Búast við að stýrivextir verði komnir upp í sex prósent í byrjun næsta árs

Markaðs­aðilar vænta þess að verð­bólgan sé við hámark nú um stundir en að hún muni hjaðna hægar. Í vor bjuggust þeir við að verðbólga eftir ár yrði fimm prósent en nú telja þeir að hún verði 5,8 prósent.

Seðlabankinn mun kynna næstu stýrivaxtaákvörðun í næstu viku.
Seðla­bank­inn mun kynna næstu stýri­vaxta­á­kvörðun í næstu viku. Mynd: Bára Huld Beck

Ný könnun Seðla­banka Íslands, sem gerð var á meðal markaðs­aðila á skuldabréfa­markaði, sýnir að þeir búast við því að stýri­vextir muni hækka í 5,5 prósent á þriðja ársfjórðungi 2022 og verði í fram­haldinu sex prósent á fyrsta ársfjórðungi næsta árs.

Stýri­vextir eru sem stendur 4,75 prósent og hafa hækkað um fjögur prósentu­stig frá því í maí í fyrra. Sú hækkun hefur haft mikil áhrif á afborganir á húsnæðis­lánum. Í nýlegri hag­sjá Lands­­­bank­ans var tekið dæmi af 40 millj­­­óna króna láni á lægstu óverð­­­tryggðu vöxt­­­um. Vaxta­­­byrði þeirra hefur hækkað um 98 þús­und krónur frá því í maí í fyrra. Lands­­­bank­inn býst við því að vextir haldi áfram að hækka og að vaxta­­­byrðin muni aukast um 25 þús­und krónur í við­­­bót á þessu ári. Þá hefur hún farið úr 110 þús­und krónum á mán­uði i 233 þús­und krónur á mán­uð­i. Í nýlegri könnun sem Prósent gerði fyrir Frétta­blaðið kom fram að rúmlega þriðjungur svarenda notar allt ráðstöfunarfé sitt á mánuði til að ná endum saman, er að ganga á sparnað eða safna skuldum.

Spá því að verðbólgan verði 5,8 prósent eftir ár

Alls var könnun Seðla­bankans send til 31 markaðs­aðila. Um er að ræða banka, lífeyris­sjóði, verðbréfa- og fjár­festingar­sjóði, verðbréfa­miðlara og fyrirtæki með starfs­leyfi til eigna­stýringar. Alls svöruðu 24 þeirra könnuninni.

Niður­stöður hennar gefa til kynna að væntingar svarenda séu svart­sýnni en áður. Nú búast þeir við að verð­bólgan, sem nú er 9,9 prósent, sem við hámark og verði að meðaltali tíu prósent. Í kjölfarið fari hún að hjaðna, en hægar en þeir töldu áður. Nú spá þeir að verð­bólgan verði 5,8 prósent eftir eitt ár og fjögur prósent eftir tvö. í síðustu könnun, sem gerð var í apríl, töldu markaðs­aðilar að verð­bólgan yrði fimm prósent að ári liðnu.

Miðað við miðgildi svara í könnuninni búast markaðs­aðilar við því að stýri­vextir Seðla­bankans hækki í 5,5 prósent á yfir­standandi fjórðungi og að þeir hækki enn frekar í fram­haldinu og verði sex prósent á fyrsta fjórðungi næsta árs. „Þá vænta þeir þess að vextir lækki aftur og verði 5,5 prósent eftir eitt ár og að þeir lækki í um 4,5 prósent að tveimur árum liðnum. Þetta eru hærri vextir en markaðs­aðilar bjuggust við í könnun bankans í apríl.“

Markaðs­aðilar voru líka spurðir um afstöðu til taumhalds peninga­stefnu Seðla­bankans. „Nokkur breyting var á afstöðu svarenda til taumhalds peninga­stefnunnar en þeim fækkaði sem telja að taum­haldið sé of laust og er hlutfall þeirra 67% en hlut­fallið var 79 prósent í apríl. Þá fjölgaði þeim sem telja taum­haldið hæfilegt og er hlutfall þeirra um 29 prósent saman­borið við 17 prósent í síðustu könnun. Rúmlega fjögur prósent svarenda í könnuninni eru þeirrar skoðunar að taum­haldið sé of þétt sem er sama hlutfall og í apríl.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár