Hrikalegur bruni í fjölbýlishúsi í London

Fjölmennt slökkvilið hefur barist við eldinn sem dreifði sér ógnarhratt um alla blokkina.

Mikill eldur braust út í Greenfell turninum við Latimer Road í vestur­hluta Lundúna í nótt, og dreifðist hann ógnarhratt um allan turninn. Um 200 slökkviliðs­menn vinna að slökkvistarfinu en óttast er að húsið gæti hrunið. 

Samkvæmt lýsingum breska ríkis­útvarpsins BBC eru aðstæður á vettvangi sagðar hræðilegar þar sem öskur heyrast úr húsinu frá inni­lokuðu fólki.

Tilkynnt var um eldinn skömmu eftir miðnætti og var slökkvilið fljótt á vettvang. Strax var hafist handa við að rýma bygginguna og talsmaður lögreglu segir við breska ríkis­útvarpið að sú vinna standi enn.

Um 120 íbúðir eru í húsinu en það var byggt 1974.

Fylgjast má með beinni útsendingu Sky News á meðfylgjandi Youtube rás.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár