Gildi vill breytingar á tillögu um kaupréttarkerfi æðstu stjórnenda Símans

Þriðji stærsti lífeyris­sjóður landsins telur að breyta þurfi tillögu um kaupréttar­áætlun fyrir æðstu stjórn­endur Símans. Það sé ekki forsenda til að umbuna stjórn­endum með slíkum hætti ef hluthafar fá ekki viðunandi arðsemi á sína fjár­festingu í félaginu.

Orri Hauksson er forstjóri Símans.
Orri Hauksson er for­stjóri Símans. Mynd: Síminn

Lífeyris­sjóðurinn Gildi hefur lagt fram breytingar­tillögu við tillögu stjórnar Símans um kaupréttar­áætlun fyrir forstjóra, æðstu stjórn­endur og lykil­starfsmenn félagsins. Í tillög­unni er lagt til að nýtingar­verð kaupréttar­samninga að ávinnslu­tíma liðnum verði leiðrétt með þriggja prósenta árlegum vöxtum ofan á áhættu­lausa vexti í stað fjögurra prósenta árlegra vaxta, líkt og stjórn Símans hafði lagt til.

Gildi er fjórði stærsti eigandi Símans með 8,12 prósent hlut. Fjár­festinga­félagið Stoðir er stærsti eigandinn með 15,41 prósent hlut og forstjóri þess, Jón Sigurðsson, er stjórnar­formaður Símans. Lífeyris­sjóður verzlunarmanna er næst stærsti eigandinn með 11,52 prósent eignar­hlut og Lífeyris­sjóður starfs­manna ríkisins (LSR) á samtals 13,67 prósent. Samanlagt eiga þrír stærstu lífeyris­sjóðir landsins því þriðjung í Símanum.

Engir kaupréttir nema hluthafar fái viðunandi arðsemi

Í greinar­gerð sem fylgir með breytingar­tillögu Gildis kemur fram að það skipti sjóðinn máli að umfang kerfisins sé viðeigandi. Á hinn bóginn telur sjóðurinn rétt að nýtingar­verð kerfisins hækki meira en sem nemur fjögurra prósenta árlegum vöxtum og vill að nýtingar­verð hækki sem nemur áhættu­lausum vöxtum til viðbótar við þriggja prósenta árlega vexti. „Þetta er lagt til í því skyni að tengja betur saman hagsmuni kaup­réttarhafa og hluthafa með því að færa nýtingar­verðið nær þeirri ávöxtunar­kröfu sem gerð er til hluta­bréfa. Það felur í sér að ekki sé forsenda til að umbuna stjórn­endum með þessum hætti ef hluthafar fá ekki viðunandi arðsemi á sína fjár­festingu í félaginu.“

Að mati Gildis er breytingar­tillagan eðlileg í ljósi núverandi heildar­launa stjórn­enda Símans og annarra möguleika þeirra á árangurs­tengdum greiðslum. Orri Hauksson, forstjóri Símans, var til að mynda með tæp­lega 6,4 millj­ónir króna á mán­uði að með­al­tali í fyrra, að teknu til­liti til líf­eyr­is­greiðslna. Það er 16,5 pró­sent meira en árið áður.

Erfiður tímapunktur til innleiðingar

Í lok greinar­gerðar sinnar vill Gildi benda á að núverandi markaðs­aðstæður gætu „verið erfiður tíma­punktur til innleiðingar á kaup­réttar­kerfum þannig að þau þjóni tilgangi sínum og tengi raun­verulega saman langtíma­hagsmuni stjórn­enda og hluthafa“. Þar er væntanlega vísað í það að hlutabréf hafa lækkað skarpt í virði hérlendis það sem af er ári, eða um 15,5 prósent. Hlutabréf í Símanum hafa lækkað um 6,6 prósent síðastliðinn mánuð.

Gildi segir að sjóðurinn telji eðlilegt, verði tillagan samþykkt, að tíma­punktur úthlutunar og upphafs­gengi verði „vandlega ígrundað af stjórn félagsins með hagsmuni félagsins, stjórn­enda og hluthafa að leiðar­ljósi.“

Gildi var einn þeirra lífeyris­sjóða sem lagðist gegn tillögu stjórnar um kaupauka- og kaup­réttarkerfi hjá Icelandair Group á aðalfundi þess félags í síðustu viku. Sú tillaga var samþykkt með naumum meirihluta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár