Millistétt Indlands vex meira en nemur íbúafjölda Norðurlanda á ári

Hag­vöxtur á Indlandi var langt umfram spár sér­fræð­inga á síð­asta árs­fjórð­ungi síð­asta árs.

Hagkerfi Indlands, með 1,3 millj­arða íbúa, óx um sjö pró­sent á síð­asta árs­fjórð­ungi árs­ins 2016 og er sá vöxtur langtum meiri en spár sér­fræð­inga gerðu ráð fyrir 6,4 pró­sent hag­vexti að með­al­tali, að því er segir í frétt breska rík­is­út­varps­ins BBC.

Indland er næst­fjöl­menn­asta ríki heims á eftir Kína, þar sem íbúar eru um 1,4 millj­arðar. Í þessum tveimur löndum búa því 2,7 millj­arða manna af um 7,1 millj­arða íbúa heild­ar­fjölda.

Flest bendir til þess að Indland verði orðið fjöl­menn­asta ríki heims­ins innan fimmtán ára.

Það er hins vegar ekki ein­ungis fólks­fjölg­unin sem er að knýja áfram hag­vöxt­inn í land­inu, heldur mikil innri breyt­ing og stækkun milli­stétt­ar­innar. Talið er að milli­stéttin í land­inu vaxið um sem nemur um 30 millj­ónir manna á ári, eða sem nemur ríf­lega öllum íbúðum Norð­ur­land­anna, þar sem íbúar eru um 25 millj­ónir.

Verð­mætasta fyr­ir­tæki heims­ins, Apple, til­kynnti um það í lok síð­asta árs að það ætl­aði sér að ein­blína á mark­aðs­setn­ingu og starf­semi í Indlandi á næstu árum, og aðra minni hávaxt­ar­mark­aði, ekki síst í Asíu. Þar væri vöxt­ur­inn mestur og erindi Apple aug­ljóst, eins og Tim Cook, for­stjóri, komst að orði. Apple er nú metið á 719 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur ríf­lega 80 þús­und millj­örðum króna.

Margt í Indlandi er þó með nokkrum ólík­indum, þegar kemur að hag­stærðum. Í frétt BBC segir að um 40 pró­sent af hag­kerf­inu sé skil­greint sem óskipu­lagður hluti og óskráður. Þetta á meðal ann­ars við um svarta hag­kerfið en einnig vinnu sem seld er úr landi, og er hvergi skráð. Stjórn­völd á Indlandi standa nú í átaki til að ná betri upp­lýs­ingum um stöðu mála og til að styrkja hag­stjórn­ina, og ráð­ast í var­an­legar úrbætur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár