Samgöngustofa segir Sádi-Arabíu ekki átakasvæði

Engin til­mæli hafa borist Sam­göngu­stofu um sér­staka skoðun á þróun eða ástandi í til­teknum heims­hlutum. Segja það ekki hlut­verk stofn­unar um sam­göngu­ör­yggi að leggja slíkt póli­tískt mat.

Sam­göngu­stofa segir Sádi-Arabíu ekki flokk­ast sem við­kvæmt átaka­svæði.

Í minn­is­blaði frá Sam­göngu­stofu, sem lagt var fram í morgun á sam­eig­in­legum fundi utan­rík­is­mála­nefndar Alþingis og umhverfis- og sam­göngu­nefndar, kemur fram að óheim­ilt sé á grund­velli alþjóða­reglna að flytja her­gögn um loft­rými ríkis án heim­ildar við­kom­andi ríkis. Þórólfur Árnason for­stjóri Sam­göngu­stofu kom fyrir nefnd­irnar í morgun að ræða vopna­flutn­inga íslenska flug­fé­lags­ins Air Atlanta til Sádi-Arabíu. Þannig þarf sam­þykki frá ríkjum sem her­gögn eru send frá og til auk þess sem öll ríki sem flogið er yfir þurfa að veita heim­ild.

Í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik á þriðju­dag var greint frá því að íslensk yfir­völd hafi þrátt fyrir þetta bann heim­ilað flutn­inga vopna til Sádi-Arabíu, þaðan sem þau ber­ast til Jemens og Sýrlands.

Sam­göngu­stofa veitir leyfi til flutn­ings her­gagna með borg­ara­legum loft­förum. Í minn­is­blað­inu segir að for­sendur þeirra leyf­is­veit­inga sé að stuðla að flug­ör­yggi með eft­ir­liti sam­kvæmt alþjóð­legum kröfum.

Samöngu­stofu ber­ist reglu­lega upp­lýs­ingar sem varði flug­ör­yggi frá Flug­ör­ygg­is­stofnun Evópu um átaka­svæði, en Sádi-Arabía hefur ekki verið á þeim lista. Landið hafi ekki verið flokkað sem við­kvæmt átaka­svæði svo Sam­göngu­stofu sé kunn­ugt um, né sé það á lista um ríki þar sem þving­un­ar­ráð­stöf­unum Sam­ein­uðu þjóð­anna sé beitt.

„Engin til­mæli hafa borist Sam­göngu­stofu um sér­staka skoðun á þróun eða ástandi í til­teknum heims­hlutum, enda ekki hlut­verk stofn­unar um sam­göngu­ör­yggi að leggja slíkt póli­tískt mat,“ segir í minn­is­blað­inu.

Þá segir að Air Atlanta hafi starfað í Sádi-Arabíu í ára­tugi og sinnt flutn­ingum á fólki og farmi án þess að athuga­semdir hafi verið gerðar eða leið­bein­ingar umfram reglu­gerð borist. Sé horft til ann­arra Norð­ur­landa sjá­ist að til dæmis stjórn­völd í Svíþjóð, Noregi og Finn­landi hafi und­an­farið litið til end­ur­skoð­unar á sínum reglum um útflutn­ing á hern­að­ar­gögnum til ríkja eins og Sádi-Arabíu, Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmanna og Jemen. Vinna við end­ur­skoðun reglu­gerðar um flutn­ing her­gagna með loft­förum hófst í árs­lok 2017 og stendur yfir undir stjórn sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Í sam­tali við RÚV eftir fund­inn í morgun sagði Þórólfur að beiðnir um vopna­flutn­inga hafi mest verið 17 á einu ári. „Þessar beiðnir eða þessir flutn­ingar, þetta hefur verið engin eða ein til að byrja með, að með­al­tali sýn­ist okkur 5-10, ég held að það hafi verið mest 17 á einu ári. Air Atlanta sem gerir út 17 þotur flýgur tugi fluga á hverjum degi, þannig að sjálfu sér er þetta brot af þeirri starf­semi sem Air Atlanta hefur,“ sagði Þórólfur við RÚV. „Ég tel að það sé þeirra sam­fé­lags­lega ábyrgð að upp­lýsa okkur og koma með þær upp­lýs­ingar sem þið frétta­menn hafið beðið um, í fullum rétti finnst mér,“ segir Þórólfur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár