Hvers-lendingar verðum við þá?

Trega­ljóðið Dimmumót er að mati gagn­rýn­anda glæsi­legur hápunktur á jökla­skáld­skap Stein­unnar Sig­urð­ar­dóttur.

Vatnajökull
Vatna­jök­ull Treginn er það grunn­stef sem sterkast hljómar í nýju ljóða­bók Stein­unnar, sem og kvíð­inn fyrir því sem virð­ist óhjá­kvæmi­legt; bráðnun jök­uls­ins vegna ham­fara­hlýn­unar af manna völdum. Mynd: Wikimedia Commons

ó, hve hann hefir eftir þráð að líta

ást­ar­land sitt með tign­ar­fald­inn hvíta.

Þessar ljóð­línur Jónasar Hall­gríms­sonar standa sem ein­kunn­ar­orð fremst í ljóða­bók Stein­unnar Sig­urð­ar­dóttur, Dimmumót. Les­and­inn skynjar strax sterkan treg­ann í þessum hend­ingum skálds­ins sem hefur dvalið langt frá ást­ar­landi sínu, sem og gleð­ina sem fyllir brjóstið þegar það lítur tign­ar­fald­inn hvíta, jökul­inn – lands­ins mestu prýði. Treginn er líka það grunn­stef sem sterkast hljómar í nýju ljóða­bók Stein­unnar, sem og kvíð­inn fyrir því sem virð­ist óhjá­kvæmi­legt; bráðnun jök­uls­ins vegna ham­fara­hlýn­unar af manna völdum. Dimmu­mótum mætti því lýsa sem trega­ljóði – elegíu – enda lýtur verkið mörgum helstu ein­kennum þeirrar bók­mennta­greinar þótt „brag­ar­hátt­ur­inn“ sé nútíma­legur og framar öðru Stein­unnar-legur, eins og sjá má á upp­haf­slínum fyrsta ljóðs­ins: „Það …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár