Tækifærið kom með tónlistarmyndbandinu

Líf Kristins tók aðra stefnu þegar kunn­ingi hans bað hann um að vinna með sér þrátt fyrir að hafa enga reynslu.

Mig langar að tala um verk­efni sem ég tók þátt í fyrir tveimur árum sem hefur ennþá áhrif á líf mitt í dag. Ég gerði leik­mynd fyrir tón­list­ar­vídeó sem heitir I'd love eftir tón­list­ar­mann­inn Auður. 

Þetta gerð­ist í lok sum­ars eða byrjun hausts 2017. Á þeim tíma var ég í Mynd­lista­skól­anum í Reykja­vík og hafði ein­ungis verið að sinna skóla­verk­efnum en hafði rosa­legan áhuga á leik­mynda­gerð.  Ég þekkti aðeins til Auðuns, við vorum kunn­ingjar. Hann hafði heyrt útundan sér að ég væri að daðra við ein­hvers konar smíða­vinnu og leik­mynda­stúss. 

Hann hafði sam­band við mig eftir að ég var áhorf­andi á sýn­ingu hjá honum hjá Improv Ísland í Tjarn­ar­bíói. Hann nálg­að­ist mig eftir sýn­ing­una með hug­mynd að tón­list­ar­víd­eói og að hann lang­aði mikið að fram­kvæma hana. Hug­myndin var stór í sniðum og hann vissi ekki alveg hvernig hann ætti að fara að því að fram­kvæma hana en vildi fá mig með. Við tókum svo næst fund og svo varð verk­efnið að veru­leika og heppn­að­ist ótrú­lega vel. 

Í kjöl­farið á því fékk ég fjöld­ann allan af öðrum tæki­færum og varð fljót­lega orð­inn starf­andi leik­mynda­hönn­uður. Ég hef fengið stærri og stærri verk­efni með tím­anum og ég upp­lifi eins og það hafi allt með þetta tón­list­ar­vídeó að gera. 

Svo eru líka öll tengslin og vin­áttan sem hefur skap­ast. Ég og Auðunn kynnt­umst ótrú­lega vel í þessu verk­efni og nú erum við mjög nánir, jafn­vel bestu vinir, og störfum ennþá saman í dag. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár