Mannréttindafulltrúi Framsóknar æfur út í presta

„Fólk hrópar "mannúð" þegar kemur að umræðu um hælis­leitendur og flótta­menn en í sömu svipan líta framhjá okkar minnsta bróður,“ skrifar Sveinn Hjörtur Guðfinnsson. Séra Skúli Sigurður Ólafsson segir kirkju­grið ekki bara snúast um utan­aðkomandi fólk og fannst of mikill hávaði í Laugar­neskirkju.

Sveinn Hjörtur Guðfinnsson, aðalmaður Fram­sóknar og flugvallar­vina í mann­réttinda­ráði Reykja­víkurborgar, hefur farið mikinn á samfélags­miðlum undan­farnar vikur vegna stuðnings Laugar­neskirkju við írösku hælis­leitendurna Ali Nasir og Majed sem vísað var úr landi í lok júní­mánaðar. Deilir hann meðal annars áróðursteikningu Morgun­blaðsins gegn „ólöglegum innflytjendum“ á Facebook og tekur undir þau skilaboð sem felast í myndinni. „Fólk hrópar "mannúð" þegar kemur að umræðu um hælis­leitendur og flótta­menn en í sömu svipan líta framhjá okkar minnsta bróður,“ skrifar Hjörtur og gagnrýnir prestana Toshiki Toma og Kristínu Þórunni Tómasdóttur harðlega.  

Stundin hefur áður fjallað um harða gagnrýni Brynjars Níels­sonar og Ásmundar Friðriks­sonar, þingmanna Sjálfstæðis­flokksins, á framtak prestanna. Þá hefur Helgi Magnús Gunnarsson, vara­ríkis­saksóknari, gagnrýnt kirkjuna fyrir að „virða ekki“ löglegar ákvarðanir stjórn­valda og sagt rakalaust að ekki sé forsvaranlegt að senda hælis­leitendur til Íraks.

Á Trú.is hafa nokkrir prestar tjáð sig um málið, meðal annars Agnes Sigurðar­dóttir, biskup Íslands, sem segir kirkjuna ekki geta annað en tekið afstöðu með fólki í neyð. „Þannig högum við okkur í samræmi við kærleiks­boðskap kristinnar trúar,“ skrifar hún.

Séra Arna Ýrr Sigurðar­dóttir tekur í sama streng. „Atburðurinn í Laugar­neskirkju var vanmáttug tilraun til að benda á ömurlega framkomu íslenskra stjórn­valda við hælis­leitendur, tilraun til að verja vini sína fyrir armi laganna, sem var vissulega í lagalegum rétti, en, að því er við teljum mörg: í siðferði­legum órétti,“ skrifar hún. 

Of mikill hávaði

Séra Skúli Sigurður Ólafsson, prestur í Neskirkju og eigin­maður lögreglu­stjórans í Reykjavík, er gagn­rýninn á framtak kirkjunnar. 

„Hugsunin var sannarlega kærleiksrík, að bjóða hröktum einstaklingum skjól, sálgæslu og fyrirbæn en í fjöl­miðlum og á netinu virtist aðgerðin hafa verið hávaðasöm og særði marga sem töldu sig eiga annað skilið af hálfu kirkjunnar,“ skrifar hann og vísar þar líklega til lögreglu­þjóna sem yfirvöld sendu inn í kirkjuna. „Kirkju­grið gera miklar kröfur til þeirra sem vilja njóta þess friðar. Þar þarf að gæta þess að rjúfa ekki griðin með fyrirferð og hávaða.“

Kirkjugrið ekki bara fyrir utanaðkomandi

Skúli er þeirrar skoðunar að kirkju­grið snúi ekki bara að þeim sem leita skjóls í kirkju, heldur ekki síður um þá sem eru þegar inni í kirkju. „Áfram þarf að sinna þeim sem standa höllum fæti og mæta fordómum. Um leið þurfum við að gæta þess að valda ekki skaða og hugleiða að kirkju­grið snúa ekki eingöngu að þeim sem standa utan kirkju­dyranna og leita inngöngu. Þau eiga ekki síður við um okkur sem stöndum inni í hinu helga rými,“ skrifar hann. Eins og komið hefur fram í fjöl­miðlum höfðu hælis­leitendurnir Ali og Majed tekið kristna trú áður en þeim var boðið að bíða brott­vísunar uppi við altari Laugar­neskirkju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár