Uppfærð kostnaðaráætlun Kársnesskóla milljarði hærri en sú gamla

Meirihluti Kópavogs birti rauntölur um kostnað vegna framkvæmda við Kárs­nesskóla eftir umfjöllun Heim­ild­ar­innar. Í þeirri tilkynningu var milljarði bætt við fimm ára gamla kostnaðar­áætlun.

Kársnesskóli
Kárs­nes­skóli Upp­bygg­ing Kárs­nes­skóla er á loka­metr­unum. Mynd: Golli

Meirihluti bæjar­stjórnar Kópavogs breytti kostnaðar­áætlun vegna Kárs­nesskóla aftur­virkt í kynningu fyrir bæjarráði þvert á tölur sem gefnar voru á sínum tíma. Meirihluti bæjarráðs lét líta út fyrir að upphafleg kostnaðar­áætlun hefði verið milljarði hærri en fram kom í fyrri tilkynningum bæjarins, þar sem sagði að kostnaðar­áætlun vegna uppbyggingar skólans væri áætluð 3,65 milljarðar króna. Sú áætlun er nú sögð 4,7 milljarðar sé áfallinn raun­kostnaður reiknaður með ásamt fleiri liðum.

Munurinn á þessu er að í öðru reiknings­dæminu fer bærinn tvo milljarða yfir áætlun en í hinu er yfir­keyrslan um fjórir milljarðar.

„Það er grafal­varlegt að bæjar­fulltrúar hafi ekki fengið upplýsingar frá því í júní á síðasta ári,“ segir Bergljót Kristins­dóttir, bæjar­fulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi, en hún og bæjar­fulltrúi Viðreisnar gagnrýna meirihlutann fyrir slaka upplýsinga­gjöf tengdri uppbyggingu Kárs­nesskóla. Bæjar­fulltrúar hafa ítrekað þurft að þrýsta á bæjar­stjórn að uppfæra kostnaðar­upplýsingar í opnu bókhaldi bæjar­félagsins. Við því var orðið á bæjar­ráðsfundi …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár