Fermetraverðið hæst á stúdentagörðunum

Ef tekið er tillit til stærðar íbúða eru dýrustu tegundir leigu­íbúða hérlendis á stúdenta­görðum, en fermetra­verðið þar er 17 prósentum hærra en á almennum leigu­markaði.

Stúdentagarðar Háskóla Íslands á Sæmundargötu.
Stúd­enta­garðar Háskóla Íslands á Sæmund­ar­götu. Mynd: Af vef Félagsstofnunar Stúdenta

Meðal­fermetra­verð leigu­íbúða á stúdenta­görðum nam 2.545 krónum í september og var hærra en á nokkrum öðrum leigu­markaði hérlendis á sama tíma. Þetta kemur fram í nýlegri leigu­markaðs­könnun Húsnæðis- og mannvirkja­stofnunar (HMS).

Greint var frá niður­stöðum könnunarinnar í frétt á vef HMS, en samkvæmt þeim greiða leigjendur sem eru búsettir í stúdenta­görðum 17 prósent meiri leigu fyrir hvern fermetra heldur en þeir sem leigja af einstaklingi á almennum leigu­markaði. Verð­munurinn er 18 prósent ef leigt er af einka­reknu leigu­félagi, en 37 prósent ef leigt er af óhagnaðar­drifnu leigu­félagi.

Þeir sem leigja af ættingjum og vinum greiða svo 38 prósent minna fyrir fermetrann heldur en leigjendur á stúdenta­görðum, á meðan þeir sem leigja af sveitar­félagi greiða rúmlega helmingi minna.

Borga þó lægstu leiguna

Þrátt fyrir hátt fermetra­verð greiða leigjendur á stúdenta­görðum lægstu upphæðina í leigu, sökum þess hversu litlar íbúðir þeirra eru. Meðalstærð íbúða á stúdenta­görðunum er 48 fermetrar, á meðan stærð íbúða á öðrum leigu­mörkuðum er vanalega í kringum 80 fermetra.

Heildar­upphæðin er mest hjá þeim sem leigja hjá einka­reknu leigu­félagi, en þeir greiddu að meðaltali tæpar 200 þúsund krónur í leigu í september. Leigjendur á almennum leigu­markaði greiddu aftur á móti að meðaltali 178 þúsund krónur í leigu og þeir sem leigðu hjá óhagnaðar­drifnum leigu­félögum eða hjá ættingjum og vinum gátu vænst þess að greiða um 140 þúsund krónur í leigu. Leigjendur á stúdenta­görðunum greiddu hins vegar að meðaltali 122 þúsund krónur í leigu í september.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár