Helgi Hrafn er einn þeirra sem greindust með Covid-19 í gær

Þingmaður Pírata segir tíma­setninguna á smitinu heppilega að því leytinu til að Alþingi er ekki starfandi.

Helgi Hrafn Gunnarsson
Helgi Hrafn Gunn­ars­son Þing­maður Pírata er einn þeirra sem greindust með Covid-19 í gær. Mynd: Pressphotos.biz - (RosaBraga)

„Nú flyt ég ykkur þær fréttir að ég hef greinst með COVID-19,“ segir Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata,  í Facebook-færslu rétt í þessu. Helgi er einn þeirra nítján sem greindust með COVID-19 í gær. Hann segir óttann vera eitt einkennið.

Helgi Hrafn er einn af þeim sem greindust í gær í stærsta stökki í smit­fjölda frá því í fyrstu bylgju faraldursins á Íslandi í vor.

„Af þeirri örstuttu reynslu sem ég hef af þessum sjúkdómi er mér orðið ljóst að fólk verður hratt ótta­slegið og óþreyju­fullt eftir upplýsingum. Því vil ég minna á að þetta er ferli, og smit­rakning tekur einhvern tíma. Greiningin kom í gærkvöldi og ég hef gert lítið annað en að tala við fólk, ýmist sérfræðinga eða nákomna, sinna smit­rakningu og tilflutningi í einangrun.“

Helgi Hrafn vill biðla til þeirra sem hafa hitt hann í vikunni. „Ef þið hittuð mig á mánudag eða þriðjudag og við umgengumst hvort annað í meira en 15 mínútur, og ekki hefur verið haft samband við ykkur frá smit­rakningu nú þegar, getið þið haft samband við mig og ég svara eftir bestu getu. Ég hef haft samband við sum ykkar en ekki önnur og stýrist það af aðstæðum. Ykkur er frjálst að henda í mig spurningum ef þið hafið áhyggjur, en athugið að ég er ekki sjálfur endilega með öll svörin. Ég reyni mitt besta til að upplýsa fólk með áhyggjur eftir bestu vitund.“

Alþingi hefur ekki verið starfandi frá 4. september og því eru engar líkur á smiti tengdu störfum löggjafans. Það tekur aftur til starfa 1. október.

„Þannig að þótt COVID-19 smit sé alltaf óheppilegt, þá er tíma­setningin gagnvart þing­störfum ekki sú versta upp á smit­leiðir og þingstörf að gera. Að sjálfsögðu er þó farið í einu og öllu eftir tilmælum og ráðgjöf sóttvarnar­yfirvalda þegar kemur að þing­lokknum og starfs­fólki hans, t.d. hvað varðar sóttkví. Þá er Alþingi að sjálfsögðu meðvitað um stöðuna og hefur gert viðeigandi ráðstafanir.“

Hann segir heilsu sína „ágæta enn sem komið er“. „Endilega farið varlega. Það kom mér ekki minna á óvart að smitast en það kæmi þér að smitast núna. Við erum öll almanna­varnir.“

Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði, hefur sagt að fjölgun smita nú komi honum á óvart. „Það er eitt­hvað í gangi,“ sagði hann í samtali við mbl.is í dag.

Þá hefur Kári Stef­ánsson, forstjóri Íslenskrar erfða­greiningar, varað við því að svæsin bylgja gæti verið í uppsiglingu.

Ungt fólk er meirihluti þeirra sem greindust í gær. Víðir Reynisson, yfir­lögreglu­þjónn hjá Ríkis­lögreglu­stjóra, segir að 13 smit sem greindust í fyrradag hafi einkum verið rakin til Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík og ótilgreinds veitinga­staðar í Reykjavík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár