Leiksigur!

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um sýninguna Vertu úlfur sem Þjóð­leikhúsið sýnir um þessar mundir.

Vertu úlfur
Vertu úlfur Mynd: Þjóðleikhúsið

Þjóðleikhúsið: Vertu úlfur

Leikverk eftir Unni Ösp Stef­ánsdóttur byggt á samnefndri bók Héðins Unnsteins­sonar

Leik­stjóri: Unnur Ösp Stef­ánsdóttir

Leikmynd og myndbands­hönnun: Elín Hans­dóttir

Búningar: Filippía I. Elís­dóttir

Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson og Halldór Örn Óskarsson

Dramatúrg: Hrafnhildur Hagalín

Tónlist í leik­sýningu: Valgeir Sigurðsson

Hljóð­hönnun: Elvar Geir Sævarsson

Leikari: Björn Thors

Það er auðvelt að hrífast af leik­sýningunni Vertu úlfur. Hún fjallar um áleitið efni, geðsjúkdóm, byggir á samnefndri sann­sögulegri frásögn Héðins Unnsteins­sonar, sem í sögu sinni segir frá eigin reynslu, sem á stóra sviði Þjóð­leikhússins er túlkuð í leikgerð og leik­stjórn Unnar Aspar Stef­ánsdóttur af leik­aranum Birni Thors – sem er einn á sviðinu í um eina og hálfa klukku­stund, sem eitt og sér er aðdáunar­vert afrek.

Þegar áhorf­endur koma sér fyrir í sal Þjóð­leikhússins röltir Björn Thors um forsviðið, tjaldið er dregið fyrir og brátt gefur hann til kynna að hann ætli að segja sögu sína og ekki einungis það – hann sker úr um það, að við, áhorf­endur, séum hluti af því samfélagi sem fór illa með hann, beitti hann alvarlegu ranglæti og hann ætlar að segja sögu sína hér – á stóra sviði Þjóð­leikhússins og ekki verður skilið annað en hann ætli að renna stoðum undir ákæru sína og sannfæra okkur um sekt samfélagsins. Okkar.

Í leikskrá er hann aðeins nefndur „leikari“, og ég skil það þannig að reynt sé að færa sýninguna frá uppruna sínum, sögu Héðins, og gera hana að almennara verki; ákæruna er ekki að finna jafn einarð­lega orðaða í bókinni og með ákærunni vekur leik­sýningin óneitanlega hugrenningar í átt að álíka ákærum – frægust mun trúlega vera „Je‘accuse“ Émile Zola, sem í opnu bréfi til forseta Frakk­lands ákærði samfélagið fyrir dóminn yfir Alfred Dreyfuss, sem hafði verið ákærður og dæmdur fyrir landráð. Hér talar „leikari“ beint til okkar áhorfenda, dregur okkur inn í atburða­rásina og ekki er við öðru að búast en að við munum nú verða sek fundin – samræmi við tilefnið.

Saga „leikara“ hefst á því að hann dregur hring á sviðið með sandi – það er hans punktur, miðpunktur, og inn í þann hring stígur hann til að kjarna sig og ná áttum. Innan skamms er fortjaldið dregið frá og opnar sýn inn í hugarheim hans – galtómt stóra svið Þjóð­leikhússins sem hefur sjaldan virst jafn bert og nakið, til vinstri sér í kaðlana sem eru hluti af leikhús­vélinni, ber bakveggurinn blasir við og hringsviðið, sem er greini­lega auðkennt, þar er að finna hugarrými „leikara“ og rímar við litla sand­hringinn á forsviðinu. Þessi leikmynd er vel hugsuð og þjónar fyllilega þeim tilgangi að skapa skiljanlega mynd af hugar­heimi þess sem glímir við geðhvörf – þrívíð mynd af sálrænu ástandi og sú mynd er hugvit­samlega og á köflum snilldar­lega samin og nægir að nefna myndina af ökuferðinni um Borga­fjörð þar sem „leikari“ tekur bókstaf­lega flugið upp eftir bakvegg stóra sviðsins. Leikmynd og tilheyrandi myndband er skapað af Elínu Hans­dóttur, lýsingin er hönnuð af Birni Bergsteini Guðmunds­syni og Halldóri Erni Óskars­syni og á stóran hlut í því að koma sögu „leikara“ til okkar áhorfenda. Við það má bæta búningum Filippíu I. Elís­dóttur sem ríma í lit fullkomlega við sal Þjóð­leikhússins og staðfesta að annars staðar verður þessi saga og sýning ekki sett niður og sögð.

Saga „leikara“ verður æ átakanlegri eftir því sem á líður og hápunktur hennar er þegar kemur að því að hann er tekinn með valdi af föður sínum og nokkrum til og lokaður inni á geðdeild. Allri þessari sögu gerir Björn Thors skil með mestu ágætum, brestur hvergi í úthaldi eða ákefð þar sem við á, hann heldur að því er virðist áreynslu­laust jafnvægi á hnífsegg og heldur athygli áhorfanda af öryggi. Þó ekki væri nema til þess eins að sjá Björn Thors vinna leiksigur þá er það góð ástæða til að sjá sýninguna. Hún er auk þess þarfur og skyn­samlegur innblástur í umræðu um geðheilbrigðismál á Íslandi.

Björn og leik­stjórinn Unnur Ösp notfæra sér sviðs­myndina út í æsar til að gera söguna sýnilega og tekst það alveg með ágætum, enda vinnur allt saman að einu markmiði – leikur, leikmynd, lýsing, búningar, tónlist – og gerir það með þeim virktum sem list augna­bliksins krefst. Sýningin situr eftir í huga manns, hinn einmana „leikari“ og átakanleg saga hans lifir löngu eftir að slökkt hefur verið á sviðs­ljósunum.

Eitt er þó atriði, sem undir­ritaður vill gera að umræðu­efni. Upphaf sýningarinnar minnir sterklega á aðferða­fræði þýska leik­húsmannsins Bertolds Brecht, sem einatt notaði þá tækni að láta persónur verka sinna tala beint til áhorfenda og höfða til vitræns skilnings þeirra en ekki tilfinninga. Og það er vel í samræmi við upphafs­ávarp „leikara“ til okkar áhorfenda – „ég ákæri“. Það er því eðlilegt að búast við átaka- og réttarfars­drama þar sem sann­leikurinn skal dreginn fram í sviðs­ljósið. Og vissulega ber sýningin með sér ákveðinn sannleik, sem er saga „leikara“ sögð af honum sjálfum. Við trúum því að þarna sé farið með eins og „leikari“ sjálfur man og hefur upplifað, hann er einlægur og sannur í frásögn sinni. En frásögnin verður tilfinningaleg og þegar kemur að lokum er eins og „leikari“ söðli endanlega um. Ákæran líkt og hverfur átaka­lítið og „leikari“ lítur til þeirra er í salnum sitja og fer með eins konar lykil­setningu: „ég lifi og þér munuð lifa!“ og kveður síðan uppúr með það, að hann fyrirgefi okkur. Það er eins og hrópað hafi verið einum of oft á úlfinn.

Burtu er hið Brechtska réttar­drama og hinn klassíski Aristóteles er leiddur inn á sviðið. Sagan endar á sálfræði­legu nótunum. Messíasar­tónninn í lykil­setningunni tekur við af ákærunni, sem líkt og hverfur út í buskann. Eftir situr fyrirgefningin eins og antíklímax. Það er mikill ys og þys út af litlu, því miður, og kemur til af því að hér stangast á tvær megin­stefnur í leikrænni frásögn, annars vegar hið epíska leikhús Brechts og hins vegar hinn dramatíski harm­leikur Aristótelesar. Í harm­leiknum í Grikk­landi til forna var siðferði­legum boðskap leiksins gjarnan beint til áhorfenda í lokin til að minna þá á, hvaða vegur leiddi til glötunar og hvaða vegur leiddi til farsældar og sáttar við guðina; sagan var dæmisaga og til áminningar um að þær athafnir mannsins sem ekki væru guðunum þóknanlegar leiddu til fordæmingar og tortímingar. Þegar áhorf­endur öðluðust innsæi um þetta í leikslok áttu þeir að verða fyrir því sem kallast katharsis, sem túlka má sem eins konar hreinsun hugans, innsæi um það sem rétt er og eftir­breytni­vert. Fyrirgefningin er af þeim toga spunnin; sá sem breytt hefur ranglega er fyrir­gefið og þar með hlíft við refsingu. En það gengur illa upp í leikhús­frásögn sem hefst á ákæru í stíl hins epíska leikhúss, því með fyrirgefningunni í lokin eru gjörðir hins seka – okkar áhorfenda – rúnar afleiðingum og merkingu. Samfélags­dramað fer fyrir lítið.

Það má hugsanlega segja það áhuga­verða dramtúrgíska tilraun að tefla þeim saman í sömu sögu, Aristótelesi og Brecht, en hún gengur illa upp. Leiklistar­sagan er til vitnis um það að annar þeirra reyndi af öllum mætti að forðast hinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár