Margt stóð sér á sviði í liðnum þingkosningum sem komu til utan dagskrár. Bæði sjálf kosningabaráttan og eftirleikurinn báru dám af óvæntu upphafinu. Kannski má segja að eiginlegir ómöguleikar hafi verið haldnir í íslenskum stjórnmálum þar sem hver kepptist við að útiloka hinn þar til allt fór í hnút. Svo tók við stólaleikur við ríkisstjórnarmyndun sem um tíma minnti þó fremur á skollaleik. Fleira stóð sér á parti. Metfjöldi flokka á landsvísu náði kjöri eða sjö talsins og í fyrsta sinn í nálega þrjátíu ár blasti ekki beinlínis við hvaða stjórn yrði mynduð. Fjórflokkurinn svokallaði sem áður skipti á milli sín langflestum þingsætum var í sárum eftir verulegar umhleypingar í pólitíkinni undangengin misseri og ár, með aðeins ríflega helming atkvæða, á meðan nýlegri – og sumir hverjir satt að segja æði nýstárlegir – flokkar áttu sviðið. Raunar er leitun að annarri tíð þegar eins lítil stjórnmálareynsla var samankomin á Alþingi …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.

























































Athugasemdir