Þýski fjármálaráðherrann: Tími bankaleyndar liðinn

Wolgang Schäuble, fjármála­ráðherra Þýska­lands, greindi frá því við upphaf skatta­ráðstefnu sem fram fer í Berlín í dag að tími banka­leyndar, eins og henni hefur verið framfylgt víða um heiminn til þessa, væri liðinn.

Í samtali við Bild í morgun sagði Schäuble: „Banka­leynd í sínu gamla formi er úr sér gengin.“ Á morgun, miðvikudag, munu þýsk stjórn­völd skrifa undir stóran alþjóð­legan samning um að skiptast á upplýsingum um möguleg skattsvik og fjár­festingar útlendinga árlega í fram­tíðinni. Á meðal þeirra ríka sem verða aðilar að samningnum eru öll Evrópu­sambands­ríkin og þekkt skatta­skjól á borð við Liecthenstein, Bermúda og Cayman-eyjar. Alls munu 50 ríki undir­gangast hann. Banda­ríkin verða ekki á meðal þeirra ríkja, en þau vinna hins vegar mjög stíft að því á öðrum vettvöngum að uppræta skattsvik og banka­leyndina sem hylur þau.

Schäuble segir að í náinni framtíð verði sá reikningur sem skatt­svikarar þurfa að greiða komist upp um þá verði „mjög stór“.

Falið fé í þekktum skatta­skjólum verður ekki lengur öruggt fyrir löngum armi skatta­yfirvalda.

Geisladiskar með nöfnum skattsvikara verða verðlausir


Þýsk stjórn­völd hafa verið mjög dug­leg á und­an­förnum árum við að kaupa upp­lýs­ingar um þýska skattsvik­ara sem geyma háar fjár­hæðir í fjar­lægum skatta­skjóðum. Á árunum 2006 til 2012 hafa þau keypt slíkar upp­lýs­ingar fyrir sam­tals 20 millj­ónir evra. Talið er að þær upp­lýs­ingar hafi skilað um 2.000 millj­óna evra hagn­aði fyrir þýsk stjórn­völd í formi end­ur­á­lagn­inga.

Falið fé í þekktum skattaskjólum verður ekki lengur öruggt fyrir löngum armi skattayfirvalda.
Falið fé í þekktum skatta­skjólum verður ekki lengur öruggt fyrir löngum armi skatta­yf­ir­valda.

Auk þess hafa fjölmargir þýskir skatt­svikarar valið að snúa heim með faldar eignir sínar, greiða af þeim gjöld og sektir fyrir felu­leikinn til að forðast mögulega fangelsis­dóma. Schäuble segir að þessi leið, að selja geisla­diska með upplýsingum um skatt­svikara fyrir stórar fjárhæðir, verði fljótlega ekki lengur fær. Gögnin verði einskis virði vegna þess að ríkis­stjórnir munu geta nálgast þau sjálfar eftir formlegum leiðum.

Kjarninn greindi frá því í morgun að embætti Skatt­rannsóknar­stjóra hafi fengið nöfn 50 íslenskra aðila sem vísbendingar eru um að hafi stundað skatta­undanskot frá manni sem bauð embættinu slík gögn til sölu. Fjármála­ráðuneytið er nú með það til ákvörðunar hvort frekari gögn verði keypt af manninum, en sýnis­hornin sem skatt­rannsóknar­stjóri fékk er um tíu prósent þeirra gagna sem maðurinn, sem er erlendur, er með undir höndum og fjalla um íslenska aðila.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár