Lamandi myrkur og máttur vonarinnar

Kvik­myndin Berdreymi segir af vinahópi unglings­drengja sem eru þekktir fyrir að vera harðir af sér og víla ekki fyrir sér að beita ofbeldi, en sýna líka mikla mýkt, blíðu og samheldni.

Guðmundur Arnar Guðmundsson frumsýndi aðra kvikmynd sína í fullri lengd, Berdreymi, undir lok apríl. Fyrr á árinu höfðu borist þær fréttir að myndin hefði verið valin besta evrópska myndin í Panorama-flokki Berlinale kvikmynda­hátíðarinnar og yrði sýnd í 44 löndum. Hjarta­steinn, fyrri kvikmynd Guðmundar Arnar, var einnig marg­verðlaunuð og fékk minnst 45 alþjóðleg verðlaun auk níu Eddu­verðlauna. Það er því óhætt að segja að leik­stjórinn hafi stimplað sig rækilega inn, enda er Berdreymi vinsælasta kvik­myndin í íslenskum kvikmynda­húsum um þessar mundir samkvæmt aðsóknar­tölum. 

Í rökstuðningi dómnefndar á Berlinale-kvikmynda­hátíðinni er tekið fram að Berdreymi sé ekki dæmigerð íslensk kvikmynd, í henni birtist ekki stór­brotin náttúra heldur hrátt borgar­landslag. Þrátt fyrir hörkuna sé það hlýjan sem geri myndina einstaka. Sjálfur hefur leik­stjórinn sagt að sagan byggi á menningu sem viðgekkst í kringum 2000 þegar hann var að alast upp í Árbænum, þar sem mikið var um slagsmál á milli hverfa og hann …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • It is a piece of genius that all of Iceland should be very proud of (and should go and watch at the cinema).
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár