Gildi gerir enn og aftur athugasemd við kaupréttarkerfi skráðs félags og vill breytingar

Þriðji stærsti lífeyris­sjóður landsins telur að breyta þurfi tillögu um kaupréttar­áætlun fyrir æðstu stjórn­endur Eimskips. Það sé ekki forsenda til að umbuna stjórn­endum með slíkum hætti ef hluthafar fá ekki viðunandi arðsemi á fjár­festingu í félaginu.

Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi hefur lagt fram breyt­ing­ar­til­lögu við til­lögu stjórnar Eimskips um kaup­rétt­ar­á­ætlun fyrir for­stjóra, æðstu stjórn­endur og lyk­il­starfs­menn félags­ins. Í til­lög­unni er lagt til að nýt­ing­ar­verð kaup­rétt­ar­samn­inga verði skilgreint út frá meðal­gengi hluta­bréfa í félaginu síðustu tíu viðskipta­daga eins og það er skráð á Nasdaq Iceland í íslenskum krónum fyrir úthlutunardag. Þá skuli nýtingar­verð vera leiðrétt til lækkunar fyrir framtíðar arðgreiðslum og samsvar­andi úthlutun til hluthafa af eignum félagsins, krónu fyrir krónu. Nýtingar­verð skuli einnig vera leiðrétt með þriggja prósenta ársvöxtum ofan á áhættu­lausa vexti fram að nýtingar­degi.

Gildi er þriðji stærsti eig­andi Eimskips með 10,45 pró­sent hlut. Samherji Holding er stærsti eig­and­inn með 32,79 pró­sent hlut og Baldvin Þorsteinsson, ein helsti eigandi Samherja hf., er sem stendur stjórn­ar­for­maður Eimskips. Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna er næst stærsti eig­and­inn með 11,94 pró­sent eign­ar­hlut. Birta, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR) og lífeyris­sjóðurinn stapi eiga svo sam­tals 13,96 pró­sent. Sam­an­lagt eiga þessir fimm líf­eyr­is­sjóðir því 36,35 prósent hlut í Eimskip, eða meira en Samherji Holding.

Ekki á að umbuna stjórnendum nema arðsemi sé viðunandi

Stjórn Eimskips hefur lagt til að komið verði á fót kaup­réttarkerfi fyrir forstjóra, framkvæmda­stjóra og lykil­starfsmenn félagsins sem ætlað er að tengja hagsmuni rétthafa við afkomu og langtíma­markmið félagsins og hluthafa þess. Í tillögu stjórnar er gert er ráð fyrir því að nýtingar­verð kaupréttar­samninga hækki um þrjú prósent árlega. Þá er gert ráð fyrir að forstjóra og æðstu stjórn­endum verði gert skylt að halda eftir ákveðnum fjölda hluta þar til ákveðnu margfeldi af grunn­launum er náð, þegar skattar hafa verið dregnir frá, allt til starfs­loka hjá félaginu.

Gildi er ekki sátt við þessa vegferð og vill gera á henni ofan­greindar breytingar. Það sé gert í því skyni að tengja betur saman hagsmuni kaup­réttarhafa og hluthafa með því að færa nýtingar­verðið nær þeirri ávöxtunar­kröfu sem gerð er til hluta­bréfa. „Það felur í sér að ekki sé forsenda til að umbuna stjórn­endum með þessum hætti ef hluthafar fá ekki viðunandi arðsemi á sína fjár­festingu í félaginu.“

Breytingar­tillagan er auk þess eðlileg að mati sjóðsins í ljósi núverandi heildar­launa stjórn­enda félagsins og annarra möguleika þeirra á árangurs­tengdum greiðslum. „Ætti þessi viðbót jafnframt að mati sjóðsins að leiða til þess að minni þörf verði á almennum hækkunum á launum stjórn­enda horft fram í tímann. Að lokum vill Gildi benda á að núverandi markaðs­aðstæður geta verið erfiður tíma­punktur til innleiðingar á kaup­réttar­kerfum þannig að þau þjóni tilgangi sínum og tengi raun­verulega saman langtíma­hagsmuni stjórn­enda og hluthafa.“

Gildi lagði einnig fram breyt­ing­ar­til­lögu við til­lögu stjórnar Sím­ans um kaup­rétt­ar­á­ætlun fyrir for­stjóra, æðstu stjórn­endur og lyk­il­starfs­menn félags­ins. Sjóðurinn var einnig einn þeirra líf­eyr­is­sjóða sem lagð­ist gegn til­lögu stjórnar um kaupauka- og kaup­rétt­ar­kerfi hjá Icelandair Group á aðal­fundi þess félags í síð­ustu viku. Sú til­laga var sam­þykkt með naumum meiri­hluta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár