Ólöf Nordal beitir sér gegn framkvæmdum á Hlíðarenda

Innan­ríkis­ráðuneytið sendi bréf á Dag B. Eggertsson, borgar­stjóra Reykja­víkur, fyrir viku síðan þar sem það lýsir þeirri afstöðu sinni að það hafi verið „með öllu ótímabært að gefa út framkvæmda­leyfi og hefja framkvæmdir“ á svæði Valsmanna við Hlíðar­enda.

Ástæðan er sú að framkvæmdirnar, sem séu undanfari frekari uppbyggingar og bygginga­framkvæmda í Vatns­mýrinni, geti ekki átt sér stað nema að skipulags­reglum Reykja­víkur­flugvallar, sem heyra undir innan­ríkis­ráðuneytið, sé breytt. Undir bréfið skrifa Ólöf Nordal innan­ríkis­ráðherra og Ragnhildur Hjalta­dóttir, ráðuneytis­stjóri í innan­ríkis­ráðuneytinu.

Þarf að loka neyðarbrautinni


Til stendur að reisa á bil­inu 800 til 850 íbúðir á Hlíð­ar­enda­svæð­inu. Fram­kvæmd­irnar eru hluti af aðal­skipu­lagi Reykja­vík­ur­borgar og búið er að sam­þykkja breyt­ingar á deiliskipu­lagi þannig að þær geti haf­ist. Fram­kvæmd­irnar hafa í för með sér að minnsta flug­braut Reykja­vík­ur­flug­vallar, sem stundum er kölluð neyð­ar­braut, verður ónot­hæf, en hún hefur hvorki verið á deili- né aðal­skipu­lagi frá árinu 2007.

Í febrúar samþykkti meirihluti borgar­stjórnar Reykja­víkur samkomulag við Valsmenn ehf. um uppbyggingu íbúðalóða á þeim hluta Hlíðarenda­svæðisins sem liggur að umræddri flugbraut.

Í síðustu viku hófust loks framkvæmdir við framkvæmdarveg sem þarf að að leggja milli íþrótta- og bygginga­svæðisins. Það hefur vakið mikla reiði hjá mörgum andstæðingum þess að Reykja­víkur­flugvöllur verði fluttur úr Vatns­mýrinni. Stuðnings­manna­samtökin Hjartað í Vatns­mýrinni skoruðu til að mynda á Alþingi og innan­ríkis­ráðherra að stöðva framkvæmdirnar og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis­ráðherra sagði í ræðu sinni á flokks­þingi Framsóknar­flokksins fyrr í þessum mánuði að öllum mætti vera ljóst „að grípa þarf til varna fyrir Reykja­víkur­flugvöll og koma í veg fyrir að borgar­yfirvöld grafi stöðugt undan flug­vellinum og beiti brögðum til að losna við hann.“

Vísað í skipulagsreglur Reykjavíkurflugvallar


Þann 17. apríl síð­ast­lið­inn sendi inn­an­rík­is­ráðu­neytið bréf til borg­ar­stjóra Reykja­víkur í til­efni af leyfi sem Reykja­vík­ur­borg veitti til fram­kvæmda á svæði Vals­manna við Hlíð­ar­enda. Í bréf­inu stendur:

„Ljóst er að framan­greindar framkvæmdir, sem framkvæmdar­aðili hefur nú byrjað, eru undanfari frekari uppbyggingar og bygginga­framkvæmda á svæðinu sem ekki getur orðið af að óbreyttum skipulags­reglum Reykja­víkur­flugvallar.“

Umræddar skipulags­reglur voru settar þegar Kristján L. Möller var samgöngu­ráðherra, í ágúst 2009. Þær voru settar samkvæmt loft­ferðalögum frá árinu 1998, en fram til ársins 2009 höfðu reglur af þessu tagi aldrei verið settar.

Reykja­víkurborg gerði athuga­semdir við tíma­setningu reglnanna, og taldi að skipulags­reglur af þessu tagi ættu að koma í kjölfar endur­skoðunar á deili­skipulagi flug­vallarins, sem væri gert á grund­velli aðal­skipulags. Því taldi borgin að fresta hefði átt gildis­töku reglnanna þangað til endur­skoðun aðal­skipulags og deili­skipulags hefði átt sér stað.

Þessu sögðust samgöngu­yfirvöld ekki vera sammála, reglurnar tækju mið af gildandi deilu­skipulagi. Hins vegar sögðu þau í umsögn um athugasemd borgarinnar: „Samgöngu­yfirvöld hafa ekki skipulags­vald á svæðinu og því er ljóst að komi til breytinga á aðal­skipulagi eða deili­skipulagi vallarins þarf að endur­skoða reglurnar en slíkt er einfalt mál.“ Í reglunum sé vísað til þess að þær taki mið af gildandi aðal­skipulagi og deili­skipulagi vallarins.

Ótímabært að gefa út leyfi og hefja framkvæmdir


Í bréfi inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins segir einnig að Sam­göngu­stofa hafi til umfjöll­unar mögu­leg áhrif lokun neyð­ar­braut­ar­innar og að Rögnu­nefndin svo­kall­aða, sem kannar mögu­lega flug­vall­ar­kosti, hafi ekki lokið störfum. „Á meðan að nið­ur­stöður nefnd­ar­innar liggja ekki fyrir og ekki hafa verið teknar ákvarð­anir á grund­velli til­lagna hennar verður flug­braut 06/24 [svokölluð neyð­ar­braut] ekki lokað eða aðrar ákvarð­anir teknar sem leiða til þess að flug­brautin verði tekin úr notkun.

Í ljósi framan­greindra atrið var með öllu ótímabært að gefa út framkvæmda­leyfi og hefja framkvæmdir á þeim grund­velli. Ráðuneytið skorar á Reykja­víkurborg að virða gildandi skipulags­reglur og þá stjórnsýslu­meðferð sem er í gangi fyrir Samgöngustöfu.“

Undir bréfið skrifa, líkt og áður sagði, Ólöf Nordal innan­ríkis­ráðherra og ráðuneytis­stjórinn Ragnhildur Hjalta­dóttir.

Hægt er að lesa bréfið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár