Vill ná miklum ítökum í Icelandair Group

Bandaríska athafna­konan sem keypti vörumerki WOW air eftir að flug­félagið féll skráði sig fyrir sjö milljörðum hluta í hlutafjár­útboði Icelandair, sem lauk kl. 16 í dag.

Michele Roosevelt Edwards, einnig þekkt sem Michele Ballarin, er bandarísk athafnakona sem keypti vörumerki WOW air og aðrar valdar eignir úr þrotabúi hins fallna félags í fyrra. Nú hefur hún skráð sig fyrir stórum hlut í Icelandair.
Michele Roosevelt Edwards, einnig þekkt sem Michele Ballarin, er banda­rísk athafna­kona sem keypti vöru­merki WOW air og aðrar valdar eignir úr þrota­búi hins fallna félags í fyrra. Nú hefur hún skráð sig fyrir stórum hlut í Icelandair. Mynd: Bára Huld Beck

Bandaríska athafna­konan Michele Roosevelt Edwards, einnig þekkt sem Michele Ballarin, skráði sig fyrir 7 milljarða hlut í hlutafjár­útboði Icelandair Group, sem lauk kl. 16 í dag. mbl.is sagði fyrst frá þátttöku Ballarin í útboðinu.

Í samtali við Kjarnann stað­festir Gunnar Steinn Pálsson almanna­tengill og talsmaður Edwards hér á landi að hún hafi skráð sig fyrir umfangs­miklum hlut í útboðinu, án þess þó að vilja staðfesta upphæðina.

Kjarninn hefur hins vegar heimildir fyrir því að hún sé 7 milljarðar króna, eins og bæði mbl.is og Vísir hafa þegar sagt frá, og að Edwards vilji eignast nægilega stóran hlut til þess að vera með mikil ítök í Icelandair Group.

Milljarðarnir sjö eru drjúgur hluti af þeim 20 milljörðum króna sem Icelandair Group ætlaði sér að lágmarki að safna í hlutafjár­útboðinu og helmingur af lágmarks­upphæðinni sem til þurfti frá fjár­festum til að tryggja að útboðið gengi upp.



Ríkis­bankarnir, Lands­bankinn og Íslands­banki, eru með sölu­tryggingu á útboðinu, ef það nær 14 milljörðum þá eru þeir búnir að skuld­binda sig til að kaupa fyrir 6 milljarða til viðbótar svo lágmarks­upphæðin náist. 

Fyrst heyrðist af veru Edwards á landinu í frétt á Vísi fyrr í dag eftir að til hennar sást á kaffihúsi í Borgar­túni, þar sem hún virtist vera að fara þvert á gildandi sóttvarna­reglur í landinu.

Edwards er þekkt hér á landi fyrir að hafa keypt eignir úr þrotabúi WOW air í fyrra, meðal annars sjálft vörumerki hins fallna flug­félags, en hún boðaði til blaðamanna­fundar fyrir rösku ári síðan þar sem hún boðaði endurkomu WOW air.

Hún áformaði að flug myndi hefjast á milli Dulles-flug­vallar í Washington í Banda­ríkjunum og Kefla­víkur­flugvallar í október í fyrra. Síðan þá hefur lítið heyrst af framgangi hins endurnýjaða WOW air.

Gunnar Steinn sagði við Vísi fyrr í dag að Edwards væri að hugsa með sér hvort hún gæti slegið vörumerki WOW air og Icelandair Group saman, með einhverjum hætti, á krefjandi tímum í flug­bransanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár