Heimsókn í Herdísarvík

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um Heimsókn í Herdísarvík í leik­stjórn Þórunnar Magneu Magnúsdóttur í Þjóð­leikhúsinu.

Leiklestrafélagið í samvinnu við Þjóðleikhúsið: Heimsókn í Herdísarvík

Höfundur: Sella Páls

Leik­stjórn: Þórunn Magnea Magnúsdóttir

Lýsing: Páll Ragnarsson

Leikendur: Arnar Jónsson, Sigurjóna Sverris­dóttir, Jón Magnús Arnarsson, Ólafur Ásgeirsson, Kjartan Darri Kjartansson.

Leik­lestur er fyrirtaks form til að koma á framfæri leik­verkum sem ella hefðu ekki hlotið pláss á fjölum hinna stærri leikhúsa, eða þá leikverka hvers þanþol menn vilja reyna með því að það mæti áhorf­endum/áheyrendum og hljóti þá viðbrögð; leik­skáldsins sé síðan að vinna úr verkinu og slípa það til, sé þess talið þurfa.

Leik­lestra­félagið var stofnað í október 2019 í þeim tilgangi að styðja og kynna verkefni félagsins og stóð síðastliðið haust fyrir fjórum leik­lestrum á verkum Guðmundar Steins­sonar í samvinnu við Kristbjörgu Kjeld.

Sella Páls hefur kynnt nokkur verka sinna í formi leik­lestra á undan­förnum árum og hér hefur hún skrifað verk um þann atburð þegar Jochum Eggertsson, Skuggi kallaður, heimsótti Einar Benediktsson skáld í Herdísarvík og dró þangað með sér ungan Stein Steinarr. Heim­sóknin sú endaði með nokkrum ósköpum og þótt enginn sé vitnis­burðurinn, leyfir Sella sér að skálda í eyðurnar og glæða þar með þjóð­skáldið Einar lífi, ásamt sambýlis­konu hans síðustu árin, Hlín Johnson, syni hennar, Jóni Eldon og svo auðvitað þeim fyrr­nefndu, sem tóku hús á skáldinu.

Það má fara nokkrum orðum um þá persónu sem drífur söguna áfram, Jochum Eggertsson. Hann var samkvæmt alfræði­ritinu Wikipedia rithöfundur og skáld, alþýðu­fræðimaður og skógræktar­maður, bróður­sonur Matthíasar Jochumssonar skálds. Rit hans þykja nokkuð sérstæð og hafði hann kenningar miklar um landnám Íslands; m.a. hélt hann því fram að Suðurland hefði verið albyggt þegar land­námsmenn komu og var þar fyrir írskur þjóð­flokkur sem naut andlegrar hand­leiðslu Krýsa, en höfuð­stöðvar þeirra voru einmitt í Krýsuvík. Höfuð­prestur Krýsa á 11. öld var Kolskeggur vitri og undir leiðsögn hans og Jóns nokkurs Kjarvals­sonar hins gamla á Vífils­stöðum skópu þeir og lærisveinar þeirra menningararf Íslendingar. Kolskeggur kenndi Íslendingum að skrifa með latínu­letri, orti sjálfur Hávamál og skrifaði margar Íslendinga­sagna. Þar kom að höfðingjum þóttu Krýsar orðnir helstil umsvifa­miklir, brenndu Jón Kjarvalsson og menn hans inni á Vífils­stöðum og settust um Krýsuvík sem þeim tókst svo loks að vinna. Kolskeggur komst undan á arabískum gæðingi en náðist síðar og var felldur; eftir það var Krýsum útrýmt, Kolskeggur varð Kölski og Ari fróði á endanum fenginn til að afmá Kolskegg úr sögunni.

Það er því ekki nema von að Jochum leiti í Krýsuvík; hitt var minna lukkað, að taka með sér ungskáldið Stein Steinarr, því það kastast illilega í kekki millli hans og húsbóndans í Herdísarvík, Einars Benedikts­sonar, og enda þau samskipti á því að Einar rekur Stein á brott með þeim orðum til Jochums, að hann skuli aldrei taka þennan mann með sér aftur í Herdísarvík.

Megin­flétta verksins snýst þó um Hlín Johnson og son hennar, Jón Eldon, og draum hennar að peningar skáldsins nýtist til að koma syninum til mennta.

Ú þessum efniviði hefur Sella Páls fléttað saman sögu sem heldur áheyranda vel föngnum og þótt eflaust megi eitthvað slípa til þá sögu sem hún segir, verður ekki horft hjá því að Sella skrifar lipran texta sem fer vel í munni leik­aranna.

Arnar Jónsson las hlutverk Einars Ben, þjóð­skáldsins sem er sér vel meðvitað um stöðu sína. Á þeim tíma sem leikurinn gerist fer heilsu Einars hrakandi, minnis­leysið nær æ sterkari tökum á honum og Hlín veitir honum strangt aðhald þegar kemur að áfenginu; Arnar fór ákaflega glæsilega með hlutverk þessa hnignandi jöfurs og samleikur hans og Sigurjónu Sverris­dóttur í hlutverki Hlínar átaka­mikill. Jón Magnús Arnarsson fór með hlutverk „Skugga“ og gerði vel; Kjartan Darri Kjartansson las hlutverk Steins Steinarrs og náði trúverðugum tilþrifum í deilunni við goðsögnina Einar. Ólafur Ásgeirsson fór fallega með hlutverk Jóns Eldons, sonar Hlínar.

Að sýningu lokinni var boðið upp á umræður með leikurum, leik­stjóra og höfundi og var auðfundið að þessar persónur sem verkið sagði frá, eru hvergi nærri horfnar úr vitund okkar Íslendinga þótt liðin sé nær öld frá því að þeir atburðir gerðist sem sagt var frá. Það bendir til þess að þetta verk megi vel hljóta náð fyrir augum leik­hússtjóra atvinnu­húsanna og fá að koma fyrir augu áhorfenda í full­búinni leik­sýningu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár