú deild sem rekur lestina í samantekt Daily Mail, og situr í 34. sæti á listanum, er sú nígeríska. Þar fá leikmenn einungis um 25 þúsund krónur að meðaltali á viku. Saman­tektin náði ekki yfir hina íslensku Pepsí-deild.

Hægt er að sjá listann í heild sinn hér að neðan:

dailymail
dailymail
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár