Segir íbúa Úkraínu fasta í martöð: „Við munum berjast til síðasta blóðdropa“

Olga Dibrova, sendi­herra Úkraínu gagnvart Íslandi, segir að íbúar Úkraínu séu fastir í martröð og vilji vakna til veruleika þar sem þeir hafi endur­heimt landið sitt. Hún segir að her Úkraínu og íbúar landsins, konur og karlar, muni ef til kemur berjast til síðasta blóðdropa þannig að ,,hið illa” muni ekki sigra. Eina ósk íbúa Úkraínu sé að lifa í friðsömu landi.

Olga Dibrova sendiherra Úkraínu gagnvart Íslandi segir enn óvíst hve margt fólk dó í árásum Rússa á Úkraínu í dag en að þúsundir hafi dáið síðustu daga þeirra á meðal tólf börn.
Olga Dibrova sendi­herra Úkraínu gagn­vart Íslandi segir enn óvíst hve margt fólk dó í árásum Rússa á Úkraínu í dag en að þús­undir hafi dáið síð­ustu daga þeirra á meðal tólf börn. Mynd: Aron Daði

Olga Dibrova, sendi­herra Úkraínu gagnvart Íslandi, afhenti skipunar­bréf sitt síðdegis og hélt að því loknu blaðamanna­fund í utan­ríkis­ráðuneytinu. Hún sagði þar að íbúar Úkraínu hefðu síðustu daga þurft að læra að vera til í nýjum veruleika þar sem þeim kæmi ekki dúr á auga og þar sem tár íbúa landsins hefðu runnið í stríðum straumi.

„En núna er þjóðin hætt að gráta vegna þess að hún þarf að verja landið sitt. Og við munum berjast til síðasta blóðdropa til að verja landið og ég er ekki aðeins að tala um hermenn því að óbreyttir borgarar, konur og karlar hafa gripið til vopna,“ sagði Olga Dibrova á blaðamanna­fundinum í dag.  

Olga Dibrova segir að kjarn­orkuógnin sé raun­veru­leg. Það hafi í fyrstu verið erfitt að trúa því að ráð­ist hefði verið inn í Evr­ópu­land á 21 öld­inni. Það sé hins vegar stað­reynd.
…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár