Fyrsti þingfundur ársins í dag – Mótmælendur ætla að láta í sér heyra

Fyrsti þing­fundur á Alþingi hefst í dag eftir jóla­frí og munu for­menn stjórn­mála­flokk­anna eða stað­genglar þeirra taka til máls. Við til­efnið verður blásið til mót­mæla þar sem þess er meðal ann­ars kraf­ist að sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra segi af sér.

Efnt var til fyrstu mótmæla þann 23. nóvember 2019 eftir að Samherjamálið komst upp.
Efnt var til fyrstu mót­mæla þann 23. nóv­em­ber 2019 eftir að Sam­herj­a­málið komst upp. Mynd: Bára Huld Beck

Alþingi fundar á ný eftir jóla­hlé í dag klukkan þrjú síð­degis. Í upp­hafi fundar mun for­sæt­is­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dóttir, lesa for­seta­bréf um fram­halds­fundi Alþingis. Verður fundi síðan frestað til klukkan fjögur. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá skrif­stofu Alþingis í dag.

Þegar þing­fundur hefst að nýju verður í upp­hafi minnst lát­ins alþing­is­manns, Guðrúnar Ögmunds­dóttur. Að venju verður gert nokk­urra mín­útna hlé að loknum lestri minn­ing­ar­orða. Þá les for­seti til­kynn­ingar og síðan hefst umræða um stöð­una í stjórn­málum í byrjun árs og verk­efnin framundan, að því er fram kemur í til­kynn­ing­unni.

Búast má við því að nokkur mál muni verða meira áber­andi en önnur á vor­þingi. Til að mynda verður þings­á­lykt­un­ar­til­laga um áætlun um vernd og orku­nýt­ingu land­svæða, þriðji áfangi ramma­á­ætl­unar, lögð fram á Alþingi í febr­úar næst­kom­andi. Um óbreytta til­lögu er að ræða frá því að hún var fyrst lögð fram þing­vet­ur­inn 2015 til 2016. Einnig verður fjöl­miðla­frum­varp Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, tekið fyrir en tölu­verð and­staða er við það innan þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Jafn­framt má búast við því tek­ist verði á um frum­varp um hálend­is­þjóð­garð sem Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, leggur fram um leið og þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um ramma­á­ætlun.

Til þess að ræða stöð­una í stjórn­málum á nýju ári taka for­menn stjórn­mála­flokk­anna eða stað­genglar þeirra til máls á þing­fund­inum í dag og er ræðu­tími tíu mín­útur. Andsvör eru leyfð og réttur rýmk­aður þannig að einn frá hverjum stjórn­ar­and­stöðu­flokki getur veitt and­svar við ræður for­manna stjórn­ar­flokk­anna.

„Spillinguna burt! Auðlindirnar í okkar hendur!“

Í til­efni þess að þing kemur saman á nýju ári mun Stjórn­ar­skrár­fé­lagið og Samtök kvenna um nýja stjórn­ar­skrá mæta með trommuslætti við Alþing­is­húsið í dag klukkan fimm.

„Við mætum þegar þing kemur aftur saman eftir hlé og látum í okkur heyra! Viljum við að arður af auð­lind­unum okkar fari í vasa fárra ein­stak­linga, sem nýta þá til þess að kúga okkur og arð­ræna – eða viljum við nýta arð­inn af þeim í hag almenn­ings? Viljum við gott heil­brigð­is­kerfi sem hefur burði til þess að hlúa að okkur þegar við veikj­umst? Viljum við gott mennta­kerfi sem eflir okkur sem sam­fé­lag? Viljum við styðja betur við aðgerðir gegn lofts­lags­breyt­ingum? Viljum við tryggja að allir geti lifað með reisn? Viljum við Nýja stjórn­ar­skrá sem færir okkur spill­ing­ar­varnir, eykur gagn­sæi í stjórn­sýslu, eflir fjöl­miðla, eykur vald almenn­ings og vernd nátt­úr­unnar – og umfram allt færir okkur auð­lind­irnar í okkar hendur?“ er spurt á við­burða­síðu Lýðræði ekki auð­ræði.

Á mót­mæla­fund­inum verður þess kraf­ist að sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ann, Kristján Þór Júl­í­us­son, segi taf­ar­laust af sér emb­ætti, að Alþingi lög­festi nýja og end­ur­skoð­aða stjórn­ar­skrá sem lands­menn sömdu sér og sam­þykktu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu árið 2012 – og með því auð­linda­á­kvæði sem kjós­endur sam­þykktu – og að arður af nýt­ingu sam­eig­in­legra auð­linda lands­manna renni í sjóði almenn­ings til upp­bygg­ingar sam­fé­lags­ins og til að tryggja mann­sæm­andi lífs­kjör allra.

Katrín Odds­dóttir, for­maður Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins, segir í stöðu­upp­færslu á Facebook að trommu­slátt­ur­inn síðar í dag sé til að minna Alþingi á kröfur þús­unda mót­mæl­enda á Aust­ur­velli fyrir ára­mót. Kröfunum verði haldið hátt á loft á nýja árinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár