Bensínverð stendur í stað milli mánaða, innkaupaverð lækkar en hlutur olíufélaga eykst

Sá sem greiddi 15 þús­und krónur á mán­uði í bens­ín­kostnað í maí 2020 þarf nú að punga út rúm­lega 137 þús­und krónum til við­bótar á ári til að kaupa sama magn af elds­neyti. Heims­mark­aðs­verð á olíu lækk­aði skarpt milli mán­aða en bens­ín­lítr­inn hækk­aði samt.

Við­mið­un­ar­verð á bens­ín­verði hér­lendis er nú 341,9 krónur á lítra og hefur aldrei verið hærra í krónum talið. Það hefur hækkað um 71 pró­sent á tveimur árum og um 28 pró­sent frá því í jan­úar síð­ast­liðn­um. Upp­reiknað miðað við þróun vísi­tölu neyslu­verðs á bens­ín­lítr­inn þó nokkuð í land með að ná sínu hæsta verði, en í apríl 2012 kost­aði hann um 373 krónur á núvirði. Eftir mikla hækk­un­ar­hr­inu það sem af er ári stóð bens­ín­lítr­inn nokkurn veg­inn í stað milli júní og júlí­mán­aða. Við­mið­un­ar­verðið á honum hækk­aði um 0,9 krónur.

Þetta má lesa út úr nýj­ustu bens­ín­vakt Kjarn­ans.

Verðið hækkar þrátt fyrir að að verð á olíu á heims­mark­aði hafi lækkað um næstum fimmt­ung frá 8. júní. Á sama tíma hefur gengi krónu gagn­vart Banda­­­ríkja­­dal veikst um næstum sex pró­sent, en það gengi hefur umtals­verð áhrif á þróun elds­­neyt­is­verðs hér­­­lendis þar sem að inn­­­kaup á elds­­neyti fara fram í döl­u­m. Því dýr­ari sem dal­ur­inn er, því meira borgum við fyrir bensín.

Mik­il­vægt er að hafa í huga að við­mið­un­­ar­verðið miðar við næst­lægstu verð­­­­­­tölu í yfir­­­­­­lit­i síð­­­­­unnar Bens­ín­verð.is, sem hug­­bún­­að­­ar­­fyr­ir­tækið Seiður heldur úti, til að forð­­­­­­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­­­­­­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­­­­­­ar­verðið er þó ætið með lægstu verð­­­­­um.

Kostar 137 þúsund meira að reka bíl en fyrir tveimur árum

Ísland fram­­­­­leiðir vit­an­­­­­lega ekk­ert jarð­efna­elds­­­­­neyti heldur flytur það allt inn. Bíl­­ar sem nota jarð­efna­elds­­­­­neyti er enn í miklum meiri­hluta hér­­­­­lend­­­is. Sam­­­­­kvæmt tölum Hag­­­­­stofu Íslands voru bensín og dísil­bíl­­arnir um 292 þús­und í lok árs 2021.

Sveifl­­­urnar á heims­­­mark­aðs­verði á olíu hafa verið gríð­­­ar­­­leg­­ar á und­an­förnum mán­uðum en verð á olíu og bens­íni hefur ekki verið jafn­hátt og það er um þessar mundir í sjö ár. Verðið fór niður í 20 dali á tunnu í apríl 2020, fór yfir 86 dali á tunnu í októ­ber. Nú er það um 97 krónur á tunnu.

Því hafa skarpar hækk­­­anir á elds­­neyt­is­verði mikil áhrif á rekstr­­ar­­kostnað heim­ila. Ef horft er til þeirrar hækk­­unar sem orðið hefur á við­mið­un­­ar­verði frá því í maí 2020 þarf sá sem eyddi að jafn­­aði 15 þús­und krónum á mán­uði í bensín þá þarf nú að borga um 26.400 krónur fyrir sama magn af bens­íni. Á árs­grund­velli er það auk­inn kostn­aður upp á 137.227 krón­­ur.

Góðu frétt­irnar eru þær að mikil aukn­ing er á eign á bílum sem ganga fyrir raf­magni eða eru með raf­tengi. Fjöldi þeirra tvö­fald­að­ist frá lokum árs 2019 fram að síð­ustu ára­mót­um, þegar þeir voru 21.143 tals­ins.

Eign­ar­haldi á raf­bílum er þó nokkuð mis­skipt. Tekju­hærri og efna­meiri hópar sam­fé­lags­ins eiga auð­veld­ara um vik að kaupa slíka bíla, sem eru að jafn­aði dýr­ari en bensín- og dísil­bílar þrátt fyrir veru­legar skattaí­viln­anir. Í minn­is­blaði frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu sem birt var í des­em­ber í fyrra kom meðan ann­ars fram að hæsta hlut­fall raf­magns- og tengilt­vinn­bíla á þeim tíma var í Garðabæ og á Sel­tjarn­ar­nesi, eða um 16 pró­sent. Í þeim sveit­ar­fé­lögum eru fjár­magnstekjur hæstar á land­inu.

Olíu­fé­lögin farin að velta hækk­unum út í verð­lagið

Hækkun síð­ustu tveggja ára má rekja ann­ars vegar til hækk­andi heims­mark­aðs­verðs á olíu á meðan að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn geis­aði og orsak­aði hökt í öllum aðflutn­ings­keðjum í heim­inum og hins vegar til inn­rásar Rúss­lands í Úkra­ínu í febr­ú­ar, sem gerði það að verkum að heims­mark­aðs­verðið rauk enn frekar upp.

Lík­legt inn­kaupa­verð olíu­fé­laga er nú 138,3 krónur á lítra og lækk­aði um tæp sjö pró­sent milli mán­aða. Til sam­an­burðar var inn­kaupa­verðið 69,1 krónur á lítra í des­em­ber og hefur tvö­fald­ast síðan þá.

Hlutur olíu­fé­laga í hverjum seldum lítra hefur fylgdi ekki þessum hækk­unum á inn­kaupa­verði framan af ári. Það þýddi að félögin voru ekki að velta hækk­unum á heims­mark­aðs­verði að fullu út í verð­lagið. Það er nú að breyt­ast.

Hann er nú 48 krónur eða um 14 pró­sent af hverjum seldum lítra. Hlutur olíu­fé­lag­anna í hverjum seldum lítra jókst um 29 pró­sent milli júní og júlí­mán­aða.

Sam­an­lagt fer 138,3 krónur af hverjum seldum lítra til ann­arra en rík­is­ins, þ.e. þeirra sem selja smá­sölum á elds­neyti vör­una og til smá­sal­anna sjálfra.

Hærra bens­ín­verð er einn af þeim þáttum sem drífa áfram verð­bólgu, sem mælist nú 9,9 pró­sent. Til að reyna að hemja hana hefur Seðla­banki Íslands hækkað stýri­vexti sína skarpt á skömmum tíma, upp í 4,75 pró­sent, og vænt­ingar eru um að það hækk­un­ar­ferli haldi áfram í næsta mán­uði.

Hlutur rík­is­ins í hverjum seldum bens­ín­lítra, sem sam­anstendur af virð­is­auka­skatti, almennu og sér­stöku bens­ín­gjaldi og kolefn­is­gjaldi er nú 155,57 krónur á hvern lítra af seldu bens­íni. Það þýðir að 45,5 pró­sent af hverjum lítra fer í rík­is­sjóð.

Gögn og aðferðafræði

Hér að ofan er birt nið­ur­staða útreikn­inga og áætl­unar á því hvernig verð á lítra af bens­íni skipt­ist milli aðila í fram­setn­ingu GRID.

  • Við­mið­un­ar­verð er fengið frá hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Seið ehf. sem meðal ann­ars heldur úti síð­unni Bens­ín­verð.is og fylgst hefur með bens­ín­verði á flestum bens­ín­stöðum lands­ins dag­lega síðan 2007. Miðað er við næst­lægstu verð­tölu í yfir­lit­inu til að forð­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­ar­verðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíu­fé­lags­ins en reikna má með að raunin sé með­al­talið af öllu seldu bens­íni á land­inu.
  • Hlutur rík­is­ins liggur ljós fyrir út frá sköttum sem eru ýmist fastir og hlut­falls­legir. Upp­lýs­ingar um breyt­ingar á skatta­lögum eru fengnar frá Við­skipta­ráði sem fylgst hefur með slíkum breyt­ingum um ára­bil.
  • Líklegt inn­kaupa­verð er reiknað útfrá verði á bens­íni til afhend­ingar í New York-höfn í upp­hafi mán­aðar frá banda­rísku orku­stofn­un­inni EIA og mið­gengi doll­ars gagn­vart íslenskri krónu í yfir­stand­andi mán­uði frá Seðla­banka Íslands. Í þessum útreikn­ingum kann að skeika nokkru á hverjum tíma­punkti vegna lag­er­stöðu, skamm­tíma­sveiflna á mark­aði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bens­íni til afhend­ingar í Rott­er­dam, en verð­upp­lýs­ingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagna­veitum. Mismunur á verði í New York og Rott­er­dam er þó yfir­leitt mjög lít­ill.
  • Hlutur olíu­fé­lags er loks reikn­aður sem afgangs­stærð enda hald­góðar upp­lýs­ingar um ein­staka kostn­að­ar­liði olíu­fé­lag­anna ekki opin­berar. Hafa ber í huga að þar sem við­mið­un­ar­verð er með lægstu verðum á hverjum tíma er þessi liður ef til vill ein­hverju hærri sé litið til heild­ar­við­skipta með bensín á Íslandi.

Verð­upp­lýs­ingar mið­ast við verð­lag hvers tíma. Gögnin eru upp­færð mán­að­ar­lega í kringum 15. hvers mán­aðar. Fyr­ir­vari er gerður um skekkju­mörk sem þó ættu í mesta lagi að nema fáeinum krónum á útreikn­aða liði. Ábend­ingar um villur, lag­fær­ingar og betrumbætur skal senda á gogn@kjarninn.is og er tekið fagn­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bensínvakt

Mest lesið undanfarið ár