Áskrifendafjöldi Netflix undir væntingum, gengið hríðfellur

Virði hluta­bréfa í Netflix hríðféll í lok síðustu viku eftir að afþreyingar­risinn tilkynnti að fjölgun áskrifenda hans hafi verið undir væntingum á síðasta ársfjórðungi. Netflix stefnir á að vera með 57 milljón notendur út um allan heim í lok þessa árs, samkvæmt The Verge.

Unnið er að opna fyrir þjónustu Netflix hérlendis.

Áskrifendur færri en væntingar stóðu til


Áskrif­endur Netflix voru 53,1 milljón í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins. Þeim fjölg­aði um þrjár millj­ónir á þriðja árs­fjórð­ungi 2014. Þegar Reed Hastings, for­stjóri Netflix, kynnti nið­ur­stöður þriðja árs­fjórð­ungs í síð­ustu viku þá við­ur­kenndi hann að fjölgun áskrif­enda hefði verið lægri en bæði áætl­anir félags­ins og vænt­ingar fjár­festa höfðu gert ráð fyrir. Hann væntir þess að áskrif­end­urnir verði orðnir 57 millj­ónir í lok þessa árs. Tekjur Netflix voru hins vegar í takt við vænt­ingar á árs­fjórð­ungnum.

Spár greiningar­aðila höfðu gert ráð fyrir að áskrifendur Netflix í Banda­ríkjunum yrðu 37,6 milljónir í lok september, en raunin varð sú að þeir voru um 400 þúsund færri. Utan Banda­ríkjanna var búist við að fjöldi áskrifenda myndi verða tæplega 16,2 milljónir í lok þriðja ársfjórðungs, en raunin var 15,8 milljónir.

Eftir að tilkynnt var um þessa niður­stöðu hrundu hlutabréf í Netflix, en þau eru skráð í Nasdaq-markaðinn í New York. Alls féll virði bréfanna um 26 prósent daginn eftir að tilkynnt var um niður­stöðuna. Sú staða var enn uppi þegar mörkuðum var lokað á föstudag.

Vinna að uppsetningu á Íslandi


Netflix vinnur nú að því að opna fyrir þjón­ustu sína hér­lendis. Nútíminn greindi frá því í síð­ustu viku. Alls eru not­endur Netflix á Íslandi nú þegar yfir 20 þús­und tals­ins, þrátt fyrir að félagið bjóði ekki upp á þjón­ust­una á íslenskum mark­aði. Ýmsar leiðir eru til þess að nálg­ast hana með því að skrá not­and­ann í öðru landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár