Draumasveitarfélagið er Seltjarnarnes - Hafnarfjörður í neðsta sæti

Seltjarnarnes er draumarsveitarfélagið árið 2015, samkvæmt ítarlegri úttekt Vísbendingar á fjárhags­legum styrk sveitar­félaga. Seltjarnarnes fær ágætis­einkunn, 9.0, á skalanum 0 til 10. Á eftir Seltjarnarnesi kemur Garðabær með einkunnina 8.1 og Grinda­víkurbær þar á eftir með einkunnina 8.0. 

Langsamlega stærsta sveitar­félag landsins, Reykja­víkurborg, er í 22. sæti með einkunnina 5,5 en í neðsta sæti í úttektinni á fjárhag 36 stærstu sveitar­félaganna er Hafnar­fjörður með einkuninna 3.0.

Í úttektinni, sem byggð er á útreikningum upp úr ársreikningum sveitar­félaga, sem Samband íslenskra sveitar­félaga tekur saman, kemur fram að einkunn hafi hækkað hjá meira en helmingi sveitar­félaganna milli ára, en samt séu blikur á lofti í rekstrinum, meðal annars vegna þess að fyrir­sjáanlegt sé að launa­kostnaður muni hækka.

Þá er á það bent að nauðsynlegt sé fyrir sveitar­félög að ná fram stærðar­hagkvæmni í rekstri með sameiningum.

Frá árinu 2006 hafa Seltjarnarnes og Garðabæ skiptst á að vera drauma­sveitar­félagið, samkvæmt úttekt Vísbendingar. Garðabær hefur sex sinnum verið drauma­sveitar­félagið en Seltjarnarnes fjórum sinnum, þar á meðal síðustu tvö árin, 2014 og 2015.

Hæstar skuldir á hvern íbúa voru í Reykja­nesbæ en þar nema skuldirnar 2,5 milljónum á hvern íbúa. 


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár