„Huggun í því hvað við erum mörg í sömu sporum“

Myrra Leifs­dóttir er með meistara­gráðu í myndlist en hefur undan­farin ár unnið sem flug­freyja hjá Icelandair. Hún var ein af þeim níu hundruð flug­freyjum félagsins sem sagt var upp í lok apríl. Hún segir eftirsjá af starfinu sem hún kunni vel að meta en íhugar að fara aftur í háskólann í haust.

Með Elmu, yngstu dóttur sinni
Með Elmu, yngstu dóttur sinni Myrra Leifs­dóttir kann vel að meta flug­freyju­starfið. Hún von­ast eftir því að kom­ast aftur í flugið en skoðar ýmsa mögu­leika. Mynd: Heida Helgadottir

„Þetta gerðist allt svo hratt. Fyrir þremur mánuðum vissi ég varla að þessi veira væri til, en nú er allt breytt. Ég var í fríi úti í Ameríku með fjöl­skyldunni í febrúar og vorum lítið að hugsa um veiruna og fátt sem minnti á hana. Ég man að systir mín sagði: „Það eru komin tvö tilfelli af veirunni hérna í Flórída. Við skulum vera dugleg að þvo okkur um hendurnar.“ Örfáum vikum seinna er ég í flugi til New York og geng þar um tómar göturnar. 

Líkt og meirihluti starfs­manna Icelandair fékk Myrra uppsagnar­bréf í lok apríl. Hún vinnur nú uppsagnar­frestinn og er á „stand-by“ stöku daga, en fer þó ekki í flug enda lítið sem ekkert flogið þessa dagana. Hvað svo tekur við hefur hún ekki hugmynd um. Hún er með meistara­gráðu í myndlist og var byrjuð í öðru meistara­námi, í ritlist, þegar flugið lokkaði hana til sín. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár