Össur: „Getur þetta endað nema á einn veg?“

Össur Skarp­héðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, spyr að því að Facebook síðu sinni í dag, hvort að sú staðreynd að Rósa Björk Brynjólfs­dóttir, sem nú er orðinn framkvæmda­stjóri þing­flokks Vinstri grænna, og Kristján Guy Burgess, fyrr­verandi aðstoðar­maður Össurar, orðinn framkvæmda­stjóri Samfylkinngar, þýði ekki að hlutirnir geti aðeins farið „nema á einn veg?“.

„Rósa Björk Brynjólfs­dóttir tók við í dag sem framkvæmda­stjóri þing­flokks Vinstri-Grænna. Áður var búið að tikynna að sambýlis­maður hennar, Kristján Guy Burgess, hafi verið ráðinn framkvæmda­stjóri Samfylkingarinnar. Getur þetta endað nema á einn veg...?“ segir Össur á Facebook síðu sinni. Rósa Björk og Kristján Guy búa saman og eiga saman tvö börn.

Nokkur umræða hefur verið um það undan­farna mánuði, og raunar alveg frá því fyrir kosningarnar 2013, að Samfylkingin og VG sameini krafta sína með sameinuðu framboði á vinstri væng stjórn­málanna. Ekkert hefur formlegt samtal hefur átt sér stað um þessi atriði á lands­fundum flokkanna eða formenn flokkanna, Katrín Jakobs­dóttir og Árni Páll Árnason, sýnt vilja til þess að fara þessa leið. Þau hafa hins vegar bæði talað fyrir mikilvæg góðs samstarfs og að nauðsynlegt sé fyrir stjórnar­andstöðuna að stilla saman strengina.

Fylgi flokkanna hefur mælst lágt að undan­förnu, Samfylkingin mælist með 9,3 prósent og VG með 11,8 prósent, samkvæmt nýjustu könnun Gallup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár