Sjúklingar láta fresta aðgerðum vegna kostnaðar: „Tvískipt heilbrigðiskerfi í mótun“

Sigur­björg Sigur­geirsdóttir stjórnsýslu­fræðingur segir að ríkið svelti opinbera geirann og semji við einka­aðila.

Sjúklingur sem gengst undir aðgerð vegna æðahnúta þarf að greiða tæplega 78 þúsund krónur úr eigin vasa. Æðahnúta­aðgerðir eru ekki lengur gerðar á sjúkra­húsum heldur á einka­stofum og greiða Sjúkra­tryggingar Íslands aðeins hluta kostnaðarins.

Frá þessu greindi frétta­stofa RÚV á dögunum, en dæmi eru um að sjúklingar fresti því að gangast undir æðahnúta­aðgerðir vegna kostnaðarins.

Sigur­björg Sigur­geirsdóttir stjórnsýslu­fræðingur, sem stundað hefur rann­sóknir á íslenska heilbrigðis­kerfinu, hefur áhyggjur af þróuninni og veltir því fyrir sér hvort tvískipt heilbrigðis­kerfi sé í mótun.

„Ríkið sveltir opinbera þjónustu og
semur við einka­vædda þjónustu“

„Ríkið sveltir opinbera þjónustu og semur við einka­vædda þjónustu, en þó þannig að aðeins efnameiri geta keypt þann hluta þjónustunnar sem framkvæmd er með nýjustu tækni og lágmarks óþægindum, þar sem ekki er samið um þann hluta aðgerðarinnar,“ skrifar Sigur­björg á Facebook vegna frétta af æðahnúta­aðgerðunum og þeim kostnaði sem fellur á sjúklinga. 

„Þeir sem eru betur settir í samfélaginu njóta fram­faranna, ekki almenningur. Ójöfnuðurinn innan þjónustunnar eykst og sú aukning heldur áfram að gerast meðan við horfum aðgerðar­laus á. Þetta er tvískipt heilbrigðis­kerfi í mótun.“ 

Kristján Þór Júlíusson
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðis­ráðherra

Stefnt að auknum einkarekstri

Eins og Stundin fjallaði nýlega um bendir margt til þess að hlutur einka­rekstrar í íslenska heilbrigðis­kerfinu muni fara vaxandi á næstu árum. Stundin hefur heimildir fyrir því að heilbrigðis­yfirvöld séu að kanna hvort hugur lækna sem starfa á heilsu­gæslu­stöðvum liggi til þess að taka við rekstri þeirra af íslenska ríkinu. Heilsu­gæslu­stöðvarnar myndu þá áfram vera fjár­magnaðar af íslenska ríkinu en reknar af starfs­mönnum þeirra.

Í sameiginlegri yfir­lýsingu frá ráðherrum ríkis­stjórnarinnar, Lækna­félagi Íslands og Skurð­læknafélagi Íslands sem send var út 8. janúar síðastliðinn stendur til að fram fari „heildstæð skoðun á skipulagi, uppbyggingu og fjár­mögnun heilbrigðis­kerfisins“ þar sem opnað verður fyrir „möguleika á
fjöl­breyttum rekstrar­formum“.

„Miðað er við að opnað sé fyrir möguleika á fjöl­breyttum rekstrar­formum sem byggi á virkri þjónustu- og verkefna­stýringu, skýrum gæða­kröfum samhliða jafnræði í greiðslum óháð rekstrar­formi,“ sagði Kristján Þór Júlíusson heilbrigðis­ráðherra nýlega í svari við fyrir­spurn Stundarinnar um málefni heilbrigðis­kerfisins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkra­trygginga með einka­rekstri í heilbrigðis­kerfinu

Willum Þór Þórsson heilbrigðis­ráðherra hefur staðið fyrir stór­aukinni einka­væðingu í heilbrigðis­kerfinu frá því að hann tók við starfinu. Eftirlit með þeim fjármunum sem fara frá ríkinu til einka­aðila hefur samhliða því ekki verið aukið. Willum Þór svaraði spurningum um meðal annars á Alþingi um miðjan mánuðinn.
Fréttir

Hjúkrunar­heimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu

Frá árinu 2009 hefur hjúkrunar­heimilið Sóltún fengið tæplega 20 milljarða króna frá íslenskra ríkinu. Um 90 prósent af tekjum Sóltúns koma frá ríkinu. Eigendurnir hafa tekið á þriðja milljarð króna út úr rekstrinum með því að selja fasteignir og lóðir og lækka hlutafé fyrir­tækisins. Allur reksturinn byggir hins vegar á umdeildum samningi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár