Um 1.200 börn á biðlista eftir plássi á frístundaheimili

Um 200 starfs­menn vantar í hluta­störf á frí­stunda­heim­ilum Reykja­vík­ur­borgar.Rúmur þriðj­ungur þeirra barna sem sótt hafa um vistun hafa ekki fengið hana. Heild­ar­tala barna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu öllu er lík­lega mun hærri.

Um 1.200 börn eru nú á biðlista eftir plássi á frí­stunda­heim­ilum í Reykja­vík. Enn vantar að ráða um 200 manns í hluta­störf á þeim svo hægt sé að taka við þeim fjölda sem enn hefur ekki fengið sam­þykkta umsókn. Þetta kemur fram í frétt á vef BSRB þar sem vitnað er í upp­lýs­ingar frá skóla- og frí­stund­ar­sviði Reykja­vík­ur­borgar.

Þar segir að ein­ungis hafi verið hægt að sam­þykkja um 2.000 af 3.200 umsóknum um pláss á frí­stunda­heim­ilum borg­ar­innar. Það þýðir að rúmur þriðj­ungur, 37,5 pró­sent, þeirra barna sem sótt hefur verið um pláss fyrir hafa enn ekki fengið slíkt. Búast megi við að staðan sé svipuð í öðrum sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og því séu lík­indi til þess að heild­ar­tala barna á biðlista á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sé tals­vert hærri.

BSRB segir að erf­ið­leikar við að manna frí­stunda­heim­ilin séu enn ein birt­ing­ar­mynd þess að lægstu laun þurfi að hækka enn meira. Biðlist­arnir leiði af sér vinnu­tap og álag fyrir for­eldra. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Skóla- og frí­stunda­sviði borg­ar­innar er nú verið að skoða hvernig hægt sé að bæta starfs­um­hverfið til að gera störfin meira aðlað­andi. Þá hafi verið aug­lýst víða eftir starfs­mönnum á frí­stunda­heim­ilum, en þeir eru flestir háskóla­nemar eða nemar úr elstu árgöngum mennta­skóla sem vinna þar með fram skóla.

BSRB telur aug­ljóst að laun starfs­manna á frí­stunda­heim­ilum, eins og ann­arra umönn­un­ar­stétta, þurfi að vera hærri. „Auk þess má eflaust bæta starfs­um­hverfið, eins og borgin virð­ist þegar byrjuð að gera. Í kjara­samn­ingum und­an­farin ár hefur rétti­lega verið lögð mikil áhersla á hækkun lægstu launa. Erf­ið­leikar við að manna störf á frí­stunda­heim­ilum, sem og önnur störf við umönnun, benda til þess að þar þurfi að ganga enn lengra.

Áhrifin af þessum árvissu erf­ið­leikum á barna­fjöl­skyldur geta verið mikil. Þegar yngstu börnin kom­ast ekki inn á frí­stunda­heim­ili þurfa for­eldrar að bjarga sér. Ein­hverjir búa svo vel að eiga ætt­ingja eða vini sem geta hjálpað. Aðrir eru með vinnu­veit­endur sem eru til­búnir að veita sveigj­an­leika til að koma til móts við starfs­menn sína. Ein­hverjir verða fyrir vinnu­tapi, með til­heyr­andi tekju­skerð­ingu.

Hvernig sem for­eldrar fara að því að takast á við það þegar börn kom­ast ekki inn á frí­stunda­heim­ili að loknum skóla er ljóst að þetta ástand er mik­ill streitu­valdur fyrir fólk í þess­ari stöðu. Með því að vinna mark­visst að fjöl­skyldu­vænna sam­fé­lagi má draga úr þeim áhrifum, til dæmis með sveigj­an­legum vinnu­tíma svo hægt sé að takast á við óvæntar aðstæður á borð við þessar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár