Trump dregur stórkostlega úr eftirliti á Wall Street

Samkvæmt tilskipun Donalds Trump Bandaríkja­forseta verður reglu­verkið sem kennt er við Dodd Frank meira og minna aflagt. Því var ætlað að halda bönkum á Wall Street í skefjum.

Ráðgjafi Donalds J. Trump Bandaríkja­forseta þegar kemur að endur­skoðun reglu­verks fjármála­markaða, Gary Cohn, segir að hin svonefnda Dodd-Frank löggjöf haldi aftur af bönkum og íþyngi þeim um of. Tilskipun Trumps er ætlað að afnema löggjöfina að nær öllu leyti en hún var fest í lög árið 2010, eftir allsherjar­hrun á fjármála­mörkuðum á árunum 2007 til 2009, og var henni ætlað að styrkja stoðir fjármála­kerfisins og koma í veg fyrir að bankar yrðu of áhættu­sæknir.

Líkt og Trump sjálfur þá hefur Cohn öðru fremur starfað á fjármála­mörkuðum í New York og var um árabil einn af framkvæmda­stjórum Goldmans Sachs bankans. Þegar hann tók boði um að gerast ráðgjafi forseta þá seldi hann bréf í bankanum fyrir meira en 100 milljónir Bandaríkjdala, eða sem nemur um 11,5 milljörðum króna.

Samkvæmt frásögn Wall Street Journal þá er afnám Dodd-Frank laganna fyrst og fremst hugsað til að tryggja samkeppnis­hæfni bandaríska fjármála­kerfisins. „Þetta hefur ekkert með Goldman Sachs að gera, þetta hefur ekkert með JP Morgan að gera, þetta hefur ekkert með Bank of America að gera. Þetta snýst um að skapa fjármála­kerfinu okkar góð skilyrði til að viðhalda yfirburða­stöðu á mörkuðum. Við megum ekki regluvæða fjármála­kerfið um of og missa forskotið á markaðnum,“ sagði Cohn í viðtali.

Fastlega er búist við því að Demó­kratar - og einhverjir Repúblikanar sömuleiðis - muni setja sig upp á móti því að afnema reglu­verkið þar sem það er talið tryggja betur réttindi hins almenna borgara og lántaka, og einnig fjárfesta á markaði. Trump hefur marg­ítrekað að hann ætli sér að skera stórkost­lega niður eftirlit með fjármála­kerfinu og þetta skref er líklega fyrsta skrefið af nokkrum. Einn af nánustu ráðgjöfum Trump í þessari vinnu er Carl Icahn, en hann er sjálfur einn af umsvifamestu fjár­festunum á Wall Street og hann stórt eignasafn skráðra hluta­bréfa. Heildar­eignir hans eru metnar á ríflega 17 milljarða Bandaríkja­dala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár