Hefur Taívan alltaf verið hluti Kína?

Frumbyggjar Taívans
Frum­byggjar Taívans eru nú um 600 þús­und. Þeir eru skyldir Malajum og Pólý­nesum Kyrra­hafs­ins, ekki Kín­verjum.

Heimsókn Nancy Pelosi til Taívans á dög­unum olli gríð­ar­legri gremju Kínverja og hafa Taívanir ekki bitið úr nál­inni með það. Kín­verjar hóta öllu illu, enda hafi heim­sóknin falið í sér ótil­hlýði­lega við­ur­kenn­ingu Banda­ríkja­stjórnar á Taívan sem sjálf­stæðu ríki — en sann­leik­ur­inn sé sá að Taívan sé og hafi alltaf verið hluti Kína.

Alveg burt­séð frá póli­tískum spurn­ingum máls­ins:

Er það rétt?

Hér á eftir verða nokkrar stað­reyndir í sögu Taívans raktar.

Yngri en elstu hlutar Íslands

Taívan er eyja, um það einn þriðji af Íslandi að stærð. Hún hlóðst upp í mik­illi eld­virkni fyrir 4-5 millj­ónum ára þegar gríð­ar­legur nún­ingur hófst milli  jarð­skorpufleka Asíu (eða Evrasíu) ann­ars vegar og Fil­ipps­eyjaflek­ans hins vegar.

Jarð­fræði­lega er Taívan því tölu­vert yngri en elstu hlutar Íslands, Vest­firð­irnir og Aust­firð­irnir, sem mælst hafa 12-18 milljón ára gamlir.

Enn er umtals­verð jarð­skjálfta­virkni á Taívan vegna fyrr­nefnds nún­ings en eld­virki er fremur lítil um þessar mundir. Á eystri hluta eyj­ar­innar eru háar fjalla­keðjur þar sem eru margir tindar vel yfir 3.000 metrar að hæð. Sá hæsti er nærri 4.000 metrar.

Á vest­ari hluta eyj­ar­innar er hins vegar lág­lendi, aflíð­andi frá fjöll­unum í austri og niður að vest­ur­strönd­inni.

Stundum hefur mátt ganga á milli

Taívan hefur stundum tengst meg­in­landi Evrasíu. Það ger­ist þegar ísaldir binda mik­inn sjó við heim­skautin og sjáv­ar­borð lækkar umtals­vert. Þetta gerð­ist til dæmis á síð­ustu ísöld sem lauk fyrir um 10 þús­und árum.

Meðan sjáv­ar­borð var lágt höfðu menn notað tæki­færið og gengið þurrum fótum yfir hið svo­nefnda Taívan-sund, sem nú heitir, og sest að í og við fjöllin háu. Þegar ísald­ar­jökl­arnir bráðn­uðu og sjór­inn sneri aftur sat fólkið eftir á Taívan.

Nú eru 180 kíló­metrar milli meg­in­lands Evrasíu og Taívans. Það er örlítið styttri vega­lengd en milli Banda­ríkj­anna og Kúbu, svo dæmi sé tekið, en umtals­vert lengra en milli Dan­merkur og Noregs yfir Skagerak.

Og rétt tæp­lega helm­ingi styttri vega­lengd en milli Íslands og Færeyja þar sem styst er.

Talið er að á Taívan hafi þá meðal ann­ars búið mann­teg­und sem við kunnum ennþá lítil skil á.

Ný menning á Taívan

Fyrir 5.000 til 6.000 árum var nýtt fólk komið til Taívans og virð­ist hafa á til­tölu­lega skömmum tíma rutt úr vegi menn­ingu þeirra sem fyrir voru. Þetta fólk hefur senni­lega komið á bátum yfir sundið frá meg­in­landi Evrasíu en var þó alls ekki á nokkurn hátt skylt því fólki sem seinna gat af sér Kínverja.

Frumdrög að Kín­verjum var einmitt verið að leggja um þær mundir þar sem nú er norð­ur­hluti Kína í um 1.500 kíló­metra fjar­lægð frá Asíu­strönd Taívan-sunds.

Eftir að for­feður og -mæður Han-Kínverja lærðu að rækta hrís­grjón efldist það fólk mjög og fór svo að fikra sig í suð­ur­átt og gleypti þá í leið­inni í sig marga ætt­flokka og þjóðir sem fyrir voru. 

Það snerti hina nýju íbúa Taívans þó ekki neitt.

Þeir undu á sinni eyju bæði í fjöll­unum í austri en ekki síður við sjó­inn.

Lagt á sjóinn

Það eru reyndar til kenn­ingar um að þetta „nýja fólk“ sé ein­fald­lega komið af eldri íbúum og hafi þróað sína sér­stöku menn­ingu á Taívan.

Og sé því í raun­inni sjálf­sprottið þar.

Ástró­nesíar er þessi þjóð kölluð — og best að ítreka:

Hún var ekk­ert skyld Kín­verjum. Ekki neitt.

Nema hvað þetta fólk lærði að yrkja jörð­ina en lifði líka að veru­legu leyti á sjáv­ar­fangi og varð raunar æ meira gefið fyrir sigl­ingar. Í nokkrum áföngum lagði það á haf út og sigldi fyrst suður til Fil­ipps­eyja, síðan til indónesísku eyj­anna, síðan langar langar leiðir út á Kyrra­hafið þvert og endi­langt.

Það voru sem sé frum­byggjar frá Taívan sem þró­uðu hina ótrú­legu sigl­inga­menn­ingu Pólýnesa.

Og afkom­endur þess­ara Taívana búa síðan um allt Kyrra­hafið frá Havaí-eyjum til Páska­eyju til Nýja Sjálands og meira að segja á Madaga­skar við Afr­íku­strendur.

Kínverjar byggðu ekki Taívan

En aðrir urðu eftir á Taívan og mynd­uðu þar Yuanzhumin-þjóð­ina sem einnig er kölluð Gaoshan. Yuanzhumin-fólkið bjó aðal­lega í fjöll­unum á Taívan en skyldir ætt­bálkar bjuggu á lág­lend­inu.

Og þetta er það fólk sem nú er kallað „frum­byggjar Taívans“.

Frum­byggjar Taívans eru sem sé ekki Kín­verjar, svo það sé enn sagt, heldur skyldir Malajum, Pólý­nesum og Mikró­nesíngum.

Nú leið og beið.

Töluvert fyrir upp­haf tíma­tals okkar (Krists burð) má segja að Kína hafi verið orðið til á meg­in­landi Evrasíu enda Han-Kín­verjar komnir æ lengra í suð­ur­átt. Í Kína gekk á ýmsu, stundum sam­ein­uðu öfl­ugar valda­ættir allt eða mest­allt hið víð­áttu­mikla svæði undir einni stjórn, en stundum var allt í hers höndum og grimmi­leg stríð háð milli kín­verskra ríkja.

En einu mátti þó treysta, Kín­verjar höfðu lít­inn sem engan áhuga á eyj­unni Taívan eða hvað þeir munu hafa kallað hana þá. Einhver verslun var milli Yuanzhumin-fólks­ins og Kínverja en hún var í mýflugu­mynd.

Höfðu engan áhuga á Taívan

Á ofan­verðri 13. öld — það er að segja um svipað leyti og Íslend­ingar und­ir­gang­ast stjórn Nor­egs­kon­ungs — þá fara kín­verskir fiski­menn að heim­sækja Taívan og koma sér þar upp ein­hverjum veiði­stöðvum. Heima­menn virð­ast hafa látið þá í friði enda gerðu þeir sig ekki breiða í það sinn.

Taívan er út af ströndum Kína en er þó ekki hluti Kína, hvorki land­fræði­lega, menn­ing­ar­lega né sögu­lega — fyrr en síð­ustu 2-300 ár eða svo

Athygl­is­vert er til dæmis að í eina skiptið í sögu sinni sem Kín­verjar gerð­ust mikið sigl­inga­veldi — í upp­hafi 15. aldar — og gerðu þá út risa­stóra flota til að heim­sækja aðrar þjóðir í Suð­austur-Asíu og við Ind­lands­haf og heimta und­ir­gefni þeirra við keis­ara sinn, þá komu þessir flotar aldrei við á Taívan.

Stjórn­endur Kína höfðu greini­lega engan áhuga á Taívan þá.

Þar bjuggu frum­byggjarnir að því er virð­ist í friði og ró að mestu. Þeir mynd­uðu ekki öflug eða heild­stæð ríki en virð­ast heldur ekki hafa barist neitt að ráði inn­byrðis.

Árið 1349 kom kín­verski ferða­lang­ur­inn Wang Dayuan til Taívans. Hann hitti fyrir all­marga kín­verska fiski­menn á Penghu-eyjum sem eru út á Taívan-sundi, 50 kíló­metra frá Taívan, en engir Kín­verjar voru þá búsettir á Taívan-eyju sjálfri.

Portúgalir „finna“ Fagurey

Þegar kom fram á 16. öld voru Evr­ópu­menn byrj­aðir að sigla um öll heims­ins höf og 1544 „fundu“ Portú­galir eyj­una og nefndu hana Formósu, eða Fagurey. 

Þeir töldu sig, þrátt fyrir feg­urð­ina, hafa lítt til eyj­ar­innar að sækja, svo bæki­stöðvar þeirra urðu ekki umfangs­miklar í það sinn. Í upp­hafi 17. aldar færð­ist hins vegar fjör í leik­inn þegar Spán­verjar og Hol­lend­ingar fóru að keppa við Portú­gali um yfir­ráð yfir sigl­inga­leiðum á svæð­inu. 

Ekki hirði ég um að rekja þá sögu í smá­at­riðum en mest­allan fyrri hluta ald­ar­innar má segja að Hol­lend­ingar hafi ráðið suð­ur­hluta Taívans en Spán­verjar norð­ur­hlut­anum.

Yfirráð beggja voru þó fyrst og fremst bundin við lítil virki á strönd­inni.

Kín­verjum var þá svo­lítið farið að fjölga á suð­vest­ur­horni eyj­ar­innar. Þegar Hol­lend­ingar mættu til leiks 1623 töldu þeir 1.500 Kínverja á eyj­unni.

Flestir voru fiski­menn en einnig svo­lítið af kaup­mönnum, auk þess sem nokkrir sjó­ræn­ingjar höfðu komið sér upp stöðvum þar.

Uppreisnir gegn Evrópuveldum

Íbúar Taívans — það er að segja frum­byggjarnir — voru sáró­á­nægðir með að vera orðnir leiksoppar Evr­ópu­veld­anna og gerðu nokkrum sinnum upp­reisnir en biðu ævin­lega lægri hlut. Hol­lend­ingar, sem nú voru búnir að ýta Spán­verjum og Portú­gölum burt, brugð­ust við af þeirri hörku og grimmd sem þeir voru þekktir fyrir sem nýlendu­herrar.

Upp úr 1660 voru Hol­lend­ingar komnir vel á veg með að leggja undir sig stóran hluta Taívans, alt­ént vest­ur­hlut­ann, og skipu­leggja þar nýlendu. Þeir höfðu haf­ist handa um að kristna íbú­ana og kenna þeim evr­ópska háttu, auk þess sem þeir borg­uðu inn­fæddum fyrir að allt að því útrýma miklum dádýra­hjörðum sem leikið höfðu lausum hala á eyj­unni.

Japanir borg­uðu hátt verð fyrir húð­irnar sem þeir not­uðu í brynjur sam­úræja en Kín­verjar keyptu kjötið.

Jafn­framt fóru Hol­lend­ingar að rækta syk­ur­reyr á eyj­unni og fluttu inn Kínverja til að vinna á plantekrum þeirra.

Kínverjar koma 1662

Árið 1662 breytt­ist allt. Mikið stríð hafði þá lengi geisað í Kína milli Ming-keis­ara­ætt­ar­innar ann­ars vegar og inn­rás­armanna norðan frá Man­sjúríu hins vegar. Þegar þarna var komið sögu voru norð­an­menn óðum að ná yfir­hönd­inni en einn af síð­ustu her­stjórum Ming-ætt­ar­innar — hinn kín­versk-jap­anski Koxinga — hrakti þá Hol­lend­inga burt frá stöðvum sínum á Taívan og gerði þær að sínum helstu bæki­stöðvum.

Þaðan von­að­ist Koxinga til þess að skipu­leggja gagn­sókn Ming-manna yfir sundið og end­ur­heimta Kína.

Ekki varð af því. Koxinga dó aðeins skömmu eftir að hafa sigr­ast á Hol­lend­ingum og þótt sonur hans tæki við kefl­inu fékk sá strákur ekki reist rönd við fram­gangi Man­sjúr­íu­manna.

1683 tók Qing-ættin því við ríki Ming-manna á Taívan.

„Hlið helvítis“

Frá og með því ári má vissu­lega segja að Kín­verjar hafi orðið herrar Taívans — eða rétt­ara sagt hluta Taívans.

Sjálf keis­ara­ættin Qing var þó í raun­inni varla enn orðin kín­versk, enda komin af hinum norð­lægu Júr­tj­enum, er bjuggu lengst norður í Síberíu og Man­sjúríu og voru tún­gúskrar ættar.

Enn sem komið var réðu Kín­verjar aðeins suð­vest­ur­hluta Taívans en frum­byggjar fóru sínu fram á stærstum hluta hennar.

Qing-ættin sporn­aði í næstum heila öld gegn inn­flutn­ingi Kínverja til Taívans, enda höfðu Kín­verjar lítið álit á eyj­unni og köll­uðu hana „hlið hel­vítis“. Malaría lagði marga að velli og inn­fæddir tóku inn­rás­ar­liði Kínverja illa og gerðu iðu­lega upp­reisnir gegn þeim — en Kín­verjar börðu slíkt niður af heift.

Heilli öld eftir her­nám Kínverja eða um 1770 réðu Kín­verjar enn aðeins vest­ur­hluta eyj­ar­innar.

Þá tóku Kín­verjar hins vegar þá ákvörðun að „kína­væða“ Taívan og lögðu af allar hömlur á inn­flutn­ingi fólks frá Kína. Ástæðan var ekki síst sú að Kín­verjar vildu treysta yfir­ráð sín yfir haf­svæð­inu umhverfis eyj­una, en þá voru Frakkar og Bretar farnir að gera sig æ meira gild­andi þar um slóðir.

Árið 1811 töld­ust Kín­verjar vera tvær millj­ónir á Taívan, þá þegar miklum mun fleiri en heima­menn.

Innbyrðis barátta Kínverja

Á ýmsu gekk enn á eyj­unni og þar geisuðu nú oft heift­úð­ugir bar­dagar milli mis­mun­andi hópa Kínverja sem bit­ust um völd og áhrif. Frum­byggjar reyndu að halda sjálf­stæði sínu og lengi enn réðu Kín­verjar litlu sem engu á aust­ur­strönd­inni og í fjöll­unum.

Árið 1884 gerðu Frakkar inn­rás á eyj­una frá Indókína og hugð­ust leggja hana undir heims­veldi sitt en var svarað af hörku af Kín­verjum og þó ekki síður inn­fæddum, svo Frakkar hrökkl­uð­ust fljót­lega burt. Er þetta eitt af fáum dæmum um þær mundir um mis­heppn­aða inn­rás evr­ópsks nýlendu­veldis á lendur í Afríku eða Asíu.

Bretar íhug­uðu líka nokkrum sinnum að leggja undir sig eyj­una en töldu það ekki svara kostn­aði.

Vaxandi stór­veldi Japans tók hins vegar að ásæl­ast Taívan þegar leið á 19. öld­ina. Þegar Japanir höfðu ger­sigrað Kínverja í stríði þjóð­anna 1895 heimt­uðu þeir yfir­ráð yfir Taívan og réðu eyj­unni síðan í 50 ár.

Kína réði innan við helmingi eyjarinnar

Athygl­is­vert er að þegar Japanir tóku við eyj­unni eftir frið­ar­samn­inga við Kínverja, þá við­ur­kenndi Qing-ættin að hún réði í raun og veru aðeins yfir 45 pró­sentum land­svæðis á Taívan.

Frum­byggjar réðu sem sé enn, fyrir aðeins 125 árum, meiri­hluta eyj­ar­innar.

Athugið það, þið sem nú japlið á tuggu Kínverja að Taívan hafi „alltaf verið kín­versk“.

Kín­verjar voru hins vegar meira tíu sinnum fleiri en frum­byggjar. Alls voru íbúar á eyj­unni þá taldir 2,5 milljón en þar af voru Kín­verjar 2,3 millj­ónir.

Þetta hvort tveggja kemur fram í bók eftir fræði­mann­inn Andrew Morris frá 2002.

Kín­verskir íbúar á Taívan reyndu að stofna sjálf­stætt lýð­veldi á eyj­unni fremur en fall­ast á yfir­ráð Japana en urðu fljótt að lypp­ast niður, enda fóru kín­verskir her­flokkar á vegum Qing-stjórn­ar­innar með ránum og rupli um eyj­una og íbúum fannst í bili ill­skárra að þola jap­anska stjórn.

Stjórn Japana

Japanir máttu búa við ýmsar upp­reisnir þá ára­tugi sem þeir réðu Taívan, bæði af hendi kín­verskra íbúa en ekki þó síður frum­byggja. Síðasta upp­reisn frum­byggja var 1930 og var vita­skuld barin niður af þeirri hörku sem Japanir voru þá kunnir fyrir.

Á hinn bóg­inn munu Japanir hafa unnið ýmis þrek­virki við að útrýma land­lægum hita­belt­is­sjúk­dómum, efla mjög land­búnað og byggja miklu betri inn­viði en Kín­verjar höfðu gert. Tölu­verður fjöldi Japana sett­ist á að Taívan.

Japan var í raun fyrsta erlenda veldið sem náði raun­veru­legum völdum á allri eyj­unni.

Það hafði hvorki Evr­ópu­veld­unum né Kína tek­ist.

Þegar Japanir gáfust upp eftir síð­ari heims­styrj­öld­ina síð­sum­ars 1945 var eyjan fengin í hendur Kína­stjórn sem var undir for­ystu Sjang Kaí-sjeks og van­inn er að kenna flokk hans og manna hans við þjóð­ern­is­sinna. Stjórn hans hafði lengi átt í blóð­ugri bar­áttu við komm­ún­ista Mao Zedongs og fór nú smátt og smátt hall­oka.

Flóttinn til Taívan

Árið 1949 hrökt­ust leif­arnar af her Sjangs út til Taívans en Mao tók völdin í Kína og kom þar á ein­hverri mestu óhappa­stjórn allra tíma.

Sjang ímynd­aði sér lengi að hann gæti unnið Kína aftur frá Taívan — rétt eins og Koxinga trúði á sínum tíma að hann gæti end­ur­heimt Kína fyrir Ming-ætt­ina — en fljótt kom í ljós að slíkar hug­myndir voru með öllu óraun­hæfar, og þá fóru Sjang og menn hans að byggja upp prí­vats­sam­fé­lag á Taívan.

Lengi vel var stjórn Sjangs ein­ræð­is­stjórn eins flokks en þegar leið að lokum 20. aldar var komin þar á lagg­irnar sann­kölluð lýð­ræð­is­stjórn og þykir hún sam­kvæmt öllum mæli­kvörðum ein sú besta í allri Asíu — mann­rétt­indi eru í heiðri höfð að mestu, lífs­kjör eru góð, heilsu­gæsla til fyr­ir­myndar.

Íbúar eru nú 24 millj­ónir.

95 pró­sent þeirra eru kín­verskrar ættar.

Af Kín­verj­unum eru 85 pró­sent afkom­endur þeirra sem flutt­ust til eyj­ar­innar á 17.-19. öld, en 15 pró­sent eru afkom­endur þeirra sem flúðu til Taívan 1949.

Rúm tvö pró­sent íbúar eru frum­byggjar og álíka margir afkom­endur inn­flytj­enda frá Suð­austur-Asíu. 

Þannig er nú það.

 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár