Jón Gnarr harðorður um innanríkisráðherra: „Ég er ekkert að fá neitt ókeypis hjá þessu fólki“

Jóni Gnarr, fyrrum borgar­stjóra Reykja­víkur, er meinað að taka upp eftir­nafnið Gnarr af Þjóðskrá. Hann telur að Ólöf Nordal og hennar fólk sé andsnúið honum.

Jón Gnarr, fyrrum borg­stjóri Reykja­víkur, birti fyrr í dag á Facebook-síðu sinni bréf þar sem beiðni hans um nafn­breytingu er hafnað. „Þetta var ákveðið af vilja og með samþykki innan­ríkis­ráðherra, Ólafar Nordal, en hún og hennar fólk hugsa mér þegjandi þörfina,“ skrifar Jón meðal annars í stöðu­færslu sinni. 

Í samtali við Stundina segist Jón standa við þessi orð og segir hann að nafn sitt sé hápólitískt mál á Íslandi. „Fyrr láta þau mig drepast en una mér réttar míns,“ skrifar Jón á Twitter. „Ég er ekkert að fara að fá neitt ókeypis hjá þessu fólki sem ræður hér ríkjum,“ segir Jón í samtali við Stundina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár