Lýsir úthlutun lóðar til einkasjúkrahúss sem atvinnuþróunaraðstoð Mosfellsbæjar við huldumenn með óljósa eignastöðu

Fulltrúi Íbúa­hreyfingarinnar í Mosfellsbæ gagnrýnir harðlega áform um einka­sjúkrahús.

Fyrsti fundur bæjar­stjórnar Mosfells­bæjar eftir sumarfrí stendur nú yfir og hefur Sigrún Páls­dóttir, fulltrúi Íbúa­hreyfingarinnar bókað harða gagnrýni á vinnu­brögð fulltrúa D- og S-lista í bæjarráði vegna úthlutunar lóða til einka­sjúkrahúss og hótels með þyrlu­palli. 

„Bæjar­fulltrúi Íbúa­hreyfingarinnar átelur þau vinnu­brögð fulltrúa D- og S-lista í bæjarráði Mosfells­bæjar harðlega að hafa í sumarfríi bæjar­stjórnar úthlutað óþekktum aðilum í trássi við eðlilega verkferla samtals hundrað og tuttugu þúsund m2 af landi Mosfells­bæjar til eignar undir þrjátíu þúsund m2 einka­sjúkrahús og -hótel með þyrlu­palli,“ segir í bókuninni sem Stundin hefur undir höndum.

Fram kemur að handhöfum leyfist að veðsetja lóðirnar að fengnu óskilgreindu leyfi Mosfells­bæjar og einnig kaup­réttinn. Engin gögn hafi fylgt málinu sem bendi til forvinnu af neinu tagi.

„Engin áreiðanleika­könnun var gerð á því hvort um væri að ræða aðila sem væru traustsins verðir; engin greinar­gerð viðskipta­banka um fjárhags­lega burði þeirra til að ráðast í verkefni af stærðar­gráðunni 50 milljarðar króna; engir útreikningar á arðsemi verk­efnisins fyrir Mosfellinga; engar upplýsingar um umhverfis­áhrif; ekkert samráð við heilbrigðis­yfirvöld, heldur ekki íbúa og engin fagleg álit stjórnsýslu­stofnana. Lýðræðis­legum stjórnsýslu­þætti undir­búnings var hreinlega sleppt,“ segir í bókuninni.

Þá kemur fram að við lestur samningsins vakni grunur um að aðilarnir sem um ræðir hafi ekki fjármagn til að greiða gatnagerðar­gjöld nema þeir fái leyfi til að veðsetja landið.

„Landið er líklega það verðmikið að þeir geta líka tekið lán út á það til að fjármagna kostnað við að gera það byggingar­hæft. Að því loknu geta þeir veðsett kaup­réttinn. Samningurinn bendir til þess að þetta séu aðilar með hafa hugmynd en lítið sem ekkert eigið fé. Það má teljast með öllu óábyrgt af bæjarráði að afhenda óþekktum, erlendum aðilum verðmætar eignir sveitar­félagsins. Sá möguleiki er raun­verulegur að landið komist í hendur þriðja aðila í gegnum veðsetningar og að sá aðili vilji síðan koma landinu í verð fyrir sem mestan pening, án tillits til hagsmuna sveitar­félagsins. Það gengur þvert á stefnu sveitar­félaga að selja land sem þau eiga.“

Telur fulltrúi Íbúa­hreyfingarinnar að samningurinn verði vart skilinn öðruvísi en sem atvinnu­þróunar­aðstoð Mosfells­bæjar við aðila sem bæjarráð viti ekki hverjir eru og hafi ekki sýnt fram á að hafa neitt eigið fé, hvað þá trúverðug­leika eða burði til að standa í framkvæmdum upp á 50 milljarða. Í því sambandi veki athygli að þeir þurfi ekki að framvísa viðskipta­áætlun fyrr en 1. desember 2017. „Hér er um að ræða dýrmætt land í eigu Mosfells­bæjar sem látið er af hendi gegn vægu verði og fyrir starfsemi sem gengur þvert á vilja þjóðarinnar og stefnu stjórn­valda í heilbrigðis­málum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkra­trygginga með einka­rekstri í heilbrigðis­kerfinu

Willum Þór Þórsson heilbrigðis­ráðherra hefur staðið fyrir stór­aukinni einka­væðingu í heilbrigðis­kerfinu frá því að hann tók við starfinu. Eftirlit með þeim fjármunum sem fara frá ríkinu til einka­aðila hefur samhliða því ekki verið aukið. Willum Þór svaraði spurningum um meðal annars á Alþingi um miðjan mánuðinn.
Fréttir

Hjúkrunar­heimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu

Frá árinu 2009 hefur hjúkrunar­heimilið Sóltún fengið tæplega 20 milljarða króna frá íslenskra ríkinu. Um 90 prósent af tekjum Sóltúns koma frá ríkinu. Eigendurnir hafa tekið á þriðja milljarð króna út úr rekstrinum með því að selja fasteignir og lóðir og lækka hlutafé fyrir­tækisins. Allur reksturinn byggir hins vegar á umdeildum samningi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár