Rúmlega þriðjungur heimila á ekkert eftir í veskinu í lok mánaðar

Næstum átta af hverjum tíu í lægsta tekju­hópnum ná ekki að leggja neitt fyrir, ganga á sparnað eða safna skuldum í yfir­standandi dýrtíð. Hjá efsta tekju­hópnum geta næstum níu af hverjum tíu enn lagt fyrir, sumir umtals­vert.

Alls 34 prósent heimila nota allt ráðstöfunarfé sitt til að ná endum saman í hverjum mánuði, eru að ganga á sparnað eða að safna skuldum. Þetta kemur fram í nýrri könnun Prósents sem Frétta­blaðið greinir frá í dag.

Þar segir að tæpur fjórðungur aðspurðra, 24 prósent, nái endum saman með naumindum en tíu prósent séu annað hvort að ganga á sparnað eða safna skuldum. Alls 49 prósent aðspurðra ná að leggja eitthvað fyrir um hver mánaðamót.

Í umfjöllun Frétta­blaðsins segir að staðan sé áberandi verst á Reykjanesi, þar sem 57 prósent aðspurðra leggja ekkert fyrir, ganga á sparnað eða safna skuldum.

Eðli málsins samkvæmt er staðan verst hjá hinum tekju­lægstu, en hjá þeim sem eru með undir 400 þúsund krónur í heimilis­tekjur á mánuði eiga tæplega átta af hverjum tíu ekki neitt eftir í veskinu í lok mánaðar. Á sama tíma geta níu af hverjum tíu í efsta tekju­hópnum, þeim sem eru með heimilis­tekjur yfir 1,5 milljónir króna á mánuði, lagt fyrir og helmingur þess hóps á tals­verðan afgang.

Hærri vextir bíta fast

Yfir­standandi dýrtíð virðist samkvæmt þessu vera farin að bíta suma hópa samfélagsins ansi fast. Verðbólga mælist enda 9,9 prósent og greiningar­aðilar spá því að hún eigi enn eftir að hækka. Stærsti einstaki þátturinn í hækkandi verðbólgu hefur verið gríðarleg hækkun á húsnæðis­verði.

Til að berjast gegn verð­bólgunni hefur Seðla­banki Íslands hækkað stýri­vexti í 4,75 prósent, sem er fjögurra prósentu­stiga hækkun frá því sem þeir voru í fyrravor.

Hagstofan greindi frá því fyrr á þessu ári að hlut­fall þeirra heim­ila sem bjuggu við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað (greiddu meira en 40 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í að halda þaki yfir höf­uð­ið) hafi verið 12,8 pró­sent í fyrra og það hafi aukist milli ára.

Í ljósi þess að stýri­vextir hafa hækkað um 2,75 pró­sentu­stig síðan um ára­mót án þess að laun hafi hækkað mikið liggur fyrir að þetta hlut­fall mun ­hækka umtals­vert á árinu 2022.

Allar nauðsynjavörur hækkað í verði

Á meðan að á kór­ónu­veiru­far­aldr­inum stóð, og vextir voru í sögu­legum lægð­um, þre­­föld­uð­ust óverð­­tryggð hús­næð­is­lán við­­skipta­­bank­anna, fóru úr 370 millj­­örðum króna í 1.090 millj­­arða króna. Greiðslu­byrði þessa hóps hefur hækkað gríð­ar­lega sam­hliða vaxta­hækk­un­um.

Í nýlegri hagsjá Lands­­bank­ans var tekið dæmi af 40 millj­­óna króna láni á lægstu óverð­­tryggðu vöxt­­um.

Vaxta­­byrði þeirra hefur hækkað um 98 þús­und krónur frá því í maí í fyrra. Lands­­bank­inn býst við því að vextir haldi áfram að hækka og að vaxta­­byrðin muni aukast um 25 þús­und krónur í við­­bót á þessu ári. Þá hefur hún farið úr 110 þús­und krónum á mán­uði i 233 þús­und krónur á mán­uð­i.

Ofan á þessar hækkanir á afborgunum af húsnæðis­lánum hefur eldsneytis­verð hækkað mikið, eða um 72 prósent á tveimur árum. Í nýjustu bensín­vakt Kjarnans kom fram að sá sem greiddi 15 þúsund krónur á mánuði í bensín­kostnað í maí 2020 þurfti um miðjan síðasta mánuð að punga út rúmlega 137 þúsund krónum til viðbótar á ári til að kaupa sama magn af eldsneyti. Þá eru ótaldar miklar hækkanir á mat og drykk, innfluttum nauðsynja­vörum eins og fatnaði og ferða­lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár