Lögreglan skoðar hvort það þurfi fleiri skýrslutökur í máli Arons Einars og Eggerts Gunnþórs

Rannsókn á máli Arons Einars Gunnars­sonar og Eggerts Gunnþórs Jónssonar, sem voru kærðir fyrir að hafa brotið á konu í Kaupmanna­höfn fyrir 11 árum, miðar vel að sögn yfirmanns kynferðis­brota­deildar lögreglunnar. Aron Einar og Eggert Gunnþór reikna með að málið verði fellt niður.

Eggert Gunnþór Jónsson og Aron Einar Gunnarsson
Eggert Gunnþór Jónsson og Aron Einar Gunn­ars­son Mynd: Stundin / JIS

Í yfir­lýsingu sem send var fjöl­miðlum í dag í kjölfar fréttar RÚV um að Aron Einar, fyrirliði landsliðs karla í fótbolta, og Eggert Gunnþór, fyrr­verandi lands­liðsmaður í fótbolta, hefðu gefið skýrslu hjá lögreglu í vikunni, segir að þeir hafi báðir þegar lýst yfir sakleysi sínu og hafi nú loksins fengið að segja formlega frá sinni hlið í skýrslu­töku hjá lögreglu eins og þeir hafi óskað eftir. Aron Einar og Eggert Gunnþór eru sakaðir um að hafa brotið á konu eftir landsleik Íslands og Danmerkur í Kaupmanna­höfn haustið 2010. Konan sagði sögu sína á samfélags­miðlum í vor en nafn­greindi ekki leik­mennina.  


Ómögulegt að segja hvenær rannsókn lögreglu lýkur


Ævar Pálmi Pálmason, yfirmaður kynferðis­brota­deildar lögreglunnar, sagði í samtali við Stundina að búið væri að taka skýrslu af nokkrum aðilum vegna málsins en hugsanlega þurfi að taka fleiri skýrslur.

Rannsókn málsins gangi vel en ómögulegt sé að segja hvenær …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár