PCC fær starfsleyfi fyrir rekstri kísilvers á Bakka

Umhverfis­stofnun hefur veitt fyrir­tækinu PCC starfs­leyfi fyrir rekstri kísilvers. Heimild verður til fram­leiðslu á allt að 66 þúsund tonnum á ári.

Umhverfis­stofnun hefur gefið úr starfs­leyfi fyrir PCC BakkiSilicon hf. Fyrir­tækið hyggst hefja fram­leiðslu á hrákísli í nýbyggðri verksmiðju á iðnaðar­svæðinu á Bakka í Norður­þingi. Þar á að framleiðla meira en 98,5 prósent hreinan kísill. Veitt er heimild til fram­leiðslu á allt að 66 þúsund tonnum á ári.

Starfs­leyfið öðlast þegar gildi og gildir til 8. nóvember 2033. Ákvörðun Umhverfis­stofnunar um útgáfu starfs­leyfis er kæranleg til úrskurðar­nefndar umhverfis- og auðlinda­mála.

Í frétt á vef Umhverfis­stofnunar segir að ein umsögn hafi borist um starfs­leyfi tillögu fyrir­tækisins. Hún barst frá Landvernd. „Umhverfis­stofnun ákvað að bera einn lið umsagnarinnar undir Skipulags­stofnun sem fjallaði um meinta annmarka á áliti hennar. Þar var einkum fjallað um sjónarmið samtak­anna um að tilteknum atriðum hafi verið sleppt í mati á umhverfis­áhrifum. Í megin­atriðum var svar Skipulags­stofnunar þess efnis að umfjöllun hennar hafi farið rétt fram samkvæmt lögum. Þá var umsögnin frá Landvernd send til fyrir­tækisins sem ákvað að svara henni sérstak­lega fyrir sitt leyti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár