Hvernig stuðlum við að velgengni barna?

How Children Succeed – Grit, Curiosity, and the Hidden Power of Character eftir Paul Tough er áhugaverð og marg­slungin bók sem kastar lesendum beint ofan í djúpu laug uppeldis­fræði, þroska­sálfræði og tauga­lífeðlisfræði, en þar leitast höfundurinn við að benda á það sem mestu máli skiptir í uppeldi barna og hvað hjálpi þeim að standa sig vel í námi. Paul tekur fyrir áhuga­verðar og mikil­vægar kenningar fræði­manna þar að lútandi og lýsir umbóta­starfi hinna ýmsu mennta­frömuða í Banda­ríkjunum, nýjum áherslum og aðferðum í kennslu og skóla­starfi. Hann beinir sjónum sínum sérstak­lega að samspili hormóna, tilfinninga og heila­starfsemi á meðan börn eru að vaxa úr grasi og þeim jákvæðu þáttum í skapgerð barna sem hjálpa þeim að ná árangri og öðlast lífs­fyllingu. Bókin hefst á því að fjalla um börn frá brotnum heimilum og skólum í vanda og lýsir slökum náms­árangri sem mörgu velmeinandi og umbóta­sinnuðu mennta­fólki hefur ekki tekist að afstýra og ekki er hægt útskýra með því að vísa einungis til lélegrar kennslu eða fjár­skorts. Dæmi eru tekin af skólum í fátækum hverfum sem glíma við fjar­vistir, brott­falli, agaleysi og ofbeldi, en sterk fylgni er á milli erfiðra uppeldis­aðstæðna og slælegrar frammistöðu í skóla ásamt slakrar náms­framvindu. Alvarleg skakka­föll snemma á lífs­leiðinni, skortur á tengslum við foreldra og sú streita sem fylgir því að alast upp í fátækt og óreiðu hefur hamlandi áhrif á lykil­þætti þess að þrauka skóla­daginn og standa sig vel í námi sem krefst þess að börnin einbeiti sér, geti haldið kyrru fyrir og fylgt fyrir­mælum.

Ljónið og lánið

Rétt eins og hjá öðrum spendýrum þróaðist streitu­viðbragðs­kerfi manns­líkamans til þess að bregðast við skyndilegri og alvarlegri hættu. Það kom sér afar vel þegar fólk komst í tæri við rándýr á gresjunum og þurfti annað hvort að leggja til atlögu eða forða sér í snarhasti. Þegar möguleg hætta er á ferðum seytir undir­stúka heilans (hún stjórnar ómeðvituðum líffræði­legum ferlum eins líkams­hita, hungri og þorsta) efnum sem koma af stað keðjuverkun í hormóna­kerfi líkamans og virkja herskara sértækra streitu­viðbragða til þess að manneskjan sé betur í stakk búin til að takast á við hana; tauga­sendar eru virkjaðir, magn glúkósa og bólgu­próteina eykst í blóðinu á meðan hjarta- og æðakerfið dælir því í vöðvana. Flestir kannast við líkamleg áhrif streitunnar sem fylgja hættu­legum eða óþægilegum aðstæðum (eins og þurfa að halda óundirbúna ræðu): ótta­tilfinningu og kvíða, hröðum hjartslætti, þvalri húð og munn­þurrki. Þrátt fyrir að viðbragðs­kerfi þetta, sem við höfum fengið í arf, sé afar marg­slungin smíð er það hvorki sérsniðið að streitu­völdum nútíma­lífs né fært um að greina aðstæður þannig að líkaminn bregðist við í samræmi við hættuna. Paul leggur til að við sjáum það fyrir okkur eins og afar fullkomna slökkvistöð sem sendi alla bíla á fleygi­ferð með sírenuna í gangi í hvert einasta útkall. Það komi sér vel þegar um stórbruna sé að ræða en valdi í meirihluta tilfella óþarfa álagi eða umferðar­slysum. Streitu­viðbragðs­kerfi nútíma­fólks virkjast oftar en ekki af hugrænum ferlum við að hafa áhyggjur af hlutum eins og afborgunum lána, sambands­erfiðleikum eða starfs­frama en ekki við að mæta ljóni á gresjunni. Vísinda­menn eru einnig byrjaðir að átta sig á því að kerfið er ekki aðeins gagns­laust í slíkum tilfellum heldur getur auk þess haft skaðleg áhrif á líkamann sé það virkjað endur­tekið langtímum saman – sérstak­lega á heila­þroska barna.

Hversu mikilvægt er að skilja tauga­lífefna­fræðileg áhrif streitu til þess að bregðast við náms­örðugleikum og hegðunar­vanda barna sem alast upp í skugga fátæktar og óreiðu? „Það er dálítið undarlegt að þessar rann­sóknir eru bæði afar áhuga­verðar og hjálplegar, en þegar maður hefur sökkt sér í þær bjóða þær ekki upp á augljósar lausnir. Við búum nú yfir nákvæmum skilningi á því hvernig uppvöxtur í óreiðu­fullu umhverfi hefur áhrif á ákveðinn hluta heila þeirra og samspili hormóna, erfða­þátta og hegðunar, en það hefur ekki leitt til uppskriftar að lausn vandans eða mun leiða til hennar. Það er ekki þannig að við getum fengið pillu eða sprautu sem bregst við áhrifum kortisóls á heila­þroska. Lausnirnar sem hafa verið lagðar til lúta að breyttu umhverfi barnanna, í skólanum og heima fyrir. Jafnvel þótt við skildum ekki þessa tauga­lífeðlisfræði­legu þætti sem hafa áhrif á líf þessara barna myndum við eflaust bregðast við á svipaðan hátt og við erum að gera. Samt sem áður eru þeir mjög gagnlegir að mínu mati, að því leyti að þeir breyta sýn manns hvort sem maður er vísinda­maður, foreldri eða barna­læknir. Manni verður ljóst að þetta er hvorki tilviljunum háð né vegna þess börn sem alast upp í erfiðum aðstæðum skorti góðar fyrir­myndir eða eitthvað slíkt. Umhverfi þeirra hefur þessi djúpstæðu áhrif á þau.“

Gott atlæti: að sleikja og snyrta

Í How Children Succeed er fjallað um rann­sóknir sem benda til þess að áhrif góðs uppeldis séu lífefna­fræðileg, hafi jákvæð áhrif að þroska heilans og geti dregið úr áhrifum skaðlegra þátta í umhverfi barna. Einnig eru líkur leiddar að því að framkoma foreldra hafi áhrif á gena­tjáningu í mönnum og rottum. Paul fjallar um vísinda­menn, sem fylgdust náið með ólíku uppeldi rottuunga; annars vega þeirra sem reglulega voru snyrtir og sleiktir í bak og fyrir af mæðrum sínum og hins vegar þeirra sem skorti slíkt atlæti. Fyrr­nefndu rottu­ungunum vegnaði almennt betur og voru heilbrigðari, áræðnari, félags­lyndari, forvitnari og lunknari að finna réttu leiðina í gegn um völundarhús á meðan margir hinna vanhirtu unga voru tauga­veiklaðri, árásar­gjarnari og síður í stakk búnir til þess að leita sér að fæðu. Atlætið sem ungarnir fengu í upphafi hafði afgerandi áhrif á heila­þroska þeirra og hegðun síðar á lífs­leiðinni. Eins eru til rann­sóknargögn sem benda í sömu átt hvað mann­fólkið varðar og þar komum við niður að kjarna alls uppeldis, sem eru gömul sannindi og ný: sú tengsla­myndun og gott atlæti sem hlýst af náinni samveru foreldra og barna skiptir höfuðmáli fyrir þroska þeirra og velferð. Þetta er eitthvað sem ætti að vera á allra vitorði en er það samt ekki eða virðist gleymast. Til er þver­faglegur samstarfs­hópur á Íslandi sem heitir SAMAN hópurinn og hefur hann það meðal annars að markmiði að koma jákvæðum skila­boðum til foreldra sem beina athygli þeirra að ábyrgðinni sem fylgir uppeldis­hlutverkinu og hvetja til jákvæðra samskipta innan fjöl­skyldunnar. Hópurinn er skipaður forvarna- og tómstunda­fulltrúum og félags­ráðgjöfum auk verkefna­stjóra hinna ýmsu félaga­samtaka sem vinna á einn eða annan hátt að velferð barna og ungmenna. Samvera skapar góð tengsl er eitt af slagorðum hópsins og á rætur sínar í niður­stöður rannsókna sem sýna að börn og unglingar sem verja tíma með foreldrum sínum eru síður líklegir til að sýna ýmis konar áhættu­hegðun.

Í bókinni fjallar höfundur einnig stuttlega um fræðimenn sem halda því fram að stuðnings­úrræði fyrir foreldra séu bæði áhrifa­ríkari og ódýrari fyrir samfélagið en að takast á við afleiðingar slæmra uppeldis­skilyrða síðar meir með uppbótar­kennslu eða sérstöku starfsnáms­átaki og skili áþreifanlegum efnahags­legum ávinningi til lengri tíma. Þar sem allt virðist benda til ótvíræðs mikil­vægis umhyggju­sams uppeldis og foreldra­færni liggur beint við að spyrja hvernig best sé að að styðja þá foreldra sem einhverra hluta vegna valda börnum sínum kvíða og streitu eða sýna skort á umhyggju í uppeldis­hlutverkinu. Paul segir marg­vísleg stuðnings­úrræði vera í boði en að þau sem séu áhrifa­ríkust eigi það sameiginlegt að fagaðilar vinni með foreldrum í áhættu­hópi á beinan hátt og hjálpi þeim að mynda sterk tilfinninga­tengsl á meðan börnin eru ung. „Í stað þess að gefa þeim bæklinga og fyrirmæli eða gagnrýni fara þeir til þeirra og fylgjast með þeim eiga samskipti við börnin sín og benda þeim á uppbyggilega framkomu sem er líkleg til þess að stuðla að eðlilegum þroska heilans og streitu­viðbragðs­kerfisins. Það að koma einfald­lega auga á þessa jákvæðu þætti og segja: gerið meira af þessu! virðist hafa mikil áhrif á hegðun foreldranna.“

Ókostir allsnægtanna og efnuðu þyrluforeldrarnir

Uppeldis­legur vandi í Banda­ríkjunum einskorðast ekki við tekju­lægri þjóð­félagshópa eða foreldra í heljar­greipum vímuefna­neyslu eða heimilis­ofbeldis, heldur er hann einnig að finna í efstu lögum samfélagsins. Uppeldis­aðstæður margra barna í velmegandi fjöl­skyldum einkennast af tilfinningalegri fjarlægð, skorti á samvistum og kröfum um velgengni í námi og íþróttum, sem erfitt er að standa undir. Saman geta þessir þættir myndað eitraðan kokteil og kynt undir tilfinningar eins og skömm og vanmátt. Um er að ræða börn og ungmenni sem frá leik­skólaaldri sækja virtar skóla­stofnanir með háum skóla­gjöldum og þungum inntöku­prófum. Í huga foreldranna er þetta vegferð sem á að tryggja þeim öruggan starfs­frama en hefur gjarnan innihalds­rýrt líf í för með sér og elur af sér börn sem eru frekar drifin áfram af óttanum við að mistakast en nokkurri heil­steyptri þrá. Í þessu samhengi verður Paul tíðrætt um svokallaða þyrlu­foreldra og bið ég hann um að skilgreina það nánar. „Það er hugtak sem er notað um foreldra sem eru alltaf á sveimi yfir börnum sínum. Þeir eru oftast vel stætt fólk sem vill ekki leyfa börnum sínum að leysa eigin vandamál og heyja eigin orrustur. Þannig taka þeir ákvarðanir fyrir þau og hjálpa í gegn um hverja einustu krísu og vandamál. Þessi þrá er til staðar hjá hverju foreldri þar sem enginn vill sjá barnið sitt í erfið­leikum en með því að greiða leið þess er maður að gefa þau skilaboð, oft ómeðvitað, að það geti ekki tekist á við eigin vandamál og geti ekki séð um sig sjálft.“

Foreldrar finna flestir hjá sér hvöt til þess að koma til móts við þarfir barna sinna, vernda þau fyrir hvers kyns hættum og óþægindum, en þar rekumst við á þverstæðu í foreldra­hlutverkinu: að tilhneigingin til að vernda börnin getur hamlað þeim og gert þeim meira illt en gott. Dekur og ofvernd er dýru verði keypt með lágum þröskuldi fyrir mótlæti og mögulegum skapgerðar­brestum. Paul hefur kynnst sér rann­sóknir sem taka fyrir börn sem alast upp við alls­nægtir en stríða við ýmis konar vanda eins og kvíða, árásar­hneigð og vímuefna­misnotkun. Telur hann að það megi að mörgu leyti rekja til foreldranna. Það geti verið flókið að takast á við vanda barna sem alast upp í velmegun vegna þess að ekki er litið á hann á sama hátt og slakan árangur barna af litlum efnum, þar sem þau njóta ýmissa forréttinda og tækifæra og því liggi ekki beint við að það sé hlutverk ríkisins að stíga inn í aðstæðurnar og aðstoða foreldrana. Hins vegar segir hann ákveðna vakningu vera að eiga sér stað meðal efnameiri foreldra. „Það sem mér finnst hvetjandi er, að margir þeirra eru meðvitaðir um þennan vanda og hafa keypt bókina mína og aðrar bækur og vita að umhverfi barna sinna valdi þeim streitu. Þeir hafa ekki alltaf fundið bestu leiðina til þess að takast á við þetta og ég held að það sé alls ekki auðvelt þar sem sem krafan um árangur kemur frá foreldrunum sjálfum, skólunum, vinnu­stöðum og samfélaginu öllu.“

Frá Aristótelesi og Konfúsíusi til Pokémon

Það er því ekki svo einfalt að gáfnafar og efnislæg gæði feli í sér nægjanleg skilyrði fyrir heil­brigðum uppvexti og velgengni í námi. Á hinn bóginn eru dæmi um nemendur sem alast upp við fátækt og erfiðar heimilis­aðstæður en ná samt sem áður að yfirstíga þær hindranir sem á vegi þeirra verða og standa sig vel. Því er mennta­fólk í auknum mæli farið að skoða þætti í fari einstaklinga sem hægt er að kalla skapgerðar­styrkleika, dygðir eða mannkosti (Character Strengths); kosti sem gera manneskjuna burðugri og líklegri til þess að sigrast á erfið­leikum og standa sig vel í þeim verkefnum sem hún fæst við. Talsverð gerjun hefur átt sér stað undan­farin ár í þessum málum og hefur hún haldist í hendur við aukinn áhuga almennings og fræði­manna á jákvæðri sálfræði. Í þessu samhengi má nefna tvo ólíka grunnskóla­skóla í New York til sögunnar: KIPP Academy (Knowledge Is Power Program) í Bronx og Riverdale Country School sem stað­settur í iðagrænu hverfi sem ber sama nafn og hefur verið heimkynni auðugustu fjöl­skyldna borgarinnar um langt skeið. David Levin, stofnandi KIPP, þótti sýna fram­úrskarandi árangur í því að taka á móti nemendum af litlum efnum og gera þá að afbragðs náms­mönnum. Áður en langt var liðið frá stofnun skólans árið 1994 voru einkunnir nemenda hans að meðaltali þær fimmtu hæstu í allri borginni. Nemendur skólans stóðu sig að jafnaði afar vel en Levin tók eftir því að það tók að fjara undan mörgum þeirra þegar framhalds­skólanámið tók við. Hann áttaði sig á því, að þeir sem ekki heltust úr lestinni voru ekki endilega þeir sem áður höfðu fengið hæstu einkunnirnar heldur þeir sem bjuggu yfir eigin­leikum eins og bjartsýni, þraut­seigju og félagslegri lipurð; nemendur sem gátu tekist á við slæmar einkunnir með því að spýta í lófana og gera betur næst, jafnað sig á sambands­slitum eða ósætti við sína nánustu og staðist freistinguna að fara út á lífið í stað þess að sinna náminu. Levin og starfs­fólk hans hafði frá upphafi freistað þess að skapa góðan og hvetjandi skólabrag og hlúa að skapgerð nemenda með ýmsum aðferðum eins og hvatningar­fundum, uppörvandi vegg­spjöldum og slagorðum, en eitthvað meira þurfti til að þeir fengu sem bestan undir­búning fyrir lífið eftir útskrift.

David Levin hefur um þó nokkur skeið skeggrætt þessi mál við skóla­stjórann í Riverdale, Breta á sextugsaldri að nafni Dominic Randolph. Dominic telur það hlutverk skólans að hlúa að og móta heilbrigða skapgerð og er á þeirri skoðun að það sé ekki aðeins ósann­gjarnt að meta nemendur aðeins eftir próf­niðurstöðum og greindar­vísitölu þar sem þannig sé ekki einungis horft fram hjá veiga­miklum þáttum í því að vera farsæl manneskja, heldur sé einnig verið að búa svo um hnútana að nemendur öðlist ekki þá færni sem þarf til að standast áskoranir lífsins. Þeir félagar hafa kastað fram ýmsum hugmyndum á milli sín eins og um hvernig hægt sé að vinna með þessa þætti í skóla­starfinu og hvort umsögn um skapgerð nemenda eða einhvers konar einkunna­gjöf ætti að vera við lýði. Levin þótti hugmyndin um skapgerðar­einkunnir nógu góð til þess að hefja vinnu við að þróa slíkt mat en Randolph óttast að um leið og einhvers konar skali sé búinn til sem komi fram á einkunna­spjaldinu muni metnaðar­fullir nemendur reyna að læra inn á kerfið til þess að fá sem hæstar einkunnir.

Þeir Randolph og Levin hafa sótt innblástur í bók sálfræðinganna Martin Seligman og Christopher Peterson Martin sem ber titilinn Character Strengths and Virtues: A Handbook and Classification. Við gerð bókarinnar leituðu sálfræðingarnir víða fanga; allt frá dygða­siðfræði Aristóelesar, verkum Konfúsíusar og indverskum og gyðinglegum helgi­ritum til skáta­hand­bókarinnar og Pokémonspila til þess að setja saman lista tuttugu og fjögurra skapgerðar­kosta sem væru hafnir yfir landamæri menningar­svæða og tímabila og myndu leiða til hamingju- og innihalds­ríks lífs. Randolph og Levin þótti listinn of langur til þess að hann kæmi að gagni í skóla­starfi og báðu Peterson um að skera listann niður í mannkosti sem tengdust lífs­fyllingu og árangri sérstak­lega. Niður­staðan varð eftir­farandi: þraut­seigja, sjálf­stjórn, lífsgleði, félags­greind, þakklæti, bjartsýni og forvitni.

Fínstilltur kvikindisskapur

Mann­kostir, skapgerð eða dygðir – sama hvaða nafni við nefnum þetta þá eru orðin vandmeðfarin og geta haft ólíka merkingu milli fólks. Þrátt fyrir að flestir foreldrar reyni að hafa jákvæð áhrif á skapgerðar­þroska barna sinna og innræti þeim bæði meðvitað og ómeðvitað einhvers konar gildi er viðfangs­efnið eldfimt í allri umræðu um menntamál. Í Banda­ríkjunum hefur fólk verið uggandi yfir því að leggja áherslu á skapgerðar­menntun eða dygðir í skóla­starfi og sumir óttast móralisma eða pólitíska innrætingu. Þrátt fyrir það hafa fleiri og fleiri komist á þá skoðun að undan­förnu að skapgerð skipti máli í menntun en Paul bendir á að flestar tilraunir til að hlúa að mann­kostum og styrkja skapgerð séu yfirborðs­kenndar og ómark­vissar. En hvernig er hægt að gera þetta vel? Vel heppnuð skapgerðar­menntun hlýtur að þurfa að fela eitthvað meira í sér en hvatningar­fundi eða vegg­spjöld með slagorðum? „Eftir því sem ég les mig betur til og hugsa meira um þetta verð ég sannfærðari um að það sé ekkert vit í því að reyna að kenna skapgerð á sama hátt og stærð­fræði eða sögu. Það er ekki til mikið af gögnum sem sýna að þessar aðferðir duga og margt sem bendir til þess að frumkvöðla­verkefni sem reyni að kenna það á þennan hátt virki ekki. Ég held að það sé heilla­vænlegra að hjálpa krökkum að þróa styrk­leika sína í gegn um náms­umhverfið. Það getur augljós­lega haft eitthvað að gera með samband full­orðinna og barna með því að auka á samkennd meðal ungs fólks og tengsl þess við skólann en ég held að vinnan sem þau fáist við skipti meira máli og umgjörðin sem er sköpuð um hana innan skólans þar sem hægt er að læra af mistökum og skakka­föllum á meðan vinnunni vindur fram.“

Lesendur kynnast mörgum áhuga­verðum mennta­frumkvöðlum, kennurum og vísinda­mönnum á síðum bókarinnar en sá eftir­minnilegasti er skák­kennarinn Elizabeth Spiegel. Elizabeth kennir skák í Intermediate School 318 í Brooklyn og hefur náð miklum árangri með nemendur sína á landsvísu en beitir jafnframt óvenjulegri aðferða­fræði. Þegar hópurinn keppir á mótum koma krakkarnir eftir hverja skák til hennar með leik­bókina (hvort sem þeir hafa unnið eða tapað) og skoða framvindu leiksins lið fyrir lið. Tilgangurinn er að hægja á hugsana­ferlinu, stilla hvat­vísina af, grand­skoða afleikina og velta upp öðrum mögu­leikum í stöðunni. Spiegel er á þeirri skoðun að krakkar þurfi stundum á því að halda að heyra að frammistaða þeirra sé ófullnægjandi því annars hafi þeir enga ástæðu til þess að bæta sig. Hún viðurkennir að hún geti verið hvöss (eitt sinn algjör tík að eigin sögn) þegar nemendur hennar leiki af sér í óðagoti og tapi en ögranir hennar sýna að hún tekur þau alvarlega og er annt um að þeim fari fram. Hún segir þeim jafnframt að það að tapa sé eitthvað sem maður geri en skilgreini mann ekki sem einstakling. Paul segir að þegar krakkar hugsi að þau séu einfald­lega ekki nógu klár þegar á móti blási hamli það getu þeirra til að skila árangri: „Þegar manni tekst að sannfæra þau um hið gagnstæða, þegar maður hjálpar þeim að skilja, að við getum öll breyst og þróað ólíka færni með því að leggja okkur fram gengur þeim miklu betur.“ Þrátt fyrir að flestum þyki óþægilegt að dvelja við mistök sín og horfast í augu við eigin takmarkanir, er það óneitanlega lærdóms­ríkt og veitir tækifæri til framfara og þroska, sé það gert með réttu hugarfari. Eftir að hafa skoðað fjölmargar tilraunir til hlúa að styrk­leikum nemenda segir Paul að það sem hún sé að gera í skák­kennslu sinni komist næst því að vera aðferð til þess að takast á við skapgerð og megi nýta í kennslu annarra faga eins og stærð­fræði: „Það sem gerir þetta svo áhugavert er að Elizabeth Spiegel talaði aldrei um skapgerð, hún setti ekki upp nein vegg­spjöld eða flutti fyrir­lestra um mannkosti.“

Er einkunnaspjaldið mælikvarði alls?

Ný aðal­námskrá leit dagsins ljós á Íslandi árið 2011 sem byggir sex grunn­þáttum menntunar og boðar nýtt námsmat sem byggir á hæfni­viðmiðum og lykil­hæfni sem skilgreind eru í fimm þáttum: tjáning og miðlun, skapandi og gagnrýnin hugsun, sjálf­stæði og samvinna, nýting miðla og upplýsinga og ábyrgð og mat á eigin námi. Lykil­hæfnina átti upphaf­lega að meta til einkunnar þvert á náms­greinar en fallið var frá því eftir að Illugi Gunnarsson tók við mennta- og menningar­mála­ráðuneytinu þar sem honum þótti lykil­hæfni­einkunnirnar fela í sér dóma um mannkosti barna. Um þetta eru einnig skiptar skoðanir vestanhafs þar sem fólk hefur spurt sig, hvort skapgerð eigi að koma fram á einkunna­spjaldinu ef hún eigi erindi í formlegri menntun. Skóla­stjórinn í Riverdale vill ekki að þetta verði að eigin­leikum sem hægt sé að gera sér upp eða læra utan að. Er hætta á því að þessir kostir eða dygðir verði óeinlægir eða uppgerð við einkunna­gjöf eða annars konar mat? „Ég held að hann hafi rétt fyrir sér að mörgu leyti. Ég held að einkunna­spjaldið í KIPP sé áhugaverð tilraun og mögulega góð leið til þess að fá kennara, foreldra og nemendur til þess að ræða mannkosti sín á milli en það mun ekki endilega hjálpa þeim að þroskast. Ég hef áhyggjur af því að það reynist árangurs­laust eða komi í bakið á nemendum ef að þeir halda að um sé að ræða sérstaka eigin­leika þau annað hvort hafi eða ekki. Hugmyndin um mannkosti sem sérstök fyrirbæri, sem hægt sé að mæla, virðist mér ekki vera uppbyggileg, hvernig sem það yrði framkvæmt. Að mæla þraut­seigju eins barns í saman­burði við annað og kveða upp dóm yfir þeim er ekki gagnlegt. Ég held að það sé árangurs­ríkara að láta þau fást við krefjandi verkefni sem ýta þeim út fyrir þægindarammann og fylgjast með sér bæta frammistöðu sína. Ég held að það sé mjög vald­eflandi fyrir krakka,” segir Paul að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár