Norræn samtök heimilislækna fordæma skrif heimilislæknis

Siðanefnd Lækna­félags Íslands hefur fengið ábendingar vegna niðrandi ummæla Guðmundar Pálssonar heimilis­læknis á samfélags­miðlum er varðar bæði konur og aðila í minnihluta­hópum. Lækna­félagið tekur ekki afstöðu í einstaka málum en samtök norrænna heimilis­lækna gera það hins vegar og hafa fordæmt skrif Guðmundar.

Guðmundur Pálsson
Guð­mundur Pálsson Heim­il­is­lækn­ir­inn Guð­mundur Pálsson segir lækna mega segja allt, þar á meðal þau niðr­andi ummæli sem Guð­mundur hefur látið falla á sam­fé­lags­miðlum í garð kvenna

Guðmundur Pálsson, sérfræðingur í heimilis­lækningum og starfandi heimilis­læknir á heilsu­gæslu Grafar­vogs, hefur tjáð sig með niðrandi hætti um konur síðastliðna daga á Facebook síðu sinni vegna þeirra umræðu sem hefur átt sér stað eftir að þolendur kynferðis­ofbeldis stigu fram og sögðu reynslu­sögur á samfélags­miðlum og hófu þar með nýja bylgju af Metoo. Raunar nær afstaða hans til þessa mála­flokks lengra aftur í tímann en ummæli hans í garð kvenna og minnihluta­hópa ná yfir einhver ár.

Í samtali við Stundina segir Guðmundur að læknar megi tala um allt „bara ekki sjúklinga sína“ og þeir hafi fullan rétt til þess „eins og hver annar borgari“.  Stundin talaði einnig við konu sem ekki vill koma fram undir nafni en hún segist hafa skipt um heilsu­gæslu meðal annars vegna samskipta sinna við Guðmund, hún geti ekki treyst honum fyrir sér eða konum nálægt sér í ljósi slíkra ummæla. 

Lækna­félag Íslands vill ekki taka afstöðu til einstakra mála þegar Stundin óskaði eftir viðbrögðum þess við ummælum Guðmundar. Jóhann Ágúst Sigurðsson, formaður Samtaka Norrænna heimilis­lækna, fordæmir hins vegar skrif Guðmundar og segir þau stangast á við grunn­gildi heimilis­lækna. 

Feminismi er nornakult

„Femínisminn er í raun nornakult, það eru ekki margir sem átta sig á því. Og ekki að undra því hann felur sig og dylur sig og fer í margs konar búninga. Til að halda honum við er talað um jafnrétti, fórnar­lömb og nauðgunar­kúltúr og feðra­veldi. Alls ekki allar konur eru með á vagninum, það er misskilningur, heldur aðeins vonbrigða konur sem hafa orðið fyrir hnjaski ellegar treysta sér ekki í neitt samtal um neitt og vilja ráða öllu sjálfar - og beita valdi og stundum ósannindum til að ná því fram. Þetta hefur smitast út í stjórn­málin okkar heldur betur. Þessu fylgja lygar og vænisýki, fóstur­eyðingar, skilnaðar­áróður, aðskilnaðar hyggja (á milli kynjanna, sem er orðið aðalefni frétta) hefndar hyggja (oft hlegið ef kona hefnir sýn, talið réttmætt) og margt í þá áttina. Þetta er andstætt kristinni trú og góðum lífs­gildum, gegn fjöl­skyldu og börnum. Af hverju konur? Það er mjög erfitt að ,,lesa" þetta fyrirbæri rétt, ofbeldið er dulið, tilfinningalegt, andlegt - og menn hreinlega átta sig ekki. Svo eru margir afkimar, sumt er saklausara en annað. En fyrst og fremst er þetta reiði, kollektív yfir­gengileg reiði,“ Það er meðal annars með þessum hætti sem Guðmundur kýs að tjá sig á samfélags­miðlum.

Ummælin eru þó mun fleiri. 

Þann 13. maí birti hann færslu þess efnis að vinur hans hafi látið hann vita að hann væri að „ganga of nærri konum, óverðskuldað“. Hann taldi það vera rétt ályktað og langaði því að „bera í bætifláka,“ eins og hann orðaði það. „Öll þessi hvössu skrif mín tengdust örlögum Sölva sjónvarps­manns sem fékk ófagran dóm götunnar og í því framhaldi af því skrifaði ég sísvona, mest til að verja borgaralegt siðað samfélag,“ skrifaði hann á Facebook síðu sína og lét svo ummælin um afstöðu sína fylgja með:

„Við eigum öll að taka afstöðu með SÖLVA en ekki gegn honum, á meðan ekkert er sannað, málið ekki enn tekið fyrir í rétti og dæmt. Hann er frjáls maður og saklaus þangað til hann er dæmdur. Þetta er rétt og siðlegt viðhorf. Það er meira að segja rétt þótt hann síðar reynist sekur.“

„Skrif og skoð­anir Guð­mundar Páls­sonar stang­ast á við grunn­gildi heim­il­is­lækna“

Í kjölfarið sagði hann að það væri staðreynd að konur verði fyrir órétti og „það er sífellt á þær ráðist og þær verða oft illa úti. Karlar eru oft hömlu­lausir af kynfýsn, árásar­hneigð og ofbeldi í garð kvenna og andskotinn laus í þeim efnum. Það er fáránlegt og gerir mann reiðan. Við sjálfir berum mikla ábyrgð á því að temja kyn okkar, vini okkar, syni okkar og vera harðir í horn að taka ef einhver ætlar að fara hegða sér eins og skepna við konu eða stúlku,“ skrifaði hann. En hann lét ekki þar við sitja því hann skrifaði fljótlega ummæli sjálfur undir færsluna til að útskýra afstöðu sína frekar:

„En það er líka eitthvað brenglað við það setja kynfrelsi kvenna/manna á svo háan stall og möguleika til að hafa mök við hvern sem þeim sýnist, með samþykki beggja. Maður getur ekki varist þeirri hugsun að þetta hafi afleiðingar - enda er það augljós­lega hluti vandans. Að konan telji eðlilegt að kveikja elda karl­mannsins og bjóða manninum hálfa leið eða lengra, bara til að slökkva svo eldinn ef henni sýnist svo. Jú, menn geta sagt - þarna á karlinn að hlíða og engar refjar! Já, og vissulega geta flestir karlmenn hamið sig - en augljós­lega ekki allir. Sumir eru hreinlega brenglaðir á þessu sviði. Það sem ég er að hvetja til, er að konan gæti sín, kyneðlið er villidýrs eðli ef það fer af stað. Þetta hafa allar kynslóðir vitað. Því ekki að taka mark á því?“

„Alls ekki allar konur eru með á vagn­inum, það er mis­skiln­ingur, heldur aðeins von­brigða konur sem hafa orðið fyrir hnjaski ellegar treysta sér ekki í neitt sam­tal um neitt og vilja ráða öllu sjálfar - og beita valdi og stundum ósann­indum til að ná því fram“

Svona væri lengi hægt að halda áfram og Guðmundur tekur ekki einungis afstöðu til þessarar umræðu heldur hefur hann einnig sitt að segja aðra minnihluta­hópa eða hópa í viðkvæmri stöðu. Hér má til að mynda sjá afstöðu hans gagnvart útlendingum. 

„Af hverju eru fjöl­miðlar ekki heiðar­legir gagnvart þeim sem tjá áhyggjur af fjölda útlendinga í landinu. Hver er ástæðan?“ spyr hann sig. 

„Ég get ekki treyst honum“

Kona sem Stundin ræddi við segist hafa þurft að skipta um heilsu­gæslu árið 2019 meðal annars vegna niðrandi ummæla Guðmundar í garð kvenna og vegna samskipta sem hún átti við hann sem notandi þjónustunnar á heilsu­gæslunni.

„Ég hef bæði fengið símatíma hjá honum og hitt á hann,“ segir konan en þegar hún sótti þjónustu sína í heilsu­gæslu Grafar­vogs var hún ekki með fastan heimilis­lækni og hitti því fleiri en einn lækni með sín mál. Hún hafði fundið fyrir ákveðnum óþægindum í samskiptum við hann sem hún vissi ekki á þeim tíma hver þau voru nákvæmlega.

Eftir að hún fór að sjá hvernig Guðmundur tjáði sig opinber­lega á samfélags­miðlum og í kommenta­kerfum ákvað hún að hún gæti ekki lengur leitað til hans. „Ég gat ekki lengur treyst honum, ég gat ekki treyst manni sem talar svona um konur og líka samkyn­hneigða. Áður en ég sá þetta upplifði ég alltaf að hann væri að tala við mig eins og barn og eftir að ég sá þetta hugsaði ég: auðvitað, hann lítur bara á mig sem barn,“ segir hún. 

Hún segir Guðmund tala á mjög niðrandi hátt um konur og samkyn­hneigða opinber­lega og þess vegna myndi hún ekki treysta sér að leita til hans ef hún yrði fyrir ofbeldi. „Segjum að eitthvað myndi koma fyrir mig, ekki það að ég sé í slíkri hættu, en segjum að ég yrði fyrir heimilis­ofbeldi eða kynferðis­ofbeldi og læknir sem talar svona opinskátt um það að þetta sé konum að kenna sjálfar og þær þurfi að passa sig og skrifar til dæmis að það að taka einhvern hálstaki sé bara eðlilegt í samskiptum elskenda, ég get ekki treyst þannig manni til að sinna mér eða dóttur minni eða frænkum mínum eða einhverjum öðrum. Maður sem hefur talað eins og hann hefur talað svona um samkyn­hneigða og konur, ég treysti ekki svona manni,“ segir hún þá. 

Hún segist ekki vera sú eina sem hafi fært sig um heilsu­gæslu vegna Guðmundar. „Ég bý við hliðina á heilsu­gæslunni í Grafar­vogi en vill samt ekki fara þangað. Hún hefur almennt mjög vont orð á sér. Ég hef heyrt í öðrum konum sem hafa fært sig vegna hans eða hafa óþægilegar sögur af honum,“ segir hún. 

Læknar mega tala um allt

Stundin bauð Guðmundi að svara og segja sína hlið af málinu. Hann segir að læknar megi tala um allt opinber­lega fyrir utan sjúklinga sína. „Þeir tala og skrifa um allt mögulegt og það er söguleg hefð fyrir á meðal íslenskra lækna, Dæmin eru Vilmundur land­læknir, Ólafur Ólafsson og nýlegra dæmi Sveinn Rúnar Hauksson. Læknar tala á opinberum vettvangi eins og lögfræðingar og verk­fræðingar. Þeir tala um sjúkdóma og fíknir, um lyf, um hjónabönd, um karla og konur, um heilbrigðismál, menntamál, stríð og frið, um Íslendinga­sögur, íslenskar hetjur og þjóðerni. Allt mögulegt. Og þeir hafa fullan rétt til þess eins og hver annar borgari,“ segir hann í samtali við Stundina. 

Aðspurður hvernig hann vilji svara því að kona hafi skipt um heilsu­gæslu meðal annars vegna ummæla hans á opinberum vettvangi segir hann að ekki sé óvenjulegt að sjúklingar skipti um lækni, oftast innan sömu stöðvar vegna ýmissa mála. „Oftast vegna þess að þeir fá ekki það sem þeir vilja, þeim finnst þeir mæta misskilningi eða er neitað um eitthvað til dæmis ávanalyf eða svefnlyf,“ segir hann. 

Hann heldur því fram að það sé einsdæmi að manneskja skipti um heilsu­gæslu eða lækni vegna þess að læknirinn sé einhverrar skoðunar. „Þarna finnst mér sjúklingur ganga of langt,“ segir hann. 

„Ég get ekki treyst þannig manni til að sinna mér eða dóttur minni eða frænkum mínum eða einhverjum öðrum“

Varðandi hlutverk sitt sem læknir segir hann þessar skoðanir hafa engin áhrif á samtöl sín við sjúklinga eða meðferðir varðandi þá. „Ég tek jafnt á móti öllum konum sem körlum, ungum sem gömlum, innlendum sem erlendum og ég veit ekki betur en að sjúklingarnir séu sérlega ánægðir. Ég vil taka það fram að það liggja engar kærur frammi um framkomu mína við sjúklinga svo það sé áréttað. Svo hér er augljós­lega um árás að ræða undir beltis­stað.“

Hann segir ennfremur að enginn ástæða sé til þess að hann feli skoðanir sínar, þær beinist ekki gegn neinni persónu heldur séu þær hugleiðingar sem eru opnar fyrir athuga­semdum. „En hvað með mótbárur þá? Það má segja að maður sé svo heppinn að búa í landi með bæði málfrelsi og prent­frelsi,“ segir hann. 

Guðmundur fagnar því að umræða sé komin í gang vegna ummæla sinna.  „Við skulum aðeins vera róleg, því allir þola ekki andstæðar skoðanir. En það er ómetanlegt að fá þetta fram. Athugaðu að allar þessar skoðanir og hugleiðingar eru réttmætar í frjálsu þjóð­félagi, andstaða við fóstur­eyðingar einnig og veruleg veruleg illska út í feminisma, sem hefur margar skugga­hliðar og eyði­leggur líf margra kvenna, barna og karla.“

Læknafélagið tekur ekki afstöðu til skrifana

Stundin leitaði viðbragða Lækna­félags Íslands við slíkum skrifum Guðmundar. Reynir Arngrímsson, formaður félagsins, sagði félagið ekki taka afstöðu er varðaði ummæli og framferði einstakra lækna en vísaði í færslu félagsins á Facebook er varðar tjáningu lækna á samfélags­miðlum. 

Í færslu félagsins segir að „því má aldrei gleyma að færslur á samfélags­miðlum geta haft afleiðingar fyrir lækna jafnt og aðra, bæði jákvæðar og neikvæðar. Vel undirbúin og fagleg þátttaka í samfélags­miðlum getur verið árangursrík aðferð til að tengjast kollegum og upplýsa sjúklinga. Slíkar færslur geta aukið traust almennings á lækna­stéttinni. Með sama hætti þurfa læknar að vera meðvitaðir um það að framkoma þeirra á samfélags­miðlum getur einnig haft neikvæð áhrif bæði á þá persónu­lega og traust almennings til lækna. Það sem læknir setur á samfélags­miðla getur haft áhrif á orðspor viðkomandi bæði meðal sjúklinga og kollega.“

Textinn er fenginn úr leið­beiningum félagsins um notkun félags­manna á samfélags­miðlum. Settar eru fram nokkrar leið­beiningar­reglur til félags­manna um notkun samfélags­miðla. Í reglu númer 3 er farið yfir að íhuga vel hvort skynsamlegt er að deila efni á samfélags­miðlum og í henni segir: „Allir njóta tjáningar­frelsis og skoðana­frelsis en þessum mann­réttindum eru takmörk sett. Meiðyrða­löggjöf nær til netsamskipta. Þess vegna er skynsamlegt að forðast athuga­semdir um einstaklinga, félög eða stofnanir sem túlka má sem tilefnis­laus eða óstaðfest og þar með mögulega meiðandi.“

Þá nær ein reglan eða sú áttunda utan um siða­reglur Lækna­félags Íslands og vakin er athygli á því að læknar hugi einnig að þeim í öllum samskiptum sínum á samfélags­miðlum. Í megin­reglum siða­reglna segir að læknar skuli virða læknis­starfið og sýna ábyrgð í starfi og sýna vammleysi í líferni og starfi. 

Í fyrstu grein siða­reglna lækna segir að lækni sé „ósæmandi að takast á hendur nokkra sýslu er skerðir sjálf­stæði hans sem læknis og gæta heiðurs lækna­stéttarinnar jafnt í læknis­störfum sínum sem öðrum athöfnum.“  Í sömu grein kemur fram að „Læknir skal rækja starf sitt af vandvirkni og samviskusemi án tillits til eigin hagsmuna, persónulegra skoðana, stjórn­mála, þjóðernis, trúar­bragða, kynþátta, kynferðis, kynhneigðar eða annarra utan­aðkomandi áhrifa.“ Á þessum grund­velli og öðrum úrskurðar siðanefnd Lækna­félags Íslands um brot á siða­reglum lækna. Nýlega hefur læknir verið áminntur af nefndinni fyrir ummæli sín á samfélags­miðlum og hefur Stundin óskað eftir þeim úrskurð frá félaginu. 

„Það sem ég er að hvetja til, er að konan gæti sín, kyneðlið er villi­dýrs eðli ef það fer af stað“

Í siða­reglunum má finna kafla er varðar auglýsingar lækna, vefsíður og fjölmiðla. Í 17. grein siða­reglna segir: „Lækni hlýðir að birta nýjungar í fræði­grein sinni með mikilli gát, hann skal gæta fyllstu varkárni í ummælum um fagleg mál og hann skal íhuga ábyrgð sína í því efni, hvort sem hann ræðir við einstakling eða á opinberum vettvangi. Enn fremur er komið inn á það í 19. Grein siða­reglna að læknir skuli forðast ummæli sem geti skapað óþarfan eða óréttlætanlegan ótta við sjúkdóma eða órökstudda vantrú á læknis­starfi.

Í því samhengi má líta til ummæla Guðmundar um getnaðar­varnir: „Ung kona í blóma lífsins, segum 18-23 ára ákveður að bindast engum manni (ennþá) heldur fer hún út á lífið á eigin spítur, kaupir eða leigir íbúð og ferð að vinna eða í nám. Varla er neitt óeðlilegt við það? Reynslan sýnir að þessi sólóferð konunnar tekur kannski 10 ár, jafnvel 15 af dýrmætasta tíma hennar. Á þeim tíma er hún hugsanlega með hjálp pillunar í tengslum við nokkra menn en ákveður ekki með framhald, fjölskyldu­stofnun eða börn, sem gefur eins og flestir vita mesta gæfu og ekkert getur komið í staðinn fyrir, hvorki fyrir einstaklinginn eða samfélagið.“

Í annari færslu talar hann um að kynfræðsla dagsins í dag sé í röngum höndum. Fyrir það fyrsta kynnir hún börn fyrir „alls konar perversjónir“ og gefi „gulgrænt“ ljós á kynlíf fyrir hjónaband sem skaði konur mest. Í færslunni kemur hann inn á pilluna og segir hana ekki hafa aukaverkanir en kynlíf hafi þær. „Betra er að fá að þroskast í friði, einbeita sér að öðru og bíða.“ í þessum tveimur færslum gefur Guðmundur sig út fyrir að vera á móti getnaðar­varna­pillunni og grefur þannig undan notkun hennar. 

Hverjum sem er er frjálst að leggja fram kvörtun eða ábendingu til siða­nefndarinnar svo hún geti tekið afstöðu til hvers tilviks fyrir sig en að öðru leyti hefur félagið ekki frumkvæði að því að meta ummæli eða framferði lækna á opinberum vettvangi sem gætu á einn eða annan hátt varðað siða­reglur félagsins. 

Samtök Norrænna heimilislækna fordæma skrifin

Jóhann Ágúst Sigurðsson, formaður Samtaka Norrænna heimilis­lækna eða Nordic Federation of General Practice, segir í samtali við Stundina að „skrif og skoðanir Guðmundar Pálssonar stangast á við grunn­gildi heimilis­lækna“. 

Í grunn­gildum heimilis­lækna segir Jóhann að tekið sé fram að „til þess að varðveita heilsu er mikilvægt að hver og einn njóti réttlætis og virðingar. Þar ber sérstak­lega að taka tillit til ójafnvægis eða óréttlætis sem skapast geti vegna kynþáttar/hörunds­litar, kyns, kynhegðunar, pólitískra skoðana, atvinnu­leysis, trúar­bragða, og svo framvegis. Í fyrr­nefndum skrifum Guðmundar er vegið að þessum þáttum,“ segir Jóhann.

„Að konan telji eðlilegt að kveikja elda karl­mannsins og bjóða manninum hálfa leið eða lengra, bara til að slökkva svo eldinn ef henni sýnist svo“

Þá segir hann að í sömu grein um grunn­gildin sé bent á að heimilis­læknar telji það skyldu sína að tala um eða segja frá ef þeir verði varir við slíkt misrétti í starfi sínu og því telji hann sig vera í þeirri afstöðu að vekja athygli á þessu vandamáli. 

Jóhann segir að Guðmundur hafi tjáningar­frelsi eins og aðrir en það sé alltaf háð þeirri stöðu sem hver og einn sé í. „Þar eð skoðunin tengist oft ekki aðeins persónunni heldur einnig stöðu/fagstétt viðkomandi. Þannig getur til dæmis stjórn­málamaður í valda­stöðu ekki tjáð sig um hvað sem er sem persóna, eða hegðað sér hvernig sem er sem persóna, samanber Trump. Læknir er einnig í svipaðri stöðu þar sem fólk getur verið háð honum eða henni vegna heilsu sinnar. Fólk er háð því að læknir sinni vanda­málum þeirra óháð þeim þáttum sem ég nefndi hér að ofan. Umræða læknis á Facebook verður þannig bæði tengd persónunni og faginu sem slíku.“

Guðmundur segist spyrja sig hvort afstaða formanns Samtaka Norrænna heimilis­lækna sé persónu­lega gegn honum. „En ég veit að hann er á öndverðri pólitískri skoðun,“ segir hann um Jóhann og heldur síðan áfram: „Ekki skil ég þetta en veit að hann Jóhann vinur minn er afar mikið í pólitíska rétt­trúnaðinum. Það er ekki gott að blanda því saman við lækningar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár