Hæstiréttur: MS misnotaði markaðsráðandi stöðu og á að greiða 480 milljónir í ríkissjóð

Tæplega áratuga­langri deilu, sem hófst þegar fyrr­verandi forstjóri Mjólku fékk óvart sendan reikning sem hann átti ekki að fá, er lokið. Niður­staða æðsta dómstóls landsins er að Mjólkur­samsalan hafi brotið alvarlega gegn samkeppnis­lögum.

Mjólkursamsalan er í markaðsráðandi stöðu hérlendis.
Mjólk­ur­sam­salan er í mark­aðs­ráð­andi stöðu hér­lendis. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hæstiréttur Íslands komst í dag að þeirri niður­stöðu að Mjólkur­samsalan ehf. (MS) hafi misnotað markaðs­ráðandi stöðu sína og mismunað viðskipta­aðilum sínum með því að að selja hrámjólk til vinnslu mjólkur­afurða á hærra verði til keppinauta en til eigin framleiðslu­deildar og tengdra aðila. MS var gert að greiða alls 480 milljónir króna í ríkis­sjóðs vegna þeirra samkeppnis­laga­brota.

Með þessu staðfesti Hæstiréttur þá niður­stöðu sem fengist hafði í málið bæði í héraði og fyrir Lands­réttar. Í dómi Hæstaréttar segir að telja verði brot MS gegn samkeppnis­lögum alvarlegt „auk þess sem það stóð lengi og var augljós­lega mjög til þess fallið að raska samkeppnis­stöðu. Þá laut það að mikil­vægri neyslu­vöru og snerti á þann hátt almenning í landinu.“

Hægt er að lesa dóm Hæstaréttar í málinu í heild sinni hér.

Komst óvænt yfir reikning

Sam­keppn­is­eft­ir­litið kom­st að þeirri niður­stöðu að MS hefði brotið mjög alvarlega gegn samkeppnis­lögum með athæfi sínu í september 2014. Málið fór þaðan til áfrýjunar­nefndar samkeppnis­mála og svo aftur til efnis­meðferðar hjá eftirlitinu. Í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins frá árinu 2016 sagði að hátt­semi MS, sem seldi Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga hrá­mjólk á lægra verði en öðrum á mark­aði, hefði verið til þess fallin að veita þeim veru­legt sam­keppn­is­for­skot.

Upp komst um þessa hátt­semi MS fyrir hálf­gerða slysni. Árið 2012 fékk Ólafur M. Magn­ús­son, sem áður stóð í stafni hjá Mjólku, sendan reikn­ing frá MS sem var stíl­aður á Mjólku II þegar hann sjálfur var byrj­aður með KÚ, sem einnig var að kaupa hrá­mjólk af MS.

Þá komst hann að því að MS var að selja KS hrá­mjólk­ina á nokkuð lægra verði en honum sjálf­um. Í kjöl­farið til­kynnti hann það til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sem fór að skoða mál­ið.

Stofn­endur og fyrrum eig­endur Mjólku stefndu MS vegna málsins í fyrra­sumar og fóru fram á að MS við­ur­kenni skaða­bóta­skyldu sína gagn­vart þeim.

MS segist hafa verið í góðri trú

Í tilkynningu frá MS vegna málsins segir að fyrir­tækið hafi verið „í góðri trú og taldi sig vera að vinna í samræmi við lög“ með viðskipta­háttum sínum.

Þegar málið hafi komið upp fyrir tæpum áratug síðan hafi skipulagi og framkvæmd á samstarfi afurða­stöðva í mjólkur­iðnaði og sölu á hrámjólk til aðila utan samstarfsins verið breytt. „Dóms­niðurstaðan snýr því að afmörkuðum ágreiningi um túlkun laga í liðnum tíma, en hefur ekki bein áhrif á starfsemina í dag. Við blasir að hagræðing í mjólkur­iðnaði hefur náð þeim markmiðum sem að var stefnt með laga­breytingum sem heimiluðu verka­skiptingu og samstarf afurða­stöðva í mjólkur­iðnaði. Þær breytingar eru forsenda framleiðni­aukningar sem skilað hefur milljarða króna ávinningi til samfélagsins á hverju ári.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár