Fyrsti viðskiptavinur Dunkin' Donuts ætlar ekki að fitna

Tugir biðu í röð á Laugar­veginum í von um um að fá ársbirgðir af kleinu­hringjum. Fyrsti viðskipta­vinur bakarísins blæs á áhyggjur um þyngdar­aukningu.

Fyrsti viðskiptavinurinn
Fyrsti við­skipta­vin­ur­inn Agatha Rún Karls­dóttir er í gráu úlp­unni lengst til hægri.

Löng röð var fram eftir Laugar­veginum í morgun en fyrstu fimmtíu viðskipta­vinum hins nýopnaða Dunkin' Donuts hafði verið lofað ársbirgðum af kleinu­hringjum. Ársbirgðirnar nema þó aðeins sex kleinu­hringjum á viku. Tugir manna voru í biðröð í morgun og höfðu sumir veðið í alla nótt. Mikið hefur verið rætt um böl þess fyrir Ísland að fá bakarí á borð við Dunkin' Donuts til landsins. Ýmis frægðarmenni hafa tjáð sig um málið. Til dæmis hefur Oddur Hrafn Stefán Björgvinsson, Krummi í Mínus, kvartað undan framgangi erlendra stór­fyrirtækja á Íslandi. Blogg­arinn Egill Helgason hefur sagt staði eins og Dunkin' Donuts vera eitur í borgar­menningu og bjóði upp á vondan og óhollan mat.

Löng röð
Löng röð Þeir sem höfðu lengst beðið komu fjórtán tímum fyrir opnun.
 

„Það er ekki bara að hinir alþjóð­legu skyndibita­staðir bjóði upp á vondan og óhollan mat, heldur eru þeir líka eins og sár í borgar­myndinni með sín freku vörumerki. Það er ekki gaman að ferðast og sjá alltaf sömu veitinga­húsin hvert sem maður fer. Keðjurnar stóru, auðhringirnir, grafa auðvitað undan þeim sem fyrir eru, smákaupmönnunum og smáatvinnurekendunum uns eins­leitnin verður óbærileg,“ skrifaði Egill síðastliðinn apríl og hvatti lesendur til að velja íslenskt. Fjöl­skylda Egils rekur íslenska sælkera­verslun í Reykjavík. 

Aðrir telja að staðurinn muni hvetja til ofþyngdar Íslendinga. 

Stundin ræddi við fyrsta viðskiptavin keðjunnar, Agöthu Rún Karls­dóttur, og fékk hennar álit á lýðheilsu­áhrifum Dunkin' Donuts, en hún beið í fjórtán tíma fyrir utan hið nýopnaða bakarí. Hún segist ekki hafa neinar áhyggjur af því að þyngjast þó hún fái sex fría kleinu­hringi á viku.

„Nei, ég held ég verði ekkert feitari eftir ár. Maður verður að fara í ræktina. Þetta fer bara eftir því hversu oft þú ert að borða kleinu­hringi,“ segir Agatha.

Hún segist halda að sex kleinu­hringir á viku sleppi og muni hún líka deila með vinum og vanda­mönnum.

Um áttatíu manns
Um áttatíu manns Viðstaddir töldu að um áttatíu manns voru í röðinni um níuleytið.
 

Klippti á borðann
Klippti á borðann Agatha Rún Karls­dóttir klippti á borðann

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár