Hæstiréttur Bandaríkjanna veikir stéttarfélög

Nýr dómur hæstarétts Banda­ríkjanna bannar stéttar­félögum að rukka opinbera starfs­menn sem ekki eru skráðir í þau, en búist er við að félögin tapi tugum milljónda dala við dóminn.

Dómurinn mun leiða til fjárhagslegs tjóns meðal stéttarfélaganna.
Dómurinn mun leiða til fjár­hags­legs tjóns meðal stétt­ar­fé­lag­anna. Mynd: Pexels

Hæstiréttur Banda­ríkjanna úrskurðaði í dag að stéttar­félög mættu ekki rukka opinbera starfs­menn utan þeirra fyrir kjara­samninga. Búist er við að tap stéttar­félaganna á þessum dómi muni hlaupa á tugum milljóna Bandaríkja­dala. Þetta kom fram í frétt um málið á vef New York Times.

Samkvæmt fréttinni komst dómstóllinn að þeirri niður­stöðu að nauðungar­fjármögnun fyrir starfssemi stéttar­félaga bryti í bága við fyrsta viðauka stjórnar­skrárinnar þar í landi, sem á að vernda tjáningar­frelsi einstaklinga. Samuel A. Alito Jr., einn hæstarréttardómaranna, rökstuddi dóminn á þann veg að fyrir­komulagið brjóti á málfrelsis­réttinum einstaklinga utan stéttar­félaga með því að neyða þá til að niður­greiða sjónarmið sérhagsmuna­hópa í málum sem varða almenning allan.

Úrskurðurinn var naumlega samþykktur, en fimm dómarar samþykktu hann á meðan fjórir þeirra lögðust gegn honum.

Væntanlegt tap bandarískra stéttar­félaga vegna úrskurðarins er metið í tugum milljóna Bandaríkja­dala, og þar af leiðandi er hætta á að áhrifa­máttur þeirra, sem er ekki mikill fyrir í Banda­ríkjunum, minnki enn frekar. Alito viðurkenndi að dómurinn myndi líklega hafa mikil neikvæð áhrif á stéttar­félögin, en sagði að líta bæri á þau í samhengi við þann pening sem hann hefði ekki átt að fá á síðustu árum.

Í fyrra var rétt rúmur þriðjungur opinberra starfs­manna í Banda­ríkjunum skráðir í stéttar­félag og 6,5 % starfs­manna í einka­geiranum. Í opinberum störfum hefur skráningar­hlutfallið haldist nokkuð jafnt á síðustu 35 árum, á sama tíma sem það hefur lækkað úr 33% hjá einka­fyrirtækjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár